Morgunblaðið - 22.08.2019, Síða 51
ÍÞRÓTTIR 51
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. ÁGÚST 2019
Suðurlandsbraut 20, Reykjavík, sími 588 0200, eirvik.is
samlegt ka
nýmalað,
engin h lki.
á
y
–
Ég hélt að forráðamenn
ensku úrvalsdeildarinnar í fót-
bolta hefðu lofað því að fara
sparlega með vídeódómgæslu á
fyrstu leiktíðinni þar sem hún er
notuð. Allt ætti að gera til að
halda hraðanum og fjörinu í há-
marki, því sem gerir þessa deild
að þeirri vinsælustu.
Atvikið í lok leiks Manchest-
er City og Tottenham um helgina
sýndi að það var þá að minnsta
kosti um að ræða fölsk loforð.
Atvik sem í mínum huga flokkast
sem vafaatriði, hversu oft sem
það er skoðað á myndbandi. Í
svona tilvikum á auðvitað bara
fyrsta mat dómara að ráða.
VAR er sniðugt til þess að
koma í veg fyrir augljós mistök,
en er hundleiðinleg breyting á
leiknum ef það á að nota
tæknina með þessum hætti.
Hundleiðinleg breyting ef hún er
til þess að skera úr um hvort
markvörður hafi stigið sentí-
metra af marklínunni í víta-
spyrnu eða ekki, og slík smá-
atriði.
Og hvað gerir Gabriel Jesus
þegar hann verður búinn að
skora 4-5 svona líka lagleg mörk
sem dæmd eru af eftir japl, jaml
og fuður? Hættir hann ekki bara
að fagna til að líta ekki út eins og
kjáni ef að markið er svo dæmt
af, eins og Jóhann Berg Guð-
mundsson talaði um í viðtali hér
á síðum Morgunblaðsins um
daginn?
Svona notkun á VAR, eins og
sást á Etihad-vellinum á laugar-
dag, er einfaldlega til þess fallin
að draga úr hraðanum, ástríð-
unni og fjörinu í ensku úrvals-
deildinni. Það gladdi mig að
heyra gallharða Tottenham-
menn taka heils hugar undir það
að með svona notkun væri inn-
leiðsla VAR mjög slæm þróun.
Þetta þarf að útfæra mun betur.
BAKVÖRÐUR
Sindri Sverrisson
sindris@mbl.is
FÓTBOLTI
Sindri Sverrisson
sindris@mbl.is
„Maður þarf alltaf að skoða stöð-
una eins og hún er hverju sinni.
Það voru alveg viðræður við ein-
hver lið en á endanum fannst mér
ég ekki búinn með minn kafla hér.
Mig langar að spila heilt gott tíma-
bil með Augsburg og kann að meta
hvað ég hef hér,“ segir Alfreð
Finnbogason, landsliðsframherji í
knattspyrnu, við Morgunblaðið.
Alfreð er að hefja sitt fimmta
tímabil með Augsburg í efstu deild
Þýskalands en þessi þrítugi marka-
hrókur skrifaði á dögunum undir
nýjan samning við félagið sem gild-
ir til ársins 2022. Eftir að hafa spil-
að í Belgíu, Svíþjóð, Hollandi,
Spáni og Grikklandi hefur Alfreð
nú skorað 32 mörk í 67 leikjum í
einni albestu deild heims í Þýska-
landi.
„Ég finn mikið traust frá öllum í
klúbbnum og það sýnir sig í
frammistöðunni síðan ég kom hing-
að. Ég var ekki tilbúinn að fórna
því fyrir bara „eitthvað“, þó að auð-
vitað sé maður tilbúinn að skoða
það ef mjög, mjög spennandi kost-
ur býðst. Ég vildi ekki fara inn í
síðasta tímabilið mitt á samningi án
þess að vita hvað tæki við og taldi
betra að gera langtímasamning við
félagið til að geta haft fulla einbeit-
ingu á það sem skiptir mestu máli;
að spila leiki og skora mörk.
Það var alveg raunhæfur mögu-
leiki að fara í eitthvert annað félag
en á þessum tímapunkti, komandi
upp úr meiðslum, vildi ég vera
áfram hér. Ég sé fram á spennandi
tímabil hérna og kann að meta það
sem ég hef hér. Það þarf eitthvert
mjög gott tilboð til að ég fari
héðan. Ég prófaði það á fyrri árum
ferilsins að vera styttra á mörgum
stöðum en það er ekkert sjálfgefið
að finna stað þar sem manni líður
vel, spilar í toppdeild og er vel
metinn af öllum í félaginu,“ segir
Alfreð.
Eins og hann nefnir hefur Alfreð
glímt við kálfameiðsli undanfarna
mánuði, eða frá því í apríl. Sumar-
fríið fór í að jafna sig af þeim og
vonast Alfreð til þess að spila gegn
Union Berlín í fyrsta heimaleik
Augsburg á tímabilinu, núna á
laugardaginn.
