Morgunblaðið - 21.08.2019, Qupperneq 1
SPENNANDITÍMAR FRAMUNDANFLYTJA ÚT FISKAFURÐIR
orm-sundgleraugun mæla getu sundkappa á nýstárlegan hátt 4
Ungir frumkvöðlar vilja stuðla að aukn-
um útflutningi íslenskra fiskafurða.
Stutt er í opnun Captain’s Box.
VIÐSKIPTA
4
F
Jónas Þór segist spenntur fyrir skráningu Kaldalóns
hf. á First North-markaðinn á næstunni. Að hans
sögn eru spennandi verkefni í bígerð.11
MIÐVIKUDAGUR 21. ÁGÚST 2019
Endurskoðun • Skattur • Ráðgjöf www.grantthornton.is
Grant Thornton endurskoðun ehf. er íslenskt aðildarfélag Grant Thornton International Ltd., sem er eitt af fremstu alþjóðlegu samtökum sjálfstæðra endurskoðunar og ráðgjafarfyrirtækja. Grant Thornton
endurskoðun ehf. sérhæfir sig í að aðstoða rekstraraðila við að nýta tækifæri til vaxtar og bættrar afkomu með skilvirkri ráðgjöf. Framsýnn hópur starfsmanna, undir stjórn eigenda, sem ávallt eru aðgengilegir
viðskiptavinum, nýta þekkingu og reynslu sína til að greina flókin málefni og finna lausnir fyrir viðskiptavini sína, hvort sem það eru einkarekin, skráð félög eða opinberar stofnanir. Yfir 35.000 starfsmenn Grant
Thornton fyrirtækja í meira en 100 þjóðlöndum, leggja metnað sinn í að vinna að hag viðskiptavina, samstarfsmanna og samfélagsins sem þeir starfa í.
Endurskoðun | Skattur | Ráðgjöf
Ernst & Young ehf. Borgartúni 30, 105 Reykjavík
ey.is
Alþjóðleg þekking - persónuleg þjónusta
Var í raun gjaldþrota á aðfangadag
Skuldabréfaeigendur sem þátt tóku í að
bjarga WOW air frá gjaldþroti í september í
fyrra höfðu heimild til að gjaldfella skulda-
bréfin á aðfangadag í fyrra. Sú heimild virkj-
aðist þegar í ljós kom að WOW hafði ekki
haldið til haga, á þeim tiltekna degi, 7,5 millj-
ónum evra, jafnvirði ríflega milljarðs króna.
Þeirri fjárhæð átti fyrirtækið að ráðstafa inn
á sérstakan vaxtareikning samkvæmt skil-
málum skuldabréfaútboðsins. Svaraði sú fjár-
hæð til 12,5% þeirrar fjárhæðar sem tókst að
safna í útboðinu. Upplýsingar um vanefndir
WOW air á þessum þætti útgáfunnar eru tí-
undaðar í skýrslu Deloitte til skiptastjóra
WOW air sem kynntar hafa verið.
Hefðu skuldabréfaeigendurnir nýtt sér
heimildina til þess að gjaldfella skuldabréfin
er víst að fyrirtækið hefði rekið hratt í strand.
Ekki hafa komið fram skýringar á því af
hverju ekki var gripið til þeirra úrræða en lík-
legt má telja að yfirstandandi viðræður milli
WOW air og Indigo Partners um mögulega
aðkomu síðarnefnda félagsins að flugfélaginu,
hafi skipt þar sköpum. Vanefndir WOW air á
fyrrnefndum skilyrðum skuldabréfaútboðsins
vitna um hversu bágborin fjárhagsstaða fé-
lagsins var orðin á þessum tíma. Allt frá
haustmánuðum 2018 hafði öllu lausu fé verið
beint í að greiða laun, skatta og lífeyrisiðgjöld
ásamt því sem félagið lagði áherslu á að
greiða inn á risaskuld sína við Isavia líkt og
samið var um í byrjun októbermánuði. Lausa-
fjárstaða WOW air var enda mun bágbornari
í kjölfar skuldabréfaútboðsins en niðurstaða
þess gaf til kynna. Það skýrðist af því að stór
hluti þeirrar fjárhæðar sem safnaðist var
nýttur til að gera upp við lánardrottna félags-
ins. Þeir voru nær allir beggja vegna borðs-
ins, þ.e. bæði gagnvart uppgjörinu og sem
þátttakendur í útboðinu. Þannig hefur skýrsla
Deloitte sýnt fram á að hið minnsta 20,3 millj-
ónir dollara, jafnvirði 2,5 milljarða króna, hafi
farið í slíkt uppgjör. Þar á meðal var greiddur
upp yfirdráttur við Arion banka upp á 5 millj-
ónir dollara, ríflega 10 milljóna gjaldfallin
skuld við Air Lease Corporation og tæplega 5
milljónir evra til flugvélaleigufyrirtækisins
Avolon.
