Morgunblaðið - 21.08.2019, Side 6

Morgunblaðið - 21.08.2019, Side 6
6 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. ÁGÚST 2019FRÉTTIR VEITINGAGEIRINN Hagnaður skyndibitakeðjunnar Hlöllabáta var rétt ríflega 1,4 millj- ónir króna í fyrra. Þetta kemur fram í ársreikningi fyrirtækisins fyrir ár- ið 2018. Athygli vekur að ársreikningurinn hefur ekki hlotið álit endurskoð- enda. Stjórn Hlöllabáta er því ábyrg samkvæmt lögum fyrir gerð reikn- ingsskilanna. Þá var engan ársreikn- ing að finna fyrir árið 2017. Samtals námu rekstrartekjur fé- lagsins ríflega 217 milljónum króna. Munaði þar mest um vörunotkun og aðkeypta vinnu. EBITDA Hlöllabáta á árinu var nær 56 milljónir króna, en afskriftir upp á ríflega 53 milljónir drógu all- verulega úr hagnaði. Farið var í talsverðar fjárfest- ingar á árinu. Það var gert með lán- tökum, en keypt voru áhöld, tæki og innréttingar fyrir tæplega 295 millj- ónir króna. Hlöllabátar á Ingólfstorgi hafa notið talsverðra vinsælda með landsmanna. Lítill hagnaður af rekstri Hlöllabáta Túrvörur, vörur fyrir konur á blæð- ingum, hafa selst vel hjá íslenska fyrirtækinu Innundir síðastliðin tvö ár, en félagið er með umboð fyrir vörur ástralska fyrirtækisins Modi- bodi. Arna Sigrún Haraldsdóttir, stofn- andi fyrirtækisins, segir í samtali við Morgunblaðið að fyrirtækið sérhæfi sig í að vera með „allt fyrir öll sem fara á túr“. „Þetta er ástralskt vörumerki, en Modibodi eru frumkvöðlar í þessari hugmyndafræði, þ.e. túrnærbuxum. Vegferð þeirra hófst á því að eigand- inn upplifði þvagleka í kjölfar barns- burðar, og vantaði einhverja þægi- lega lausn á því, og úr varð þetta konsept,“ segir Arna. Hún bætir við að nærbuxurnar séu fyrir allan leka, hvort sem er blæð- ingar, minni háttar þvagleka eða út- ferð. „Þetta hefur verið ákveðið tabú sem konur hafa ekki viljað ræða, en mikil breyting hefur orðið til batn- aðar síðastliðin tvö ár. Talað er um að ein af hverjum fjórum fullorðnum konum sé með einhvers konar þvag- leka.“ Stór markaður Það liggur í augum uppi að mark- aður er fyrir konur á túr, enda konur um helmingur alls mannkyns. Undir það tekur Arna. „Já, markaðurinn er klárlega fyrir hendi, enda gengur þetta rosalega vel. Ég byrjaði upp- haflega með þetta sem hobbí til hliðar við aðra vinnu sem ég var í, en nú hef ég sagt upp dagvinnunni og einbeiti mér að þessu. Þetta er fullt starf fyrir tvo og ört vaxandi.“ Hingað til hefur Modibodi Ísland eingöngu selt vörur sínar á Íslandi. „Við seljum í gegnum netverslunina modibodi.is en tökum einnig þátt í allskonar mörkuðum og viðburðum. Ég hef til dæmis sjálf staðið fyrir um- hverfisvænum markaði, þar sem ég hóa saman fólki sem selur umhverf- isvænar vörur á netinu.“ Arna segir að markaðsstarfið fari langmest fram á samfélagsmiðlum. „Svo auglýsi ég einstaka sinnum í prentmiðlum og útvarpi, til að ná til þeirra sem eru minna á samfélags- miðlunum.“ Hún segir að eldri viðskiptavinum finnist athyglisvert að margnota túr- vörur séu komnar aftur. „Þær muna margar eftir því hvað það var mikil frelsun þegar einnota dömubindin komu á markað, og finnst athyglis- vert að sjá þetta afturhvarf til for- tíðar. Ungar konur velja nú í sífellt meira mæli taubindi vegna umhverf- issjónarmiða, auk þess sem þau þykja betri fyrir líkamann.