Morgunblaðið - 14.08.2019, Side 1

Morgunblaðið - 14.08.2019, Side 1
HÖNNUN BLÓMSTRANDI GREINHAGUR ARGENTÍNU dæmi Givenchy um skemmtilegan húmor í hönnun. 4 Argentínski pesinn er í frjálsu falli og forseti landsins, Mauricio Macri, á undir högg að sækja. 14 VIÐSKIPTA 4 Gott Langtímaáætlanir geta reynst þrautin þyngri hér á landi, að mati framkvæmdastjóra Epals, sem sækir orku í ferðum upp á fjöll. MIÐVIKUDAGUR 14. ÁGÚST 2019 Endurskoðun • Skattur • Ráðgjöf www.grantthornton.is Grant Thornton endurskoðun ehf. er íslenskt aðildarfélag Grant Thornton International Ltd., sem er eitt af fremstu alþjóðlegu samtökum sjálfstæðra endurskoðunar og ráðgjafarfyrirtækja. Grant Thornton endurskoðun ehf. sérhæfir sig í að aðstoða rekstraraðila við að nýta tækifæri til vaxtar og bættrar afkomu með skilvirkri ráðgjöf. Framsýnn hópur starfsmanna, undir stjórn eigenda, sem ávallt eru aðgengilegir viðskiptavinum, nýta þekkingu og reynslu sína til að greina flókin málefni og finna lausnir fyrir viðskiptavini sína, hvort sem það eru einkarekin, skráð félög eða opinberar stofnanir. Yfir 35.000 starfsmenn Grant Thornton fyrirtækja í meira en 100 þjóðlöndum, leggja metnað sinn í að vinna að hag viðskiptavina, samstarfsmanna og samfélagsins sem þeir starfa í. Endurskoðun | Skattur | Ráðgjöf Ernst & Young ehf. Borgartúni 30, 105 Reykjavík ey.is Alþjóðleg þekking - persónuleg þjónusta Hræringar á steypumarkaði Steypuframleiðandinn Steinsteypan hefur aukið framleiðslu sína um 30% síðastliðna fjóra mánuði að sögn Pét- urs Ingasonar, framkvæmdastjóra félagsins. Fyrirtækið hóf starfsemi í október á síðasta ári og að sögn Pét- urs er markaðurinn líklega aðeins að skreppa saman í ár. Svo virðist sem fyrirtækið sé að ná að hrista aðeins upp í samkeppninni á markaðanum en stærri fyrirtæki á markaðnum, BM Vallá og Steypustöðin, gera bæði ráð fyrir samdrætti í framleiðslu í ár miðað við í fyrra. „Markaðurinn er örugglega örlítið minni og er hugsanlega líka aðeins að færast til. Við erum að vaxa í hverjum mánuði,“ segir Pétur og bætir við að fyrirtækið eigi enn þónokkuð inni. Að sögn Lárusar Dags Pálssonar, stjórnarformanns BM Vallár, var viðbúið að það kæmi til samdráttar í steypuframleiðslu á þessu ári. „Ég hugsa að það verði 20-25% sam- dráttur á milli ára, allavega,“ segir Lárus sem segir reksturinn hafa gengið ágætlega það sem af er ári þrátt fyrir samdrátt í framleiðslu. Sér í lagi á öðrum ársfjórðungi. Hann segir steypuframkvæmdir á Reykja- víkursvæðinu hafa náð toppi í fyrra í þessari hagsveiflu. „Árið í fyrra var mjög gott og síð- ustu þrjú ár hafa verið góð. Þetta verður líklega eitthvað lakara. En við bjuggumst við samdrætti. Eins og al- mennt er talað um virðist vera eitt- hvert misræmi á milli framboðs og eftirspurnar á íbúðamarkaðnum. Það er tiltölulega mikið til af dýrum íbúð- um en vantar ennþá ódýrari íbúðir fyrir m.a. fyrstu kaupendur á viðráð- anlegra verði,“ segir Lárus en tekur fram að hann búist ekki við kreppu