Morgunblaðið - 22.08.2019, Side 53

Morgunblaðið - 22.08.2019, Side 53
ÍÞRÓTTIR 53 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. ÁGÚST 2019 Gullfiskur Kæliþurrkaður harðfiskur sem hámarkar ferskleika, gæði og endingu. Inniheldur 84% prótein. 84% prótein - 100% ánægja Framleiðandi: Tradex ehf, Eyrartröð 11, 220 Hafnarfjörður, tradex@tradex.is Harðfiskur // Bitafiskur // Skífur Tilvalinn með á völlinn í sumar Á SELFOSSI Guðmundur Karl sport@mbl.is Valskonur eru áfram í bílstjórasæt- inu í kapphlaupinu við Breiðablik um Íslandsmeistaratitilinn í knatt- spyrnu kvenna. Valur gerði þó ekki annað en að merja nýkrýnda bikar- meistara Selfoss á Selfossi í gær- kvöldi, 1:0. Markið skoraði Hlín Ei- ríksdóttir á 66. mínútu eftir stoð- sendingu frá lukkudísunum. Meistaraheppni? Hallbera Guðný Gísladóttir átti fyrirgjöf frá vinstri og Cassie Boren skallaði boltann beint upp í loftið og tilviljun réð því að hann lenti fyrir fótum Hlínar, sem hamr- aði hann glæsilega, viðstöðulaust í netið. Óverjandi fyrir Kelsey Wys, sem átti mjög góðan leik í marki Selfoss. Ansi ryðgaðar Valur hefði getað gert út um leikinn á upphafsmínútunum því Selfyssingar mættu ansi ryðgaðir til leiks eftir gleðisprengjuna á Laugardalsvelli um síðustu helgi. Valskonur fengu oft góðan tíma til þess að athafna sig inni í vítateig Selfoss en voru svifaseinar og náðu ekki að nýta færin. Þær vínrauðu voru þó fljótar að hrista af sér bikarþynnkuna sem oft er talað um og þegar þær mættu til leiks voru þær fyllilega jafnokar Vals þetta kvöldið. Á lokakafla fyrri hálfleiks varði Kelsey Wys frábærlega frá Fannd- ísi Friðriksdóttur og nokkrum mín- útum síðar lak boltinn í stöngina á marki Selfoss eftir að Ásgerður Baldursdóttir hafði skotið í varnar- mann. Valur hársbreidd frá marki þar. Fjörið hélt áfram í upphafi síðari hálfleiks og Sandra Sigurðar- dóttir þurfti að taka á honum stóra sínum í marki Vals þegar hún varði aukaspyrnu frá Önnu Maríu Frið- geirsdóttur í þverslána. En eftir að Valur komst yfir má segja að þær hafi haft öll tök á leiknum og klár- að verkefnið af miklu öryggi. Valin kona í hverri stöðu Liðsheildin hjá Val er frábær og ekki hægt að segja að einn leik- maður frekar en annar hafi skarað fram úr í gær. Þarna er valin kona í hverri stöðu og gæðin mikil. Í lið Selfoss vantaði Hólmfríði Magnúsdóttur, sem er meidd, og Karitas Tómasdóttur, sem var í leikbanni. Það hefði verið gaman að sjá þær inni á í þessum leik, en „ef og hefði“ skilar engu og Sel- fyssingar geta verið sáttir við frammistöðuna í gærkvöldi þrátt fyrir tapið, þar sem margir ungir leikmenn fengu tækifæri til að skína. Toppliðið marði bikarmeistarana  Lukkudísirnar með Valskonum þegar þær skoruðu eina mark leiksins Morgunblaðið/Hari Skoraði Hlín Eiríksdóttir hefur leikið vel í sumar og réði úrslitum í gær. Luis Suárez, framherji FC Barce- lona, var í gær orðaður við ítalska stórliðið Juventus í spænskum fjöl- miðlum. Fari svo að Neymar gangi til liðs við Barcelona frá PSG gæti Suárez farið til Juventus. Barca hefur eytt háum fjár- hæðum í sumar í þá Antoine Griez- mann og Frankie de Jong og gæti því þurft að selja leikmenn til að brjóta ekki reglur FIFA. Philippe Coutinho hefur þegar verið lánaður til Bayern München en fyrir það þurfa Þjóðverjarnir að borga 8 milljónir evra. sport@mbl.is Frekari breyt- ingar hjá Barca? AFP Á förum? Luis Suarez er orðaður við Juventus í spænskum miðlum. Franck