Morgunblaðið - 22.08.2019, Qupperneq 54
54 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. ÁGÚST 2019
KRINGLAN
KAHLA Cupit
drykkjarmál
Cupit 35cl - 2.590,-
Cupit 47cl - 2.990,-
Lok á drykkjarmál - 490,-
VIÐTAL
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Hvítur, hvítur dagur, önnur kvik-
mynd leikstjórans Hlyns Pálmasonar
í fullri lengd, verður frumsýnd hér á
landi 6. september en hún var heims-
frumsýnd á kvikmyndahátíðinni í
Cannes í maí og hlaut Ingvar E. Sig-
urðsson, sem fer með aðalhlutverk
myndarinnar, verðlaun sem besti
leikarinn á Critics’ Week sem er ein
af hliðardagskrám hátíðarinnar.
Ingvar fer með hlutverk Ingi-
mundar, lögreglustjóra sem býr í
smábæ úti á landi og hefur verið í
starfsleyfi frá því eiginkona hans lést
af slysförum. Hann vinnur hörðum
höndum að því að gera upp hús fyrir
dóttur sína og barnabarn, unga
stúlku sem leikin er af dóttur Hlyns,
Ídu Mekkín. Ingimund grunar að
eiginkona hans hafi haldið framhjá
honum með manni í bænum og þessi
grunur verður fljótlega að þráhyggju
og ljóst að mikil reiði og sorg kraum-
ar í Ingimundi og aðeins spurning
hvenær hann muni gjósa en ekki
hvort.
Dóttir Hlyns leikur stórvel í mynd-
inni og þau Ingvar ná vel saman.
Hlynur segir tökurnar oft hafa reynt
á dóttur hans en þau feðginin séu vön
því að vinna saman. „Við höfum alltaf
verið að brasa eitthvað, búa til senur
og vídeóverk og taka ljósmyndir,
þannig að mér fannst þetta svo eðli-
legt, þessi þróun, og henni líka held
ég. Ég held að hún hafi haft gaman af
þessu þótt sumar senurnar hafi verið
gríðarlega erfiðar,“ segir hann.
Gott að búa í Hornafirði
Hlynur nam við Danska kvik-
myndaskólann í Kaupmannahöfn og
býr nú á Höfn í Hornafirði sem er
sögusvið myndarinnar. Hlynur ólst
þar upp og sneri aftur eftir tíu ára
búsetu í Danmörku. Hann segir gott
að búa á Höfn. „Það er eins og tím-
arnir séu fleiri í sólarhringnum, mað-
ur afkastar meiru,“ segir hann um
æskuslóðirnar. „Mér hefur alltaf þótt
gott að vera í Hornafirði, það er
margbreytileg náttúra í kring og fal-
legt.“ Veðrið er líka síbreytilegt þar
líkt og annars staðar á Íslandi og
kemur töluvert við sögu í kvikmynd-
inni, m.a. hvítaþoka, rigning og rok.
Húsið sem Ingimundur er að gera
upp í myndinni er í eigu Hlyns, sem
er að byggja það upp og ætlar sér að
hafa þar eins stóran hluta af kvik-
myndaeftirvinnslu og mögulegt er og
stefnir líka að því að bjóða þar upp á
vinnustofudvöl.
Í upphafi myndar sýnir Hlynur
með áhugaverðum hætti hvernig tím-
inn líður frá andláti eiginkonu Ingi-
mundar. Húsið er sýnt frá sama sjón-
arhorni í alls konar veðri og
árstíðirnar líða hjá, hver af annarri,
með sínu skini, skúrum og snjókomu.
Hlynur segist kunna betur við þessa
aðferð en að birta texta sem segi
hversu langt sé um liðið.
Allt jafnmikilvægt
„Ég hef alltaf verið svakalega upp-
tekinn af þessari bíóupplifun. Þú ert
lokaður inni í stóru svörtu rými með
risastórum skjá og ert með hljóð allt í
kringum þig. Þannig að þú getur búið
til rosalega kraftmikla upplifun sem
er ekki bara byggð á narratífum
söguþræði heldur líka hreyfingu,
birtu, litum og fleiru,“ segir Hlynur
um kvikmyndalistina.
Hann bendir á að þeir sem stundi
sjónrænar listir, myndlist og kvik-
myndagerð, fái oft að heyra að mynd-
in skipti mestu máli. „Hún hefur
aldrei gert það fyrir mér,“ segir
Hlynur, honum hafi alltaf þótt
áhugaverðast að allt sé jafnmik-
ilvægt í kvikmyndagerð; hljóðið jafn-
mikilvægt hinu sjónræna, textinn
jafnmikilvægur persónunum og per-
sónurnar jafnmikilvægar söguþræð-
inum. „Ef eitthvað virkar ekki þá
virkar ekki heildin,“ bendir hann á.
Engin endurlit
– Mér finnst frásagnaraðferðir
þínar áhugaverðar í myndinni, þú
sýnir til dæmis nærmyndir af hlutum
sem tengjast eiginkonu Ingimundar
þegar verið er að tala um hana í stað
þess að sýna þann sem talar eða
myndir af henni. Er þetta eitthvað
Verður að vera pláss fyrir ímyndun
Tvær gerðir af ást mætast í Hvítum, hvítum degi, kvikmynd leikstjórans Hlyns Pálmasonar
Lögreglustjóra fer að gruna að eiginkona hans heitin hafi átt í ástarsambandi við annan mann
Ljósmynd/Pierre Caudevelle
Í Cannes Leikstjóri, leikarar og aðrir sem komu að gerð kvikmyndarinnar á heimsfrumsýningu hennar á alþjóð-
legu kvikmyndahátíðinni í Cannes í maí á þessu ári. Kvikmyndin hefur hlotið einróma lof gagnrýnenda.
Rými „Fólk lifir svo ólíku lífi og hefur ólíkar tilfinningar og tilfinningaróf. Það verður að vera pláss fyrir ein-
staklinginn til að ímynda sér,“ segir leikstjórinn og handritshöfundurinn Hlynur Pálmason.
Flosason, Lauritsen og Scheving léku djass
Morgunblaðið/Eggert
Notalegt Gestir nutu veitinga og fagurra djasstóna á Kex hosteli.
Lófatak Gestir voru hæstánægðir með Sigurð Flosason og félaga.