Sumarfríið út um gluggann
„Heilsan er bara mjög góð. Plan-
ið er að ég spili fyrsta leik minn,
eða sé alla vega í leikmanna-
hópnum, um helgina. Ég er búinn
að æfa núna þrjár vikur með liðinu
og þar á undan mikið á vellinum og
það hefur allt gengið samkvæmt
plani eða jafnvel framar vænt-
ingum án þess þó að maður hafi
þvingað eitt eða neitt í gegn. Ég er
mjög sáttur við stöðuna eins og hún
er,“ segir Alfreð, sem því miður
hefur nokkra reynslu af því að
glíma við meiðsli og vissi hvernig
best væri að taka því að meiðast í
kálfanum:
„Það fóru öll plön um sumarfrí út
um gluggann um leið. Það er bara
hluti af starfinu. Ég fékk eina viku
til þess að fara í smásól og slaka á,
en þá með löppina nokkurn veginn í
gifsi og gat ekki notið þess eins og
ég vildi. Ég var kominn aftur til fé-
lagsins í byrjun júní til að byrja
endurhæfingu af alvöru eftir
endurhæfingu heima á Íslandi, í lok
júní fór ég svo í tvær vikur í svolítið
ákafari endurhæfingu til Katar
sem ég hef mjög góða reynslu af,
og frá byrjun júlí hef ég svo verið
hér úti, sífellt að bæta við álagið.
Núna er ég á þeim stað að mér líð-
ur vel, er orðinn verkjalaus og get
farið að njóta þess að spila fótbolta
aftur.“
Gangi allt að óskum mun Alfreð
nú geta spilað tvo leiki með Augs-
burg áður en íslenska landsliðið
kemur saman fyrir næsta leik sinn
í undankeppni EM, mikilvægan
leik við Moldóvu á Laugardalsvelli.
Núna er Alfreð hins vegar með
hugann við nýtt tímabil með sínu
félagsliði, sem þarf á helsta marka-
skorara sínum að halda eftir háð-
ungartap gegn D-deildarliði í
bikarkeppninni og 5:1-skell gegn
Dortmund í 1. umferð þýsku
deildarinnar.
Rosalega miklar breytingar
Þjálfarinn Martin Schmidt tók
við stjórnartaumunum hjá Augs-
burg í byrjun apríl eftir að Manuel
Baum var rekinn, en liðið var í fall-
baráttu á síðustu leiktíð og endaði
rétt fyrir ofan fallsæti. Í sumar hef-
ur miklu púðri verið eytt í að
styrkja leikmannahópinn og inn
hafa meðal annars komið Stephan
Lichtsteiner frá Arsenal, tékkneski
landsliðsmiðvörðurinn Marek
Suchý, sem var fyrirliði Basel, og
króatíski landsliðsmiðvörðurinn
Tin Jedvaj sem kom að láni frá
Leverkusen.
„Ég hef kynnst þjálfaranum að-
eins og náði að spila einn leik fyrir
hann áður en ég meiddist í vor. Það
hafa verið hæðir og lægðir í fyrstu
leikjunum hans en nú hefur hann
náð heilu undirbúningstímabili.
Mér líst vel á hugmyndir hans og
við verðum að sjá með tímanum
hvernig hann nær til liðsins. Það
hafa orðið rosalega miklar breyt-
ingar á liðinu; ellefu nýir leikmenn
komnir og álíka margir farnir. Það
er búið að yngja liðið upp en auk
þess hafa komið einn til tveir
reyndari leikmenn,“ segir Alfreð,
og bætir við:
„Mér líst bara vel á þetta. Liðið á
eftir að finna sinn karakter og það
er of snemmt að segja til um hvað
verður en ég er nokkuð bjartsýnn á
að við verðum fyrir ofan „strikið“,
sem er fyrsta markmið hér. Von-
andi getum við strítt öðrum og ver-
ið ofar, en það er auðvitað ótrúlega
mikil samkeppni í deildinni.“
Alfreð kaus að halda kyrru fyrir í Augsburg Klár í slaginn á ný um helgina
eftir langa fjarveru Gjörbreyttur leikmannahópur byrjar leiktíðina illa
Ljósmynd/FCA_World
Þrenna Alfreð Finnbogason fagnar einu þriggja marka sinna gegn Mainz
síðasta vetur. Hann skoraði 10 mörk í 18 deildarleikjum á síðustu leiktíð.
Ekki búinn með kaflann hér
Arnór Sigurðsson, landsliðsmaður-
inn ungi í knattspyrnu, mun ekki
fara frá CSKA Moskvu í Rússlandi í
sumarfélagaskiptaglugganum.
Framganga þessa tvítuga leik-
manns á síðustu leiktíð, þar sem
hann skoraði meðal annars mörk
gegn Roma og Real Madrid í Meist-
aradeild Evrópu, vakti verðskuld-
aða athygli og sýndi ítalska félagið
Napoli honum meðal annars áhuga,
eins og Arnór staðfesti við Morgun-
blaðið snemma sumars. Samkvæmt
heimildum Morgunblaðsins er hins
vegar núna ljóst að Arnór verður
áfram hjá CSKA að minnsta kosti
fram í janúar.
Arnór hóf leiktíðina í Rússlandi
vel og skoraði í sigri á Orenburg í
2. umferð. CSKA vann fyrstu þrjá
leiki sína en Arnór meiddist svo í
jafntefli við Sochi 11. ágúst.
Meiðslin reyndust ekki alvarleg og
þó að Arnór hafi misst af granna-
slag við Spartak Moskvu á mánu-
dag standa vonir til þess að hann
geti leikið næsta leik, við Akhmat
Grozny á sunnudag. sindris@mbl.is
Morgunblaðið/Eggert
Landsliðið Arnór Sigurðsson lék fyrstu mótsleiki sína fyrir A-landslið
Íslands á þessu ári og ætti að vera klár í slaginn gegn Moldóvu 7. september.
Arnór fer hvergi og
stefnir á næsta leik