Morgunblaðið - 22.08.2019, Qupperneq 52

Morgunblaðið - 22.08.2019, Qupperneq 52
Í VESTURBÆ Bjarni Helgason bjarnih@mbl.is Breiðablik var stálheppið að fara með 2:1-sigur af hólmi þegar liðið heimsótti KR í úrvalsdeild kvenna í knattspyrnu, Pepsi Max-deildinni, á Meistaravelli í Vesturbæ í 14. um- ferð deildarinnar í gær. Guðmunda Brynja Óladóttir kom KR yfir á 32. mínútu eftir hrottaleg mistök Sonnýjar Láru Þráinsdóttur í marki Breiðabliks. Karólína Lea Vilhjálmsdóttir jafnaði metin fyrir Breiðablik á 68. mínútu þegar hún kláraði snyrtilega í fjærhornið af stuttu færi úr teignum. Það var svo Berglind Björg Þorvaldsdóttir sem skoraði sigurmark leiksns á 77. mínútu af stuttu færi úr teignum eftir fyrirgjöf Ástu Eirar Árna- dóttur. Vesturbæingar byrjuðu leikinn af miklum krafti og voru mun hættu- legri aðilinn fyrstu 20 mínútur leiksins. Guðmunda Brynja Óla- dóttir fékk nokkur frábær færi á fyrstu mínútum þar sem hún átti einfaldlega að skora. Það dró hins vegar mikið af liðinu í seinni hálf- leik og það sást á leik Vestur- bæinga að bikarúrslitaleikurinn gegn Selfyssingum á laugardaginn síðasta sat mikið í leikmönnum liðs- ins, en leikurinn endaði í framleng- ingu. Íslandsmeistararnir voru lengi í gang og þeim gekk illa að skapa sér afgerandi marktækifæri. Hildur Þóra Hákonardóttir var hálf týnd á miðjunni nánast allan leikinn og Blikar söknuðu Hildar Antonsdótt- ur mikið. Það var oft á tíðum langt á milli leikmanna liðsins og Kópa- vogsliðið var mjög ósamstíga í pressunni. Þá fóru leikmenn liðsins illa með nokkur dauðafæri í leikn- um eins og svo oft áður í sumar. Vesturbæingar litu mjög vel út í fyrri hálfleik í gær þótt það hafi vissulega dregið af liðinu í seinni hálfleik, sem er vel skiljanlegt eftir stórleik helgarinnar. Það hefur ver- ið flottur stígandi í leik liðsins undanfarnar vikur og ef liðið held- ur áfram að spila svona verður að teljast afar ólíklegt að liðið fari nið- ur um deild í haust. Færanýting Blikaliðsins er ákveðið áhyggjuefni, sem og markvarðastaðan. Ef Berg- lind Björg skorar ekki er enginn eiginlegur framherji á bekknum til þess að kom inn fyrir hana. Ef Blikar missa titilinn yfir á Hlíðar- enda í haust skrifast það á færa- nýtingu liðsins og markmanninn Sonnýju Láru Þráinsdóttur, sem virkar ekki í neinu standi og hefur gefið of mörg mörk í sumar. Blikar stálheppnir gegn KR-ingum  KR var yfir þar til á 68. mínútu en Breiðablik fékk þó öll stigin Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Blikasigur Katrín Ómarsdóttir og Alexandra Jóhannsdóttir í skallaeinvígi á miðjunni í leiknum í gærkvöld. 52 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. ÁGÚST 2019 www.gilbert.is OKKAR MISSIR ALDREI EINBEITINGUNA ÚRSMÍÐAMEISTARI Sigurður Egill Lárusson reiknar með því að vera búinn að spila síð- asta leik sinn á tímabilinu með Ís- landsmeisturum Vals í knatt- spyrnu. Hann staðfesti það í samtali við mbl.is í gær, en hann tognaði í nára gegn Breiðabliki á mánudag. „Eftir samtal við lækni er alveg viðbúið að ég muni missa af restinni af tímabilinu,“ sagði Sigurður Egill en bætti við að óvissan væri það mikil að hann útilokaði ekki að ná síðustu leikjunum eftir miðjan september. Hann hefur skorað tvö mörk í 13 deildarleikjum í sumar. Tímabilið líklega búið hjá Sigurði Morgunblaðið/Eggert Meiddur Sigurður Egill Lárusson er sennilega úr leik út leiktíðina. Michelle Liu verður aðeins 12 ára, níu mánaða og sex daga gömul þeg- ar hún verður á meðal keppenda á Opna kanadíska meistaramótinu í golfi í vikunni. Hún bætir met löndu sinnar Brooke Henderson um tvö ár, en þær eru báðar frá Kanada. Liu tryggði sér sæti á mótinu með góð- um árangri á Opna kanadíska áhugamannamótinu í júlí. Henderson, sem nú er áttunda á heimslistanum, var 14 ára þegar hún lék á mótinu í fyrsta skipti. johanningi@mbl.is 12 ára gömul á opna kandadíska Ljósmynd/Golf Kanada 12 ára Michelle Liu er komin í sviðsljósið í golfheiminum. 