Morgunblaðið - 14.08.2019, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 14.08.2019, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. ÁGÚST 2019FRÉTTIR Diklofenak Apofri hlaup, 11,6 mg/g, inniheldur diclofenac tvíetýlamín sem er bólgueyðandi og dregur úr verk. Diklofenak Apofri er notað til meðferðar á staðbundnum verk í tengslum við meiðsli í vöðva eða lið. Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og í fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á www.serlyfjaskra.is. DIKLOFENAK APOFRI HLAUP - BÓLGUEYÐANDI OG DREGUR ÚR VERK - Húsgagnaverslunin Epal skipar sérstakan sess í hjörtum þeirra Íslendinga sem hafa smekk fyrir huggulegum mublum. Er merki- legt að hugsa til þess að búðin fagnar 45 ára afmæli á næsta ári og segir Kjartan Páll fram- kvæmdastjóri að ýmislegt skemmtilegt sé í bígerð fyrir af- mælisárið. Undanfarin ár hefur Epal dafnað vel og rekur núna fjórar verslanir á höfuðborg- arsvæðinu auk vefverslunarinnar Epal.is. Hverjar eru helstu áskoranirnar í rekstrinum þessi misserin? Helstu áskoranirnar eru aug- ljóslega þær miklu sveiflur sem við þurfum að laga okkur að. Gengið hefur gríðarleg áhrif á fyrirtæki sem standa í innflutn- ingi og getur reynst þrautin þyngri að gera langtímaáætlanir eða reyna yfir höfuð að spá langt fram í tímann. Við störfum við að kynna, miðla og selja fallega hönnun og höfum lagt mikinn metnað í að styðja við bakið á íslenskum hönnuðum og erum stolt af því samstarfi. Hins vegar teljum við að það skorti nokkuð á skýra stefnu stjórnvalda þegar kemur að íslenskri hönnun. Það mætti fjárfesta betur í bak- landinu en mikill ávinningur væri af því – hönnun er blómstrandi atvinnugrein sem hefur jákvæð áhrif á efnahagslífið og ímynd okkar út á við. Hvaða bók hefur haft mest áhrif á hvernig þú starfar? Þær eru margar, en mér er minnisstæð bókin One Minute Manager eftir Ken Blanchard og Spencer Johnson, sem hefur reynst mér ágætlega. Ég rifjaði hana upp nýverið og þó að hún hafi verið gefin út árið 1982 hefur hún aldeilis staðist tímans tönn og bæði sparað mér tíma og hjálpað mér að auka skilvirkni. Hvað gerirðu til að fá orku og innblástur í starfi? Fjallgöngur eru auðvitað enda- laus uppspretta orku og innblást- urs. Ég myndi segja að ég við- haldi þekkingu og sæki innblástur með því að vera beintengdur at- vinnulífinu og þeim geira sem við störfum í. Ég ferðast mikið og heimsæki fyrirtæki, viðskiptavini og hönnuði og ræði við fólk sem miðlar af reynslu sinni og segir frá áhugaverðri þróun. Hvað myndirðu læra ef þú fengir að bæta við þig nýrri gráðu? Það væri væntanlega innan- hússarkitektúr, sem tengist auð- vitað beint við starf mitt og þá hugsjón sem Epal stendur fyrir. Ég hefði gaman af að læra meira um hönnun á fræðilegu nótunum og auka aðeins á dýptina. SVIPMYND Kjartan Páll Eyjólfsson, framkvæmdastjóri Epal Skýrari stefnu vantar þegar kemur að íslenskri hönnun Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Kjartan segir sveiflur í gengi krónunnar gera fyrirtækjum eins og Epal lífið leitt og flækja áætlanagerð. NÁM: Fellaskóli; Fjölbrautaskólinn í Breiðholti – viðskiptabraut; BS í markaðsfræði frá Coastal Carolina University 2002. STÖRF: Mjólkursamsalan – sölu- og markaðsfulltrúi 1994-1998; Sól Víking – sölu- og markaðsfulltrúi 1998-2000; Ölgerðin Egill Skallagrímsson – vöruflokkastjóri 2001-2002; sölustjóri 2002- 2004 og framkvæmdastjóri 2004-2008; Epal hf. – framkvæmda- stjóri frá 2008. ÁHUGAMÁL: Útivera, ferðalög og kvikmyndir. FJÖLSKYLDUHAGIR: Kvæntur Hildigunni Garðarsdóttur, flug- freyju hjá Icelandair, og á tvo syni: Andra Fannar og Garðar Sölva. HIN HLIÐIN AUKAHLUTURINN Það er alltaf gaman þegar uppátæki hönnuða stóru tískuhúsanna heppn- ast vel. Nýja kortaveskið frá Giv- enchy er gott dæmi um skemmti- legan húmor í hönnun því það sem við fyrstu sýn virðist ósköp venju- legt og stílhreint kortaveski úr hvítu leðri reynist þvert á móti vera sjálf- lýsandi lítill aukahlutur sem skín skært í útfjólubláu ljósi. Hér er komið veski fyrir fólkið sem vill ekki endilega láta mikið á sér bera á daginn, en breytist í gleði- ljón á kvöldin og er hrókur alls fagn- aðar á skemmtistöðunum. Eins og vera ber með framleiðslu Givenchy er veskið allt annað en ódýrt og kostar 264 evrur hjá net- verslun MrPorter.com. En það er ekkert miðað við viðtökurnar hjá vinahópnum þegar eiturgrænt gló- andi veskið er dregið fram á næsta djammi. ai@mbl.is Liturinn er sterkastur undir út- fjólubláu ljósi skemmtistaðar. Veski sem lýsir í myrkri GRÆJAN Að margra mati eiga Galaxy Note- símarnir frá Samsung skilið að vera kallaðir konungar snjallsímanna. Í þessum símum tjaldar kóreski tæknirisinn öllu til með leiftur- snöggum örgjörvum fullkomnum myndavélum, og svo er snerti- skjáspenninn vitaskuld á sínum stað. Í síðustu viku var hul- unni svipt af Galaxy Note 10 og lofa fyrstu umsagnir góðu. Meðal breytinga frá síðustu kynslóð er að nú má velja á milli tveggja stærða, þar sem stærri út- gáfan, Note 10+, er með 6,8 tommu skjá. Stærri út- gáfan er líka með sjöfalt meira vinnsluminni og tvö- falt stærri harðan disk. Aðalmyndavélin á Note 10+ er með þrjár linsur, sem þýðir að ljósmynd- arinn getur brugðið á leik með aðdrátt og skerpu, og hugbúnaður í símanum bætir stöðugleika mynd- bandsupptaka svo að þær leiki ekki á reiðiskjálfi við spilun. Samsung gleymir heldur ekki smáatriðunum og er búið að færa myndavélina sem vísar að notand- anum nær miðju skjásins til að fram- kalla náttúrulegra augnsamband í myndsímtölum. ai@mbl.is Nýjasti dráttarklárinn frá Samsung er mættur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.