Morgunblaðið - 22.08.2019, Page 50

Morgunblaðið - 22.08.2019, Page 50
50 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. ÁGÚST 2019 Varahlutir í allar Cummins vélar Fljót og áreiðanleg þjónusta Frá 1940 www.velasalan.is Sími 520 0000, Dugguvogi 4 , 104 Reykjavík Pepsi Max-deild kvenna Selfoss – Valur .......................................... 0:1 KR – Breiðablik........................................ 1:2 Staðan: Valur 14 13 1 0 52:8 40 Breiðablik 14 12 2 0 45:13 38 Þór/KA 14 7 3 4 27:21 24 Selfoss 14 7 1 6 17:16 22 Fylkir 14 7 1 6 20:26 22 Stjarnan 14 5 1 8 14:28 16 KR 14 4 1 9 17:29 13 ÍBV 14 4 0 10 24:37 12 Keflavík 14 3 1 10 22:31 10 HK/Víkingur 14 2 1 11 10:39 7 2. deild karla Fjarðabyggð – Þróttur V........................ 6:0 Izaro Sanchez 1. Sæþór Ívan Viðarsson 5, Daniel Blanco 39., 65., Mykolas Krasnovsk- is 58., Unnar Ari Hansson 87. Leiknir F. – Tindastóll ............................ 4:4 Guðjón Máni Magnússon 30., Nikola Krist- inn Stojanovic 54., Jose Luis Vidal 86., Ruben Pastor 90. – Gilles Ondo 56., 63., sjálfsmark 67., Lassana Drame 74. ÍR – Vestri ................................................ 0:3 Þórður Gunnar Hafþórsson 18., 88., Isaac Da Silva 40. Dalvík/Reynir – Völsungur ................... 3:1 Sveinn Mergeir Hauksson 13., 44., Borja López 67. Víðir – Kári............................................... 2:2 Gylfi Örn Öfjörð 50., Atli Freyr Pálsson 80. – Eggert Kári Karlsson 34., 47. KFG – Selfoss ........................................... 1:3 Tristan Freyr Ingólfsson 60. – Jökull Her- mannsson 22., Hrvoje Tokic 62., 69. Staðan: Leiknir F. 17 10 4 3 36:18 34 Vestri 17 11 0 6 25:20 33 Selfoss 17 9 2 6 39:23 29 Víðir 17 9 2 6 31:22 29 Dalvík/Reynir 17 7 6 4 26:24 27 Þróttur V. 17 7 5 5 32:28 26 ÍR 17 7 3 7 25:26 24 Fjarðabyggð 17 6 5 6 34:31 23 Völsungur 17 6 3 8 20:25 21 Kári 17 5 3 9 33:42 18 KFG 17 5 0 12 26:42 15 Tindastóll 17 2 3 12 17:43 9 3. deild karla Kórdrengir – Augnablik .......................... 2:1 Staða efstu liða: Kórdrengir 18 14 3 1 47:19 45 KF 17 13 2 2 45:17 41 KV 17 10 2 5 34:24 32 Vængir Júpiters 17 10 1 6 31:24 31 Reynir S. 17 8 5 4 30:27 29 Einherji 17 6 5 6 21:20 23 Sindri 17 6 3 8 38:44 21 Álftanes 17 5 4 8 30:30 19 Höttur/Huginn 17 4 6 7 27:27 18 KNATTSPYRNA KNATTSPYRNA 1. deild karla: Ásvellir: Haukar – Afturelding.................18 Í KVÖLD! KÖRFUBOLTI Andri Yrkill Valsson yrkill@mbl.is Draumastaða. Formsatriði. Dauða- færi. Þetta voru meðal þeirra lýs- inga sem notaðar voru til þess að út- skýra stöðu íslenska karlalands- liðsins í körfubolta fyrir leik liðsins gegn Sviss í forkeppni EM í Mont- reux í gærkvöld. Ísland mátti tapa með 19 stiga mun án þess að það kæmi í veg fyrir sigur liðsins í riðl- inum, eins undarlega og það hljómar. Það var því næg innistæða og vel það fyrir þeim jákvæðu orðum sem hafðar voru uppi um stöðuna fyrir leikinn. En martröðin varð að veruleika. Eina spurningarmerkið sem talað var um var hvernig andleg hlið leik- manna myndi höndla þessa skrítnu stöðu. Þegar á hólminn kom var það einmitt hún sem brást í leik sem tap- aðist með 24 stiga mun, 109:85, og því er ljóst að Ísland á enga mögu- leika að komast í þriðju lokakeppni EM í röð. Þó að leiðin þangað hefði enn verið löng og ströng er ömurlegt að framhaldið hjá landsliðinu næstu tvö árin eða svo sé ákveðið á þennan hátt. Ísland byrjaði leikinn vel en Sviss- lendingar gengu fljótt á lagið og brutu íslensku leikmennina hægt og rólega niður. Það sést einna best á því að Sviss tók 17 sóknarfráköst í leiknum gegn aðeins fimm frá Ís- landi. Varnarleikurinn var því mjög dapur og það eina sem hélt leiknum jöfnum í raun var það að Sviss var með rúmlega 50% vítanýtingu en Ís- land með tæplega 90% nýtingu. Án þess hefði þetta ekki einu sinni orðið