1:0 Guðmunda Brynja Óladóttir 32. 1:1 Karólína L. Vilhjálmsdóttir 67. 1:2 Berglind B. Þorvaldsdóttir 77. I Gul spjöldTijana Krstic, Betsy Hassett (KR). Dómari: Guðmundur Ársæll Guðmundsson, 8. Áhorfendur: Um 220. KR – BREIÐABLIK 1:2 M Alexandra Jóhannsdóttir (Breið.) Áslaug M. Gunnlaugsd. (Breið.) Ásta Eir Árnasdóttir (Breiðabliki) Kristín Dís Árnadóttir (Breiðabliki) Karólína Lea Vilhjálmsd. (Breið.) Selma Sól Magnúsdóttir (Breið.) Betsy Hassett (KR) Katrín Ómarsdóttir (KR) Laufey Björnsdóttir (KR) Lilja Dögg Valþórsdóttir (KR) Þórunn Helga Jónsdóttir (KR) Meistaradeild Evrópu 4. umferð, fyrri leikir: Olympiakos –Krasnodar......................... 4:0  Jón Guðni Fjóluson spilaði allan leikinn með Krasnodar. Dinamo Zagreb – Rosenborg.................. 2:0 Young Boys – Rauða Stjarnan................ 2:2 England B-deild: Fulham – Millwall.................................... 4:0  Jón Daði Böðvarsson var ónotaður vara- maður hjá Milwall. Leeds – Brentford ................................... 1:0  Patrik Sigurður Gunnarsson var ekki í leikmannahópi Brentford. WBA – Reading........................................ 1:1  Jökull Andrésson var ekki í leikmanna- hópi Reading. Staða efstu liða: Leeds 4 3 1 0 7:2 10 Swansea 4 3 1 0 8:4 10 Fulham 4 3 0 1 8:2 9 Sheffield Wed. 4 3 0 1 6:2 9 Charlton 4 2 2 0 8:5 8 WBA 4 2 2 0 6:4 8 Bristol City 4 2 1 1 6:5 7 Pólland B-deild: Nieciecza – Stal Mielec ........................... 1:2  Árni Vilhjálmsson var ónotaður vara- maður hjá Nieciecza. Danmörk B-deild: Kolding –Vejle ......................................... 1:1  Kjartan Henry Finnbogason fór af velli á 74. mínútu hjá Vejle. Viborg – Frederica.................................. 2:2  Ingvar Jónsson stóð í marki Viborg. Svíþjóð Bikarkeppnin 2. umferð: Luleå – Hammarby.................................. 1:3  Aron Jóhannsson var ekki í leikmanna- hópi Hammarby. Timrå – Norrköping................................ 1:6  Ísak Bergmann Jóhannesson lék allan leikinn með Norrköping og skoraði mark en Guðmundur Þórarinsson var ekki í leik- mannahópnum. Forssa – Syrianska .................................. 2:4  Nói Snæhólm Ólafsson lék fyrstu 47 mínúturnar með Syrianska. A-deild kvenna: Djurgården – Örebro .............................. 1:4  Ingibjörg Sigurðardóttir og Guðrún Arnardóttir léku allan leikinn með Djur- gården en Guðbjörg Gunnarsdóttir er í barneignafríi. Noregur Bikarkeppni 8-liða úrslit: Vålerenga – Avaldsnes ........................... 3:0  Kristrún Rut Antonsdóttir var ekki í leikmannahópi Avaldsnes. B-deild: Sandefjord – Raufoss .............................. 1:0  Viðar Ari Jónsson lék fyrstu 90 mínút- urnar en Emil Pálsson var ekki í leik- mannahópi Sandefjord. KNATTSPYRNA Hinn 16 ára gamli Skagamaður Ísak Bergmann Jóhannesson gerði sér lítið fyrir og skoraði í fyrsta leik sín- um með sænska liðinu Norrköping í gær. Ísak og samherjar hans áttu ekki í nokkrum vandræðum með að leggja D-deildarliðið Timrå að velli á útivelli í 2. umferð sænsku bikar- keppninnar, 6:1. Skagamaðurinn skoraði þriðja mark Norrköping í uppbótartíma fyrri hálfleiks. Guðmundur Þór- arinsson lék ekki með Norrköping. Ísak lék einn leik með ÍA í 1. deildinni áður en hann fór út til Sví- þjóðar. Hann hefur skoraði 10 mörk í 13 leikjum með U17 ára lands- liðinu. Nói Snæhólm Ólafsson lék fyrstu 47 mín- úturnar með Syrianska, sem hafði betur gegn Forssa á úti- velli, 4:2. Aron Jóhannsson var hins vegar ekki í leikmannahópi Hammarby sem vann 3:1-sigur á IFK Luleå á útivelli. johanningi@mbl.is Ísak opnaði markareikning sinn aðeins 16 ára gamall Ísak Bergmann Jóhannesson
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.