Morgunblaðið - 22.08.2019, Síða 55

Morgunblaðið - 22.08.2019, Síða 55
sem þú lærðir í skóla eða tókst upp eftir ákveðnum leikstjórum? Hvaðan kemur þessi aðferð? „Ég veit það ekki en ég reyndi þessi ár sem ég var í skóla að finna mitt eigið tungumál, ef maður getur sagt sem svo. Ég komst að því mjög snemma að auðvitað væri ég innblás- inn af mörgum hlutum, listamönnum og fólki og reyndi virkilega að finna mitt eigið tungumál því ég vissi að það myndi alltaf verða langmest spennandi ferlið fyrir mig og framtíð- ina. En ég hef alltaf verið mjög upp- tekinn af hlutum og hlutir hafa áhrif á mig þannig að mér fannst spenn- andi að sýna konuna hans, sem er farin, á einhvern hátt sem væri áhugaverður en myndi ekki felast í endurliti,“ útskýrir Hlynur. Hann hafi aldrei upplifað sjálfur endurlit og telji þá aðferð óáhugaverða kvik- myndaklisju sem skili litlu. Hann vilji heldur skapa ákveðinn heim og láta áhorfendur búa til sína eigin mynd af persónunni. „Fólk lifir svo ólíku lífi og hefur ólíkar tilfinningar og tilfinningaróf. Það verður að vera pláss fyrir einstaklinginn til að ímynda sér.“ Tvenns konar ást – Hvaðan kemur þessi saga af Ingimundi? „Þegar ég var búinn með Vetrar- bræður, fyrstu kvikmyndina mína, sem var saga um vöntun á ást, að þrá að vera elskaður og þráður en fá þá þrá ekki uppfyllta, var ég farinn að fá mikinn áhuga á tvenns konar ást. Ein gerðin er þessi saklausa, einfalda og skilyrðislausa ást barns eða barna- barns og hin gerðin er miklu flóknari, þar er ástríða og hún tengist maka. Mig langaði mikið að vinna með þess- ar tvær gerðir af ást og setja þær saman, láta þær vinna á móti og með hvor annarri. Þá byrjaði hægt og ró- lega að mótast þessi saga um Ingi- mund sem var skilinn eftir með fullt af tilfinningum sem hann nær ekki að vinna úr, sorg og reiði og seinna meir þennan stóra efa um hvað þau áttu saman. Hvort þetta hafi verið ekta eða allt einhver svik.“ Hlynur segir fólk oft tala um að tíminn lækni sár á borð við þau sem hljótast af framhjáhaldi. „Ég held að þetta sé nokkuð sem við lifum með og muni aldrei fara og er partur af því sem gerir okkur að áhugaverðum manneskjum.“ Óþægilegar spurningar Í myndinni fer Ingimundur til sál- fræðings og greinilega ekki af fúsum og frjálsum vilja. Sálfræðitíminn minnir í raun meira á yfirheyrslu en samtal, spurningarnar óþægilegar og Hlynur er spurður hvaða hlutverki sálfræðingurinn gegni í frásögninni. „Ég held hann hafi komið mér svolít- ið á óvart þegar ég fór að skrifa. Það var eins og hann væri að spyrja sögu- hetjuna alls kyns spurninga sem ég var að velta fyrir mér og hægt og ró- lega varð hann að karakter. Mér fannst eins og því lengra sem maður færi inn í myndina því meira mætti hann segja,“ svarar Hlynur. Ekki er þó allt hádramatískt í myndinni, sumt býsna spaugilegt. Hlynur segir það með vilja gert og blaðamaður andar léttar. „Mér finnst gott að fólki þyki eitthvað fyndið og það er mikill húmor í myndinni. Ég hef alltaf haft gaman af því þegar fólk veit ekki hvort það á að hlæja en hlær samt. Þegar alvara og húmor er mjög nálægt hvort öðru og maður sér ekki mörkin, ég hef alltaf haft gaman af þannig húmor og mér fannst sjálf- um mjög fyndið að taka upp margar senur, fannst ótrúlega gaman að gera þær margar,“ segir Hlynur kíminn. Ingimundur ráðgáta Hlynur skrifaði handritið með Ingvar í huga en Ingvar lék í stutt- mynd sem var lokaverkefni Hlyns í Danska kvikmyndaskólanum. „Við unnum rosalega vel saman og mér fannst eins og það væri svo margt sem við gætum gert sem við værum ekki búnir að prófa,“ segir Hlynur um leikarann. Möguleikarnir hafi verið miklir og hann hafi langað að skrifa lengri mynd fyrir Ingvar. „Ég byrjaði að þróa og skrifa handritið með hann í huga og dóttur mína, Ídu Mekkín. Ég spurði hann mjög snemma hvort hann væri til í þetta og hann var 100% með. Það gefur manni mikið að vita að einhver sé að skoða og lesa og sé með manni í þessu. Það gefur manni ákveðinn kraft.