Ribéry er genginn til liðs við ítalska knattspyrnufélagið Fio- rentina, en þetta kemur fram á heimasíðu félagsins. Ribéry skrifar undir tveggja ára samning við ítalska A-deildarfélagið, en hann kemur til félagsins á frjálsri sölu. Ribéry varð samningslaus hjá þýska stórliðinu Bayern München í lok júní en hann hefur leikið í Þýskalandi með Bæjurum frá árinu 2007. Frakkinn er 36 ára og varð níu sinnum Þýskalandsmeistari með Bayern München og sex sinn- um bikarmeistari. Franck Ribéry mun leika á Ítalíu AFP Ítalía Franck Ribery söðlar um. 0:1 Hlín Eiríksdóttir 66. I Gul spjöldGrace Rapp (Selfossi), Hall- bera Guðný Gísladóttir (Val). Dómari: Steinar Berg Sævarsson, 6. Áhorfendur: 311. SELFOSS – VALUR 0:1 M Allison Murphy (Selfossi) Cassie Boren (Selfossi) Grace Rapp (Selfossi) Kelsey Wys (Selfossi) Fanndís Friðriksdóttir (Val) Guðný Árnadóttir (Val) Hlín Eiríksdóttir (Val) Sandra Sigurðardóttir (Val) Anton Gylfi Pálsson og Jónas Elías- son eru á meðal 23 dómarapara sem dæma á EM karla í handbolta sem fram fer í Svíþjóð, Austurríki og Nor- egi í janúar. Þátttökuþjóðirnar á EM eru 24 í fyrsta skipti, en þær voru áður 16. Því hefur dómarapörum á mótinu verið fjölgað. Samkvæmt heimasíðu EHF eru þeir á meðal ellefu dómara- para sem dæma í undanriðlum og halda svo heim á leið að þeim loknum. Þeir félagar hafa dæmt saman á HM og Ólympíuleikum, en um fyrsta Evr- ópumót dómaraparsins er að ræða.  Bandaríkjamaðurinn Evan Singlet- ary mun leika með ÍR í úrvalsdeild karla í körfuknattleik á komandi leik- tíð. Singletary er leikstjórnandi og lék með Pardubice í efstu deild Tékklands á síðustu leiktíð og er annar leik- maðurinn sem skrifar undir í Breið- holtinu á stuttum tíma. Roberto Kovac skrifaði undir samning við félagið í vik- unni, en hann var drjúgur fyrir Sviss í landsleiknum í gær. Eitt ogannað Þýskaland Meistarabikarinn: Flensburg – Kiel .................................. 28:28  Flensburg vann 32:31 eftir vítakeppni.  Gísli Þorgeir Kristjánsson var ekki í leikmannahópi Kiel. Danmörk Bikarkeppni 16-liða úrslit: Sydhavsöerne – GOG .......................... 25:28  Óðinn Þór Ríkharðsson skoraði 4 mörk fyrir GOG en Arnar Freyr Arnarsson skor- aði ekki. Viktor Gísli Hallgrímsson ver mark liðsins.  Forkeppni EM karla H-riðill: Sviss – Ísland...................................... 109:85  Lokastaðan: Sviss, Ísland og Búlgaría öll með 6 stig. Sviss kemst áfram með flest stig í plús.  Stjarnan hefur ráðið Margréti Stur- laugsdóttur til að stýra kvennaliði félagsins í körfuknattleik næstu þrjú árin. Stjarnan tilkynnti í júní að liðið myndi draga kvennaliðið úr keppni í efstu deild og senda liðið til keppni í 1. deild í staðinn. Margir leikmenn hefðu yfirgefið félagið og fram undan væri tími uppbygg- ingar þar sem leikmenn í yngri flokkum félagsins yrðu mótaðir. Í tilkynningu frá Stjörnunni segir meðal annars: „Með þessari ráðn- ingu sýnir Kkd Stjörnunnar að yfir- lýst markmið um uppbyggingu voru ekki orðin tóm, enda eru fáir þjálfarar á Ís- landi sem hafa meiri metnað fyrir uppbygg- ingu körfubolt- ans en Margrét. Hún hefur sann- að það oftar en einu sinni og í raun óþarfi að tí- unda það fyrir körfubolta- áhugakonum og -mönnum á Íslandi. Fyrr í sumar varð hún fyrst ís- lenskra kvenna til að útskrifast með FECC gráðu FIBA.“ Margrét Sturlaugsdóttir stýrir uppbyggingunni Margrét Sturlaugsdóttir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.