Morgunblaðið - 22.08.2019, Page 56

Morgunblaðið - 22.08.2019, Page 56
56 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. ÁGÚST 2019 Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is „Mér finnst einstaklega gaman að vinna með unglingum. Þeir eru svo hugmyndaríkir og skemmtilegir. Það er hægt að læra svo mikið af þeim,“ segir Vala Fannell leikstjóri sýningarinnar fml sem stendur fyrir „fokk mæ læf“ sem Leikfélag unga fólksins frumsýnir í Samkomuhús- inu á Akureyri á morgun kl. 17. Samkvæmt upp- lýsingum frá Menningarfélagi Akureyrar er Leikfélag unga fólksins nýtt at- vinnuleikhús á Akureyri sem MAk rekur þar sem krakkar fá tækifæri til að vinna í faglegu umhverfi og segja sögur úr sínum raunveruleika. „Við vorum með opnar áheyrnar- prufur í lok júní og auglýstum eftir unglingum til að taka þátt,“ segir Vala, en alls voru sjö stelpur á aldr- inum 14-16 ára valdar til að vera með. Segir hún töluverðan kynja- halla hafa verið í prufunum, því að- eins tveir strákar skráðu sig í þær. „Auðvitað hefði verið gaman ef kynjaskiptingin í leikhópnum hefði verið jöfn, en við stefnum að því á næstu árum,“ segir Vala og tekur fram að ætlunin sé að vinna árlega nýja sýningu í samvinnu við ung- linga næstu sumur. Tækifæri til að láta í sér heyra Leikhópinn þetta árið skipa Elva Sól Káradóttir, Emma Ósk Baldurs- dóttir, Malín Marta Ægisdóttir, Molly Mitchell, Sigríður Erla Óm- arsdóttir, Sóldís Anna Jónsdóttir og Þorbjörg Þóroddsdóttir. Ljósahönn- uður er Ólafur Ingi Sigurðsson, en Tjörvi Jónsson sér um alla mynd- bandsgerð. „Þetta er mikill hæfi- leikahópur. Stelpurnar hafa komið mér skemmtilega á óvart í kjarki, vilja og hæfileikum.“ Að sögn Völu þróaði hún sýn- inguna í náinni samvinnu við leik- hópinn. „Við könnuðum reynsluheim ungs fólks í dag í gegnum rannsókn- arvinnu, spuna og ýmsar æfingar til að gefa áhorfendum innsýn í þennan heim,“ segir Vala og tekur fram að sýningin fjalli um þær margslungnu hindranir og áskoranir sem móta sjálfsmynd unglingsáranna eins og til dæmis einelti, kvíða, líkams- ímynd, kynvitund, samfélagsmiðla og almenn samskipti við jafningja sem og fullorðna. „Við gætum þess vandlega að það séu engar persónu- greinanlegar upplýsingar í sýning- unni,“ segir Vala, sem skrifaði hand- ritið upp úr samtölum og spuna. Hún segir að sér hafi þótt mjög mikilvægt að sýningin endur- speglaði íslenskan raunveruleika. „Við vonum að verkefnið stuðli að lýðræðislegri virkni barna og ung- menna í samfélaginu og verði þar með hluti af forvarnarstafi þar sem þessi aldurshópur fær tækifæri til að láta til sín heyra og tjá sig um þau málefni sem liggja honum á hjarta,“ segir Vala og bendir á að tilfinnan- legur skortur sé á leiksýningum fyr- ir eldri bekki grunnskólans. „Boðið er upp á barnasýningar og fjöl- skyldusýningar í íslenskum leikhús- um, en það vantar sýningar sem höfða til nemenda gagnfræðaskól- ans,“ segir Vala. Einlægar frásagnir „Um jólin settum við hjá Leiklist- arskóla Leikfélags Akureyrar upp verk sem nefnist Kassi og er eftir kanadískan höfund sem unnið var í samstarfi við unglinga. Það var svo grípandi að vinna með verk sem fjallar um unglinga með orðum ung- linga að okkur langaði til að þróa sambærilegt verkefni hérlendis,“ segir Vala þegar hún er spurð um tilurð sýningarinnar. „Það gerist alltof sjaldan að við fáum að heyra einlægar frásagnir af reynsluheimi unglinga. Okkur fannst mikil vöntun á þessum röddum í íslenku menn- ingarlífi,“ segir Vala, sem kennt hef- ur hjá Leiklistarskóla Leikfélags Akureyrar frá því hún flutti heim til Íslands í fyrra. „Ég lauk leikara- og leikstjórnar- námi frá Kogan Academy of Drama- tic Arts árið 2014 og rak