Morgunblaðið - 21.08.2019, Qupperneq 2
2 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. ÁGÚST 2019FRÉTTIR
Mesta lækkun Mesta hækkun
VIKAN Á MÖRKUÐUM
AÐALMARKAÐUR ÁLVERÐ ($/tonn)
SYN
-8,88%
29,75
GRND
+7,40%
36,3
S&P 500 NASDAQ
+2,96%
7.996,346
+2,48%
2.918,09
+0,82%
7.125,0
FTSE 100 NIKKEI 225
21.2.‘19 21.2.‘1920.8.‘19
1.700
80
1.783,08
Unnið í samstarfi við IFS.Hreyfingar frá upphafi viku til kl. 16 í gær.
59,84+1,33%20.677,22
67,07
40
2.100
20.8.‘19
BRENT OLÍUVERÐ ($/tunnu)
1.907,5
Hin sívinsæla haustjógúrt frá Örnu
er nú farin að streyma inn í mat-
vörubúðir landsins. Á síðasta ári
voru framleiddar 200 þúsund ein-
ingar af vörunni sem er sú vinsæl-
asta hjá fyrirtækinu að sögn Hálf-
dáns
Óskarssonar
framkvæmda-
stjóra og stofn-
anda Örnu sem
skilaði 8 milljóna
króna hagnaði á
árinu 2018.
Haustjógúrt er
eins og nafnið
gefur til kynna
árstíðabundin og verður fáanleg
fram til loka nóvember að sögn Hálf-
dáns. Fyrirtækið bætir í á þessu ári
og hyggst framleiða 300 þúsund ein-
ingar en að sögn Hálfdáns hefur
berjatíðin verið gjöful í sumar.
Samvinnuverkefni
„Það hefur ekki verið svona góð
berjatíð fyrir vestan í mörg ár og við
hættum í raun fyrir helgi að taka á
móti berjum vegna þess að við erum
komin með allt sem við þurfum fyrir
þetta árið. Það hefur verið frábær
berjatíð hérna,“ segir Hálfdán í sam-
tali við Morgunblaðið en samtals
fara sjö tonn af aðalbláberjum í
framleiðslu á haustjógúrt Örnu í ár.
Um nokkurs konar samvinnu-
verkefni er að ræða en um 20 manns
hafa séð um að tína berin fyrir Örnu
í sumar.
„Þetta er bara fólk í bænum og
hérna í kring. Við auglýstum eftir
fólki sem var tilbúið að taka þátt í
þessu með okkur. Það hefur skilað
góðum árangri. Það hafa hrúgast inn
berin til okkar og við erum komin
með nóg,“ segir Hálfdán sem segir
ferlið í kringum framleiðsluna á jóg-
úrtinni vinsælu afar ánægjulegt.
Með góða vöru í höndunum
„Þetta er hálfgerð vertíð sem
skellur á í byrjun ágúst. Það er mikil
stemning í kringum þetta. Þetta er
skemmtilegt verkefni og gaman að
geta nýtt villt aðalbláber úr fjöll-
unum og í svona frábæra vöru,“
segir Hálfdán en framleiðslan á
fyrstu haustjógúrtinni hófst árið
2015. Þá þegar var Hálfdán og hans
fólk bjartsýnt á velgengni vörunnar.
„Við vorum búin að vinna vel í
vöruþróun og þess háttar og sáum
fljótt að þetta var frábær vara sem
við vorum með í höndunum. Við vor-
um fullviss um að þetta kæmi til með
að ganga vel,“ segir Hálfdán.
Í ársreikningi Örnu sést að velta
fyrirtækisins nam 1.152 milljónum
króna í fyrra og jukust tekjurnar um
23% á milli ára en í fyrra nam veltan
858 milljónum króna.
„Það var hagnaður á síðasta ári en
hann var ekki mikill, eða um 7,5
milljónir króna. Mjólkuriðnaðurinn
er svolítið skrýtinn bransi og það er
ekki há framlegð í vörunum. En
fyrirtækið er tiltölulega ungt og við
erum sátt við þetta,“ segir Hálfdán.
Fyrirtækið Arna hóf starfsemi ár-
ið 2013 en á fyrsta heila rekstrarári
Örnu námu rekstrartekjurnar 110
milljónum króna. Eignir Örnu námu
409 milljónum króna í árslok 2018.
Skuldir námu 293 milljónum króna.
Eigið fé Örnu nam 116 milljónum og
eiginfjárhlutfall var 28%.
Framleiða 300 þúsund
haustjógúrteiningar
Pétur Hreinsson
peturh@mbl.is
Arna eykur framleiðslu á
haustjógúrtinni vinsælu um
50% á milli ára en heil sjö
tonn af bláberjum fara í
framleiðsluna. Tekjur Örnu
jukust um 23% á milli ára
og námu 1.152 milljónum
króna á árinu 2018.
Morgunblaðið/Pétur Hreinsson
Haustjógúrt Örnu nýtur afar mikilla vinsælda á meðal landsmanna.
Hálfdán
Óskarsson
VEITINGAMARKAÐUR
Veitingastaðirnir Svangi Mangi og
brugghúsið Beljandi eru á förum úr
mathöll Höfða. Á facebooksíðu mat-
hallarinnar var í gær auglýst eftir
áhugasömum rekstraraðila á staðinn,
en Svangi Mangi og Beljandi voru
reknir í sama plássi.