“ Hægt að nota alltaf Túrnærbuxurnar, sem eru að- alsöluvara Innundir, eru þeirrar gerðar að ekki þarf dömubindi, held- ur er nóg að vera í nærbuxunum. „Ef þú ert einstaklingur sem ferð á blæð- ingar þá geturðu notað svona nær- buxur alltaf, ekki endilega bara þegar þú ert á blæðingum. Þá skiptir til dæmis ekki máli þegar þú byrjar óvænt á túr.“ Arna segir að slíkt skipti sér- staklega miklu máli fyrir unglingana. „Ég hef fengið símtöl frá foreldrum sem eru í vandræðum með unglings- stelpur sem lenda í því að það lekur í gegnum buxurnar, og jafnvel í stólinn í skólanum. Þá hætta þær að mæta í skólann á meðan þær eru á blæð- ingum. Þetta getur verið mikið vandamál.“ Aðrar vörur sem Arna selur á modibodi.is eru sænskir tíðabikarar, og fjölnota vatnsheldir pokar til að setja notuðu vöruna í þar til maður kemst heim að þvo. Aðspurð segir hún að ýmislegt fleira spennandi sé í pípunum. „Við erum byrjuð að þróa nýjar vörur líka.“ Sókn til Svíþjóðar hafin Sókn félagsins inn á aðra markaði hófst á mánudaginn. „Upphaflega fékk ég dreifingarrétt á Íslandi, Fær- eyjum og á Grænlandi. Það hefur gengið svo vel að við fengum að bæta við okkur Svíþjóð sem markaðssvæði. Við opnuðum á mánudaginn sænskt afrit af netversluninni, modibodi.se, og höfum ráðið sænskumælandi starfsmann sem mun sjá um þjónustu við þarlenda viðskiptavini.“ Spurð um hvernig hún sjái fyrir- tækið fyrir sér eftir fimm ár segist hún hafa væntingar um að nýja varan úr þróunarverkefninu verði þá komin á markað. Félagið glími hinsvegar við ákveðið lúxusvandamál. „Við erum að vaxa hraðar en við ráðum við fjár- hagslega. Við náum ekki að kaupa nógu hratt inn.“ En hvernig ætlið þið að takast á við það? „Við þurfum að halda okkur á mottunni og vaxa hægar. Það er auð- vitað svekkjandi, en líka skynsam- legt.“ Spurð nánar um söluna segir Arna að frá því fyrirtækið var stofnað hafi það selt tæplega tvö þúsund pantanir, en í hverri pöntun geti verið 1-10 stykki. Hún segir að Y og Z kynslóðin sé tilbúin að borga meira fyrir um- hverfisvænar vörur, og því megi ætla að markaðurinn muni stækka í fram- tíðinni. Fræðsluefni er enn annað sem Modibodi Ísland er byrjað að fram- leiða til hliðar við vörusöluna. „Við notum það bæði til að styðja við sölu á vörunum okkar, en líka út af sam- félagslegri skyldu. Það vantar svo mikið upp á blæðingafræðslu fyrir unglinga. Í allt of mörgum skólum er hún ekki hluti af námsefni, og for- eldrar eiga líka oft erfitt með þetta. Við gerðum sérstaka könnun í sam- starfi við Siggu Dögg kynfræðing um blæðingar, og þar kom meðal annars í ljós að helmingur svarenda var hræddur þegar blæðingar byrjuðu. Það er ótrúlega leiðinlegt að heyra að þau viti ekki hvað þau eigi að gera þegar blæðingar hefjast og hvernig þau nota dömubindi og túrtappa. Það er óþarfi að þetta sé svona. Við notum niðurstöður könnunarinnar til að búa til fræðsluefni til að fara með í skóla eða á frístundamiðstöðvar.“ Arna vill að lokum nefna að blæð- ingar eru ekki einkamál kvenna, og fræða megi stráka um blæðingar rétt eins og stelpur. Túrvörur í sókn Þóroddur Bjarnason tobj@mbl.is Innundir sérhæfir sig í vörum fyrir konur á blæð- ingum, og hefur nú opnað sænska útgáfu af verslun sinni modibodi.is. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Arna Sigrún Haraldsdóttir hjá Innundir hætti í dagvinnunni til að snúa sér alfarið að túrvörunum. Svíar eiga nú kost á því að panta vörur á modibodi.se

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.