síðan eigið framleiðslufyrirtæki í London þar sem ég var einnig að leikstýra og kenna leiklist þangað til ég flutti heim,“ segir Vala. Hana dreymir um að auka starfsemi Leikfélags unga fólksins þannig að ungt fólk sem langi að starfa að tjaldabaki fái tæki- færi á að vinna sem lærlingar í leik- húsinu. „Það eru svo margir krakkar sem hafa mikinn áhuga á leikhúsi og langar að vinna við leikmynd og bún- inga og ýmis tæknimál en hafa eng- an áhuga á að standa á sviði. Í dag hafa þau engin tækifæri til að starfa í leikhúsi á sínu áhugasviði, en því langar okkur að breyta.“ Að sögn Völu er gert ráð fyrir fjórum sýningum á fml en þeim verði fjölgað ef aðsókn leyfi. Segir hún fml ætlaða breiðum aldurshópi. „Auðvitað reiknum við fyrst og fremst með að unglingar og for- eldrar þeirra komi á sýninguna, sem tekur um klukkutíma í flutningi. Ég held hins vegar að allir geti lært mikið af þessari sýningu, því þetta er svo áhugavert sjónarhorn sem við heyrum ekki svo oft,“ segir Vala. Næstu sýningar verða föstudag- inn 30. ágúst og sunnudaginn 1. september kl. 17 alla daga. Athygli er vakin á því að aðgangur er ókeyp- is fyrir 16 ára og yngri, en engu að síður þarf að bóka miða í gegnum miðasölu MAk í síma 450-1000 eða á netfanginu: midasala@mak.is. „Með því að hafa ókeypis fyrir ungt fólk viljum við leggja okkar af mörkum til að allir hafi tækifæri til að koma á sýninguna óháð efnahag,“ segir Vala að lokum. „Þetta er mikill hæfileikahópur“ Ljósmynd/Auðunn Níelsson Kjarkur Stelpurnar sjö sem voru valdar í leikhópinn þetta sumarið eru á aldrinum 14-16 ára.  Leikfélag unga fólksins frumsýnir fml í Samkomuhúsinu á morgun kl. 17  Sýningin kannar reynsluheim unglinga og fjallar m.a. um einelti, kvíða, líkamsímynd, kynvitund og samfélagsmiðla Vala Fannell Tónlistarmaðurinn Júníus Meyvant heldur vestur til Bandaríkjanna í dag til þess að taka þátt í tónlistar- og listahátíðinni THING í Wash- ington. Á ferðalagi sínu mun hann einnig halda tónleika í Portland, San Francisco og Los Angeles, en í september næstkomandi heldur hann til Danmerkur. „Þetta er í fyrsta skipti sem ég spila eitthvað í röð á vesturströnd- inni. Það verður gaman að fikra sig áfram í Ameríku, en svo fer ég beint í annan túr í Danmörku. En við byrjum á Ameríku og sjáum hvað gerist,“ segir Júníus og bætir við að hann hafi alltaf spilað fyrir fullu húsi í Bandaríkjunum. „Og bara eiginlega alltaf í Evrópu líka, þetta hefur alltaf gengið mjög vel. Það er bara mikilvægt að halda rétt á spöðunum þegar ferðalög eru tekin,“ bætir hann við. Júníus er listamannsnafn Unnars Gísla Sigurmundssonar en hann hefur samið og gefið út tónlist sem Júníus Meyvant í nokkur ár. Listamaður Júníus Meyvant á tónleikum. Júníus Meyvant túrar í Ameríku Late Summer Show, eða Síðsumars- sýning, verður opnuð í dag kl. 17 í galleríinu i8 við Tryggvagötu 16. Á sýningunni má sjá verk nokk- urra myndlistarmanna sem allir eru konur. Listamennirnir eru þær Mar- grét H. Blöndal, Ásgerður Búa- dóttir, Eyborg Guðmundsdóttir, Kristín Jónsdóttir frá Munkaþverá, Arna Óttarsdóttir, Ragna Róberts- dóttir, Karin Sander og Júlíana Sveinsdóttir. Sýningunni lýkur 12. október og er galleríið opið frá kl. 11-17 frá þriðjudegi til föstudags og 13-17 á laugardögum. Frekari upplýsingar má finna á vef gallerísins, i8.is. Í i8 Karin Sander er meðal sýnenda. Síðsumarssýning opnuð í dag í i8 VANTAR ÞIG STARFSFÓLK? Suðurlandsbraut 6, Rvk | S. 419 9000 info@handafl.is | handafl.is Við útvegum hæfa starfskrafta í flestar greinar atvinnulífsins Traust og fagleg starfsmannaveita sem þjónað hefur íslenskum fyrirtækjum í áraraðir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.