“ Hlynur segir að sér þyki mest spennandi ef eitthvað sé falið og þess virði að kanna frekar. „Það skiptir mig gríðarlega miklu máli að ég viti ekki allt þannig að fyrir mér var Ingi- mundur oft líka dálítil ráðgáta. Ég skildi ekki alla hans hegðun og ætl- aðist ekki til þess að Ingvar gerði það heldur en sumir leikarar eru svaka- lega góðir að lesa handrit og lesa að- eins dýpra. Mér fannst hann skilja allt svo vel að þessi díalógur með kar- aktera og allt saman varð mjög eðli- legur. Ég las einhvers staðar að mað- ur ætti að halda höfðinu köldu og hjartanu heitu og mér finnst það lýsa ferlinu einna best.“ Persónuleg kvikmyndagerð – Ég ræddi við kvikmyndafróða manneskju eftir sýningu myndar- innar og hún sagðist m.a. sjá teng- ingar við gömlu rússnesku meist- arana, Andrei heitinn Tarkofskíj til dæmis. Hefurðu orðið fyrir áhrifum frá þeim? „Ég man alveg eftir því að hafa séð, eins og þú nefndir, Tarkofskíj, man eftir því að það hafi haft áhrif á mig af því mér fannst einhver vera að gera mjög persónulega sögu. Þetta var persónuleg kvikmyndagerð sem ég þekkti kannski ekkert fyrir þann tíma,“ svarar Hlynur. Þessi tegund kvikmynda sé bæði áhugaverð og geti náð til margra. „Ég man eftir að hafa séð Tarkofskíj í fyrsta sinn og er viss um að það hafi litað mig á ein- hvern hátt.“ Titill myndarinnar er bæði ljóð- rænn og forvitnilegur og í texta í upphafi myndar fær áhorfandinn ákveðna skýringu á honum. Að þegar allt sé hvítt og himinn og jörð mætist geti maður talað við hina dauðu. Þá er hvítur, hvítur dagur. Fallegt, falið og dularfullt Hvíti liturinn, eða litleysið öllu heldur, er líka áberandi í Vetrar- bræðrum og segist Hlynur ekki vita hvort hann sé að leita í hvítan en hann leiti hins vegar alltaf í það sem er falið. „Alveg sama hvort það er landslag eða andlit; ef það er eitthvað falið heldur það mér í gangi,“ út- skýrir hann. „Ég fann þegar ég var að leita að tökustöðum og var að keyra í Oddsskarði, sem er hár fjall- vegur, að þegar þar er skýjað er hvítaþoka. Og það er eitthvað við það að standa úti í dúnalogni og hvíta- þoku, eitthvað stórkostlega fallegt en á sama tíma eitthvað falið og dular- fullt,“ segir Hlynur. Hlynur er þegar farinn að vinna að næstu kvikmynd. „Við erum að þróa verkefni sem heitir Volaða land eftir ljóði Matthíasar Jochumssonar. Það er verkefni sem ég hef verið að þróa frá 2014 og byrjaði á á svipuðum tíma og Hvítum, hvítum degi. Þetta er stórt og metnaðarfullt verkefni sem krefst gríðarlegs undirbúnings þann- ig að við erum á fullu í því.“ Ljósmynd/Pierre Caudevelle Vinir Ingvar og Ída Mekkín í Cannes, perluvinir eins og sjá má. Í blindaþoku Ingvar og Ída Mekkín í hlutverkum Ingimundar og Sölku. MENNING 55 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. ÁGÚST 2019 LAUGAVEGI 24 - REYKJAVÍK - S. 552 0800 SKIPAGÖTU 7 - AKUREYRI - S. 462 4646 GÆÐI – ÞEKKING – ÞJÓNUSTA Ertu klár fyrir veturinn? Við hreinsum úlpur, dúnúlpur, kápur og frakka »Tríó skipað Sigurði Flosasyni á saxófón, danska hammondorgel- leikaranum Kjeld Laur- itsen og Einari Schev- ing á trommur lék á djasskvöldi Kex hostels í fyrrakvöld og að vanda var fjölmennt. Félag- arnir fluttu standarda og frumsamin lög. á Kex hosteli að viðstöddu fjölmenni Myndataka Sumir létu sér nægja að hlusta en aðrir mynduðu með síma. Einbeittir Sigurður og Kjeld Lauritsen eru sjóaðir djasstónlistarmenn líkt og trommuleikarinn Einar Scheving.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.