Steingerður Þorgilsdóttir, fram-
kvæmdastjóri mathallarinnar, segir í
samtali við ViðskiptaMoggann að
Svangi Mangi hafi eingöngu verið op-
inn í hádeginu og Beljandi á kvöldin.
Það hafi hins vegar ekki dugað til.
Svangi mangi er í eigu Steingerðar og
Sólveigar Guðmundsdóttur sem eiga
einnig og reka veitingastaðinn Culiac-
an á Suðurlandsbraut og í mathöllinni.
„Svangi Mangi gekk rosalega vel í
hádeginu, en hefði þurft að vera opinn
á kvöldin líka eins og hinir staðirnir í
mathöllinni. Við viljum því fá þarna
inn nýtt blóð, einhvern veitingastað
með sál.“
2.000 gestir á dag
Aðspurð segir Steingerður að
rekstur mathallarinnar hafi gengið
vonum framar allt frá opnun í mars
sl. og á bilinu 1-2.000 gestir komi þar
inn daglega. tobj@mbl.is
Svangi Mangi og Belj-
andi úr mathöll Höfða
Morgunblaðið/Ásdís
Mikil aðsókn hefur verið að mathöll
Höfða frá opnun í mars.
FJARSKIPTI
Fjarskipta- og fjölmiðlafyrirtækið
Sýn hf. sendi í gær frá sér afkomu-
viðvörun. Segir þar að spá fyrir-
tækisins um rekstrarafkomu á yfir-
standandi ári hafi reynst of bjart-
sýnar. Þannig standi líkur til þess að
EBITDA upp á 6,0-6,5 milljarða
króna standist ekki að að gera megi
ráð fyrir að EBITDA-hagnaður
fyrir árið muni nema 5,6 milljörðum
króna. Miðað við neðri mörk fyrri
spár nemur minnkunin um 7% en
tæpum 14% sé miðað við efri
mörkin.
Í kjölfar þess að breytingar voru
gerðar á framkvæmdastjórn fyrir-
tækisins var unnið nýtt spáferli. Sú
vinna leiddi í ljós að tekjur í fjöl-
miðlum og fjarskiptum hafi verið
ofáætlaðar um 400 milljónir króna
og að kostnaður við útsendingar
miðla vanáætlaðar um 160 milljónir.
Fyrri áætlun fyrirtækisins um
frjálst sjóðflæði er óbreytt upp á 1,6-
2,0 milljarða króna. Fyrirtækið segir
að þó sé ljóst að niðurstaðan verði
við neðri enda spárinnar.
Hlutabréfaverð Sýnar lækkaði um
tæp 8,3% í Kauphöll í kjölfar af-
komutilkynningarinnar.
EBITDA Sýnar minnkar
um allt að 900 milljónir
Morgunblaðið/Hari
Eftir lækkun gærdagsins er mark-
aðsvirði Sýnar rúmir 8,8 milljarðar.
VEXTIR
Í gær varð danski bankinn Jyske
Bank fyrstur fjármálastofnana þar í
landi til þess að bjóða upp á neikvæða
innlánsvexti fyrir viðskiptavini sína á
einstaklingssviði. Þeir einstaklingar
sem eru viðskiptavinir við þennan
þriðja stærsta banka Danmerkur og
eiga meira en 7,5 milljónir danskra
króna í innstæðum, rúmar 138 millj-
ónir íslenskra króna, þurfa frá 1. des-
ember næstkomandi að borga 0,6% í
neikvæða vexti á ársgrundvelli, nema
að samið verði um annað, að því er
fram kemur í Berlingske. Nú þegar
bjóða flestir bankar í Danmörku
fyrirtækjum upp á neikvæða vexti.
Þá er einnig hægt að fá sögulega
ódýr húsnæðislán. Samkvæmt And-
ers Dam, bankastjóra Jyske Bank
hefur vaxtaumhverfið í Danmörku
verið í fimm ár samfleytt neikvætt.
„Nú væntum við þess að vextir verði
neikvæðir næstu átta árin. Stýrivext-
ir í Danmörku eru neikvæðir, og með
þeim vaxandi innlánum sem við höf-
um frá einstaklingum erum við til-
neydd til þess að setja tappann í,“
segir Dam. Að sögn hans var nýtt
uppgjör bankans mjög litað af hinu
neikvæða vaxtaumhverfi en bankinn
skilaði 1,1 milljarðs danskra króna
hagnaði á fyrri árshelmingi. Á því
tímabili minnkuðu hreinar vaxta-
tekjur bankans um 6%, sem sam-
svarar um 3,7 milljörðum íslenskra
króna.
Jyske Bank býður
upp á neikvæða vexti
FERÐAÞJÓNUSTA
Davíð Ólafur Ingi-
marsson hefur lát-
ið af störfum sem
forstjóri ferða-
þjónustufyrir-
tækisins Guide to
Iceland. Þetta
staðfesti Davíð í
samtali við Við-
skiptaMoggann. Davíð tók við starfi
forstjóra fyrirtækisins í október í
fyrra en áður starfaði hann sem fjár-
málastjóri þess. Davíð hefur m.a.
einnig starfað sem fjármálastjóri
Greenqloud, og yfirmaður lánamála
og sjóðastýringar hjá Landsvirkjun
og setið í stjórn lífeyrissjóðs.
Davíð lætur
af störfum
Davíð Ólafur
Ingimarsson