Morgunblaðið - 21.08.2019, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 21.08.2019, Qupperneq 4
FARARTÆKIÐ Lesendur ViðskiptaMoggans eru eflaust margir í þeim sporum að eiga erfitt með að gera upp við sig hvaða Bugatti á að kaupa. Chiron, sem var kynntur árið 2016, er ekk- ert slor, með nærri 1.480 hestafla vél, en það er sportútgáfan Divo ekki heldur. Svo kom La Voiture Noire í ljós fyrr á árinu, í aðeins einu eintaki. Nú flækist valið enn frekar, með komu Centodieci, sem smíðaður er í tilefni af 110 ára afmæli Bugatti- merkisins. Aðeins tíu eintök verða í boði, með 1.600 hestafla vél og 20 kg léttari en hefðbundinn Chiron. Nær hann því 100 km hraða á 2,4 sekúndum, og 200 km/klst á 13,1 sekúndu. Tölvan í honum leyfir ekki meiri hraða en 236 km/klst, en á svo miklu spani tæki klukkustund og 36 mínútur að fara frá Reykja- vík til Akureyrar. Þeir sem þekkja bílasöguna sjá strax að útlitið sækir innblástur í EB110, fyrsta ofursportbíl Bugatti, sem kom á markað á 10. áratugn- um, s.s. með fimm hringlaga loft- opum aftan við hurðirnar. Uppsett verð er 10 milljónir dala, og ólík- legt að þau í Molsheim séu mót- tækileg fyrir prútti. ai@mbl.is Að vanda sparar Bugatti ekki hestöflin. Ágætis af- mælisgjöf 4 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. ÁGÚST 2019FRÉTTIR Smiðjuvegi 4C | 200 Kópavogur | Sími 587 2202 | hagblikk@hagblikk.is | hagblikk.is HAGBLIKK Álþakrennur & niðurföll Þakrennurnar eru frá GRÖVIK VERK í Noregi Þær eru einfaldar í uppsetningu HAGBLIKK Ryðga ekki Brotna ekki Litir á lager: Svart, hvítt, ólitað, rautt silfurgrátt og dökkgrátt Í nógu er að snúast hjá Jónasi Þór enda fyrirhugað að skrá Kaldalón hf. á First North-markaðinn innan skamms. Íbúðaþróunarfélagið á nokkrar vel staðsettar lóðir á höfuðborgarsvæðinu og reiknað með að þar rísi um 900 í búðir á næstu fimm til sjö árum. Hverjar eru helstu áskoranirnar í rekstrinum þessi misserin? Helstu áskoranirnar í rekstri Kalda- lóns á næstu árum eru að bjóða vand- aðar og vel hannaðar íbúðir sem henta fyrir mismunandi kaupendahópa á hagkvæmu verði. Þetta er verðugt verkefni á markaði þar sem kröfur byggingaryfirvalda og kaupenda fara sífellt vaxandi og kostnaðarhækkanir bætast við úr öllum áttum. Hver var síðasta ráðstefnan sem þú sóttir? Sótti í mars á þessu ári í ExCel í London hina árlegu Futurebuild- byggingarsýningu sem er ein stærsta byggingartæknisýning heims, hvar hinir ýmsu framleiðendur kynna nýj- asta nýtt í mannvirkjagerð. Hvaða bók hefur haft mest áhrif á hvernig þú starfar? Undir tindum, sjálfsævisaga langafa míns, Böðvars Magnússonar á Laugar- vatni, stendur mér mjög nærri. Hann fæddist á síðari hluta 19. aldar og lifði fram á sjöunda áratug síðustu aldar, og spannar ævi hans því ótrúlegt breyt- ingatímabil í sögu íslensku þjóðar- innar. Hvernig heldurðu þekkingu þinni við? Held þekkingu minni við með því að leita sem víðast fanga og skilja hið upp- byggilega frá því neikvæða. Samstarf með ólíku og framúrskarandi fólki á ýmsum sviðum er oft lykillinn að þessu. Hugsarðu vel um líkamann? Stefnan er að komast flesta daga vikunnar í ræktina. Til þess að nenna því er ég sífellt með í mótun hið full- komna æfingakerfi framtíðarinnar sem ég tel samanstanda af óræðum kokk- teil af spinning, stígvél, tröppuvél og lyftingum. Hvað myndirðu læra ef þú fengir að bæta við þig nýrri gráðu? Færi hugsanlega í nám í arkitektúr ef aðstæður sköpuðust til þess. Hef á tilfinningunni að þá væri ákveðnum hring lokað. Hvaða lögum myndirðu breyta ef þú værir einráður í einn dag? Myndi væntanlega læsa klónum fyrst í byggingarreglugerðina og taka hana til gagngerrar endurskoðunar, ef ég yrði einráður í einn dag, og kæmist trúlega ekki yfir fleira þann daginn. SVIPMYND Jónas Þór Þorvaldsson, framkvæmdastjóri Kaldalóns Myndi vilja taka byggingarreglu- gerð til gagngerrar endurskoðunar Morgunblaðið/Árni Sæberg Jónas Þór gæti hugsað sér að læra arkitektúr, fengi hann tækifæri til að setjast aftur á skólabekk. NÁM: Kandídatsgráða í vélaverkfræði frá Háskóla Ís- lands, 1991; BFA-gráða í kvikmyndagerð frá California College of Arts & Crafts, 1995. STÖRF: Framkvæmdastjóri Atlas ejendomme a/s, fast- eignafélags, 2005-2007; framkvæmdastjóri Fasteigna- félagsins Stoða hf. (Reitir hf.), 2000-2007; framkvæmda- stjóri Landfesta hf. (Eik hf.), fasteignafélags, 2008-2014; framkvæmdastjóri Festis hf., fasteignaþróunarfélags, 2015-2018; framkvæmdastjóri Kaldalóns frá 2019. ÁHUGAMÁL: Byggingarlist, myndlist, tónlist, kvikmyndir, fótbolti, ferðalög, skógrækt og stangveiði. FJÖLSKYLDUHAGIR: Kvæntur Önnu Dagrúnu Pálmars- dóttur leikskólakennara. Börn þeirra eru Þór Jarl, Ægir Jarl og Saga Rún. HIN HLIÐIN GRÆJAN Það hlaut að koma að því að raf- tækjaframleiðendur huguðu að þörf- um sundfólks. Skokkarar og hjól- reiðafólk hafa um árabil getað notað fullkomnar græjur til að vísa sér leið, telja skrefin og mæla staðsetn- inguna, og svo er til ógrynni af for- ritum til að ná meiri árangri í öllum hugsanlegum íþróttum. Ástæðan fyrir því að sundið hefur setið á hakanum er væntanlega að vatn og raftæki fara ekki vel saman, en núna er búið að leysa þann vanda. Form-sundgleraugun hafa að geyma litla tölvu sem varpar upplýs- ingum á aðra linsuna, svo sundkapp- inn sér skýrt og vel hvernig sund- spretturinn gengur. Sundgleraugun geta m.a. talið sundtökin og mælt tíðni þeirra, fylgst með hve langt hefur verið synt og hve fljótur not- andinn er að synda hverja umferð. Gögnunum sem sundgleraugun safna má svo beina yfir í snjallsím- ann og greina í bak og fyrir. Verðið er 200 dalir hjá www.formswim.com ai@mbl.is Snjalltæki fyrir sund- kappa Form varpar upplýsingum jafnóðum innan á aðra linsuna.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.