Morgunblaðið - 22.08.2019, Page 58
58 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. ÁGÚST 2019
icewear.is Opið til 21:00 alla dagaLAUGAVEGI 91
ÚTSALA
FATNAÐUR SKÓR
OG FYLGIHLUTIR
30-50%
AFSLÁTTUR
AF ÖLLUM ÚTSÖLUVÖRUM
Nike skór frá kr 4.995.-
HellyHansen parka frá k
r17.495.-
Icewear Dúnjakkar frá kr 8.
495.-
Nike úlpur frá kr 14.745.
-
ASOLO gönguskór frá kr 9.9
95.-
Adidas hettupeysur frá kr 4.
995.-
Teitur Gissurarson
teitur@mbl.is
Ný myndlistarsýning Höllu Gunn-
arsdóttur, Seeing Alba, verður opnuð
í Listastofunni í dag. Til sýnis verða
bæði olíumálverk og teikningar þar
sem viðfangsefnið er dýr, heimur
þeirra og velferð. Halla segir að hún
hafi verið innblásin eftir ferðir sínar
til Asíu, Indlands og Indónesíu, þar
sem hún komst í kynni við ýmis dýr
og upplifði áhrif plastmengunar á
dýraríkið frá fyrstu hendi. Segir hún
jafnframt að Alba, sem sýningin er
nefnd eftir, sé eini albínóaórangút-
aninn sem vitað er um, en eftir að
Ölbu var bjargað frá áralangri inni-
lokun og illri meðferð varð hún að
eins konar táknmynd fyrir dýra-
vernd.
Kýrnar fullar af plasti
„Ég hef verið að vinna með götu-
dýrum, bæði í Indónesíu og Ind-
landi,“ segir Halla og segir frá því að
umhverfis- og dýravernd hafi lengi
verið henni hugleikin. Hún hafi sem
dæmi lagt mikla stund á köfun í
Indónesíu, þar sem hún sá hversu
mikil plastmengun var í sjónum og
segir: „Og í Indlandi voru kýr að
koma inn á dýraspítala fullar af plasti.
Þar eru þær heilagar og má því ekki
svæfa þær og var dauðdaginn því
hægur og sársaukafullur.“
Hafi því verkin á sýningunni
„spunnist“ út frá þessari upplifun og
segir Halla: „Ég hef alltaf haft áhuga
á dýravelferð.“
Spurð frekar út í verkin á sýning-
unni segir hún að til sýnis verði 25 ol-
íuverk, og um 50 teikningar. Eins og
áður segir eru margar myndanna
svokölluð „dýraportrett“, af öpum og
fílum sem dæmi, og sýna dýrin í um-
hverfi sem minnir á heimkynni þeirra
sem hefur verið eytt af mannavöld-
um. „Mikið af verkunum er ann-
aðhvort unnið þegar ég er á staðnum
með dýrunum eða út frá ljósmyndum
sem ég hef sjálf tekið,“ segir Halla.
Halla er búsett í Flórens á Ítalíu og
hefur að auki við langar ferðir sínar
til Indlands og Indónesíu ferðast víða
um heim til að fjalla um dýr og um-
hverfisvernd. Sem dæmi ferðaðist
hún á árið 2015 á norðurslóðir með
hópi vísindamanna og náttúrulífs-
ljósmyndara til að vekja athygli á
áhrifum loftslagsbreytinga á svæð-
inu.
Spurð frekar út í Ölbu, ofan-
nefndan albínóaórangútan segir
Halla: „Hann fannst vegna þess að
dýraverndunarsamtök í Indónesíu
fengu tilkynningu um að það væri ór-
angútan í litlu búri. Þeir fengu að
taka hann og endurhæfa hann, og
náðu að koma honum aftur út í villta
náttúru, á vernduðu svæði. Vegna
þess hve sérstök Alba er í útliti varð
hún að táknmynd fyrir þær áskoranir
sem þeir sem vinna í þessu standa
frammi fyrir.“
Albínóinn Málverk Höllu Gunnarsdóttur af órangútanapanum Ölbu sem var
bjargað frá illri meðferð og komið aftur út í villta indónesíska náttúru.
Dýravernd í fyrirrúmi
Halla Gunnarsdóttir dvaldi í Indónesíu Sá áhrif plast-
mengunar á dýraríkið Dýraportrett uppistaða sýningar
Borgarsögusafn býður í ókeypis göngu í kvöld kl. 20 sem
ber yfirskriftina „Suðupotturinn Reykjavík 1890-1920“.
Í henni verða fólksflutningar til Íslands fyrr á tímum í
brennidepli og verður gengið um Kvosina og sagðar
sögur af aðfluttu fólki, bæði úr íslenskum sveitum og
utanlands frá, sem mótaði bæjarlífið á tímabilinu 1890-
1920 þegar Reykjavík breyttist úr smábæ í litla höfuð-
borg.
Leiðsögumaður verður Íris Ellenberger, lektor í sam-
félagsgreinum við menntavísindasvið Háskóla Íslands,
en hún hefur m.a. rannsakað samblöndun, núning og
átök innlendrar og erlendrar menningar á Íslandi á 19. og 20. öld.
Lagt verður af stað frá Grófarhúsi í Kvosinni kl. 20.
Suðupotturinn Reykjavík
Íris Ellenberger
Myndlistarmaðurinn Ragnar
Kjartansson hlaut í gær finnsku
Ars Fennica-verðlaunin við hátíð-
lega athöfn í Amos Rex-safninu í
Helsinki, að því er greint var frá
á facebooksíðu íslenska sendi-
ráðsins þar í borg.
Tveir íslenskir listamenn, Egill
Sæbjörnsson og Ragnar, voru í
hópi þeirra fimm listamanna sem
tilnefndir voru í fyrra til verð-
launanna sem afhent eru annað
hvert ár. Verðlaunahafi hlýtur
40.000 evrur sem er jafnvirði
rúmra 5,6 milljóna króna.
„Ars Fennica-sjóðurinn var
stofnaður af hjónunum Henna og
Pertti Niemistö árið 1990 og er
markmið sjóðsins er að örva list-
sköpun, skapa alþjóðleg tengsl í
heimi myndlistar og vekja áhuga
almennings á listum. Sjóðurinn
veitir verðlaunin annað hvert ár
til myndlistarmanns sem þykir
hafa skarað fram úr og eru verð-
launin 40.000 evrur,“ segir í til-
kynningu sendiráðsins á Face-
book og að í ár hafi Roland
Wetzel, safn-
vörður Tinguely
safnsins í Basel
í Sviss, valið
vinningshafann
fyrir hönd
sjóðsins.
Auk Ragnars
Kjartanssonar
og Egils voru
þrír norrænir
listamenn til-
nefndir til verð-
launanna, þau Petri Ala-Maunus
og Aurora Reinhard frá Finn-
landi og Miriam Bäckström frá
Svíþjóð. Samsýning á verkum
þessara fimm listamanna stendur
yfir í Amos Rex-safninu í Hels-
inki og hefur vakið mikla athygli,
samkvæmt tilkynningunni. Þar
segir að Íslendingar megi vera
afar stoltir af því að hafa átt
tvær af fimm tilnefningum í ár en
aðeins einn Íslendingur, Hreinn
Friðfinnsson, hefur hlotið þessi
verðlaun áður og var það árið
2000.
Ragnar Kjartansson hlaut
Ars Fennica-verðlaunin
Ragnar
Kjartansson