framundan. Segir hann t.a.m. ýmis opinber verkefni vera á döfinni. Að sögn Björns Inga Victorssonar hjá Steypustöðinni er útlit fyrir að steypuframleiðsla fyrirtækisins verði 10-20% minni í ár heldur en í fyrra en árið 2018 var besta árið í sögu Steypustöðvarinnar „Þessi bransi er í nánu sambandi við efnahagslífið al- mennt og við fundum fyrir því strax í fyrra að það fór að vera erfiðara fyrir menn að fjármagna ný verkefni. Það er náttúrlega mjög þungt í öllum bönkum og það er erfitt fyrir verk- taka að fá fjármagn,“ segir Björn. „En við erum með ágæta verk- efnastöðu og erum ekkert að kvarta. Við fylgjumst vel með. Þetta er mark- aður sem er fyrstur að finna fyrir því þegar það fer að ganga illa,“ segir Björn. Pétur Hreinsson peturh@mbl.is Útlit er fyrir töluverðan samdrátt í steypufram- leiðslu hjá BM Vallá og Steypustöðinni á árinu. Steinsteypan eykur fram- leiðslu mánuð eftir mánuð. Morgunblaðið/Eggert Útlit er fyrir 10-25% samdrátt í steypframleiðslu hjá BM Vallá og Steypu- stöðinni í ár. Steinsteypan, sem hóf rekstur sl. haust eykur hlutdeild sína. EUR/ISK 14.2.‘19 13.8.‘19 145 140 135 130 125 134,15 138,75 Úrvalsvísitalan 2.100 2.000 1.900 1.800 1.700 1.600 1.500 14.2.‘19 13.8.‘19 1.752,94 2.058,96 Sigríður Margrét Oddsdóttir, fram- kvæmdastjóri Lyfju, segir að fyrir- tækið ætli sér að fjölga apótekum í framtíðinni, en fyrirtækið rekur keðju apóteka um land allt, alls 33 að tölu. Hún segir í samtali við Við- skiptaMoggann að á 10 ára fresti myndist tækifæri fyrir 7-10 ný apótek á landinu, miðað við þjónustustig dagsins í dag. „Það er í raun stefna okkar að fjölga apótekum. Staðsetning skiptir okkur gríðarlega miklu máli, eins og aðra smásölu. Stefnan er að vera þar sem er hentugast fyrir við- skiptavininn að sækja þjónustuna.“ Hún segir að þrekvirki hafi verið unnið hér á landi í uppbyggingu lyfja- verslana og þjónustu þeirra síðan sér- leyfi í lyfjaverslun var afnumið árið 1996, og þar hafi Lyfja leikið lykilhlut- verk. Hún segir að gríðarlega margar og miklar áskoranir séu fram undan í tengslum við íslenska heilbrigðis- þjónustu og margt sé hægt að læra af samanburði við nágrannalöndin. „Við sjáum að við erum með fleiri apótek á hvern íbúa en Norðurlandaþjóðirnar, fleiri lyfjafræðinga starfandi á hvern íbúa, og allir Íslendingar í þéttbýli hafa aðgengi að apóteki í innan við tíu mínútna akstursfjarlægð. Þarna hef- ur átt sér stað mjög áhugaverð þró- un, og mikið þrekvirki hefur verið unnið í uppbyggingu á síðustu árum og áratugum.“ Sigríður kom til Lyfju frá upplýs- ingatæknifyrirtækinu Já og sér mikil tækifæri í hagnýtingu tækninnar. „Við hjá Lyfju erum til að mynda komin á fullt með að þróa nýjar stafrænar lausnir.“ Lyfja ætlar sér að stækka Morgunblaðið/Eggert Sigríður Margrét segir staðsetningu verslana skipta miklu máli. Framkvæmdastjóri Lyfju segir að apótek verði þró- uð áfram með hliðsjón af því að heilbrigði er lífsstíll. 8

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.