spennandi. Sterkan leiðtoga vantaði Martin Hermannsson fór sem fyrr fyrir íslenska liðinu, en hann skoraði 28 stig í leiknum og hefði þurft að geta dreift ábyrgðinni á fleiri herðar. Hann viðurkenndi eftir leik að auðvitað hefði það verið aftast í hausnum á mönnum að það væri í lagi að tapa og það með 19 stigum. Að sjálfsögðu getur það ekki ann- að en eyðilagt eðlilegan undirbún- ing. Þess vegna vantaði líka hreinan leiðtoga í hópinn, einhvern sem gat blásið mönnum andagift í brjóst og komið í veg fyrir að andlega hliðin myndi hrynja svona við fyrsta mót- læti. Því það er hreinlega grátlegt að láta Sviss skora 109 stig í leik. Þetta er þjóð sem hefur ekki komist í loka- keppni síðan 1955 og skoraði síðast yfir 90 stig í mótsleik í undankeppni árið 2013. Það má hins vegar ekki leggja ár- ar í bát núna. Þessi hópur er enn ungur og flestir eiga mörg ár eftir saman. Það væri enn meiri synd að geta ekki í það minnsta notað þessa martröð til þess að læra af og koma í veg fyrir að hausinn fari aftur með menn þegar mest á reynir. Ísland upplifði sína verstu mögulegu martröð í Sviss  Ísland mátti tapa með 19 stig- um en gerði enn verr og EM er því úr sögunni Ljósmynd/FIBA Europe Svekktir Hörður Axel Vilhjálmsson, Jón Axel Guðmundsson og Pavel Ermolinskij máttu vera svekktir eftir leikinn. Montreux í Sviss, forkeppni EM karla, miðvikudaginn 21. agúst 2019. Gangur leiksins: 6:8, 14:14, 18:24, 25:29, 36:34, 42:38, 51:40, 54:47, 60:51, 67:55, 72:62, 77:66, 86:68, 97:74, 103:80, 109:85. Sviss: Roberto Kovac 29 stig, Jonat- han Kazadi 21, Clint Capela 18/15 fráköst, Boris Mbala 11, Yuri Solca 9, Dusan Mladjan 6, Patrick Baldass- arre 6, Jonathan Dubas 4, Robert Zinn 3, Michel-Ofik Nzege 2. SVISS – ÍSLAND 109:85 Fráköst: 28 í vörn og 17 í sókn. Ísland: Martin Hermannsson 28 stig, Tryggvi Snær Hlinason 14, Hlynur Bæringsson 13, Jón Axel Guðmundsson 10, Pavel Ermolinskij 10, Elvar Már Friðriksson 5, Ólafur Ólafsson 3, Hörður Axel Vilhjálms- son 2. Fráköst: 25 í vörn og 5 í sókn. Dómarar: Yohan Rosso, Frakklandi, Alexey Davydov, Rússlandi, Gatis Salins, Lettlandi. Knattspyrnudeild Breiðabliks tilkynnti í gærkvöld að fé- lagið væri búið að semja við markvörðinn Anton Ara Einarsson um að koma yfir í Kópavoginn í haust þegar samningur hans við Val rennur út. Hann mun þar að öll- um líkindum veita Gunnleifi Gunnleifssyni samkeppni um stöðuna í marki liðsins, en Gunnleifur samdi á ný við Blika til eins árs á 44 ára afmælisdaginn sinn fyrr í sumar. Þar hefur hann spilað frá árinu 2013. Anton Ari verður 25 ára á laugardaginn, en hann er uppalinn hjá Aftureldingu og hefur verið á mála hjá Val í fimm ár. Hann lék alla leiki liðsins þegar það varð Ís- landsmeistari árin 2017 og 2018, en missti stöðu sína í sumar eftir að Hannes Þór Halldórsson gekk í raðir Vals í vetur. Þá á Ant- on Ari að baki tvo vináttuleiki með íslenska landsliðinu. „Við bjóðum Anton Ara hjartanlega velkominn í Kópavoginn um leið og við óskum honum góðs gengis í baráttunni það sem eftir er af núverandi tímabili með Hlíðarendafélaginu,“ sagði í tilkynningu Breiðabliks í gær. Anton Ari keppir við Gunnleif Anton Ari Einarsson Möguleiki Jóns Guðna Fjólusonar og samherja hans í Krasnodar að leika í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu er orðinn langsóttur eftir fyrri leikinn gegn Olympiakos í 4. umferðinni. Grikk- irnir unnu stórsigur 4:0 og eru komnir með annan fótinn í riðla- keppnina. Jón lék allan leikinn í vörn rússneska liðsins en Olympi- akos var aðeins 1:0 yfir eftir 77 mínútur. Lokakaflinn var því skelfi- legur fyrir Krasnodar, sem á síðari leikinn eftir heima. kris@mbl.is Skelfilegur lokakafli AFP 4:0 Jón Guðni og samherjar eru í erfiðri stöðu gegn Grikkjunum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.