Skiptastjórar kanna nú flöt á því að þessum
greiðslum út úr WOW air verði rift. Gæti það
orðið til þess að fyrrgreindir aðilar verði
dæmdir til þess að endurgreiða þá fjárhæð
sem fleytt var til þeirra í kjölfar útboðsins. Í
einhverjum tilvikum kynni slík niðurstaða að
tvöfalda tjón viðkomandi fyrirtækja af völd-
um falls WOW air.
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Fyrstu brot WOW air á skilmálum
skuldabréfaútboðs sem það lauk
við undir lok septembermánaðar
2018 urðu að veruleika á að-
fangadag í fyrra.
Morgunblaðið/Hari
Í komandi viku verða fimm mánuðir liðnir frá því að WOW air sigldi í þrot eftir sjö ára starfsemi.
EUR/ISK
21.2.‘19 20.8.‘19
145
140
135
130
125
135,55
138,0
Úrvalsvísitalan
2.100
2.000
1.900
1.800
1.700
1.600
1.500
21.2.‘19 20.8.‘19
1.776,01
2.002,02
Í september verða liðin 25 ár frá því
að Skúli Gunnar Sigfússon, eigandi
og stofnandi Subway á Íslandi, sótti
sérleyfi fyrir rekstur veitinga-
húsakeðjunnar hér á landi. Frá þeim
tíma hefur mikið vatn runnið til sjáv-
ar og er Skúli nú orðinn stórtækur
fjárfestir í hinum ýmsu geirum.
Subway-staðirnir eru orðnir 21 tals-
ins, en auk þess er hann með tals-
verðar fjárhæðir bundnar í fast-
eignum og ferðaþjónustufyrir-
tækjum hér á landi.
Að sögn Skúla hefur veitinga-
rekstur í miðborginni þyngst til
muna undanfarin misseri. Það megi
að miklu leyti rekja til hinna ýmsu
gjalda, sem jafnframt veldur því að
fjöldi öflugra rekstraraðila leggur
upp laupana. Nú síðast var greint
frá gjaldþroti Ostabúðarinnar og
Dill Restaurant sem báðir eru stað-
settir í miðborginni. „Maður er
virkilega uggandi yfir þessu því að
þetta eru mjög góðir staðir sem eru
að fara á hausinn. Ef einblínt er á
Reykjavík má fljótt sjá að álögur
hafa snarhækkað, sem allt endar
auðvitað á viðskiptavininum,“ segir
Skúli og bætir við að rekstraraðilar
leiti í auknum mæli til úthverfa höf-
uðborgarsvæðisins. Þess utan telur
hann að fækkun veitingastaða í heild
sé óumflýjanleg.
„Það er engin spurning held ég.
Staðir hafa í auknum mæli verið að
fara í úthverfin sem er að mínu mati
mikið ánægjuefni. Staðan í miðborg-
inni er hins vegar mjög alvarleg og
ég hef áhyggjur af því þegar gæða-
stöðum á borð við Dill og Ostabúðina
er lokað. Það er ekki góð
þróun.“
Veitingastöðum muni fjölga í úthverfum
Morgunblaðið/Eggert
Skúli telur fólk leita í auknum mæli í
úthverfi höfuðborgarsvæðisins.
Skúli í Subway kveðst ugg-
andi yfir stöðu veitinga-
staða í miðborginni.
8