Morgunblaðið - 21.08.2019, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 21.08.2019, Blaðsíða 8
8 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. ÁGÚST 2019VIÐTAL sérstaklega góður í að búa til báta. Þeir sem komu til að þjálfa okkur frá höfuðstöðvum Subway bentu mér kurteislega á að ég ætti helst að einbeita mér að einhverju öðru, eins og til dæmis að ráða fleiri starfsmenn,“ segir Skúli og hlær. Skömmu eftir opnun fyrsta Subway-staðarins í Faxafeni segir Skúli að hafist hafi verið handa við undirbúning frekari útvíkkunar starfseminnar. Það var 1. júní 1995 sem annar staðurinn leit dagsins ljós, en frá þeim tíma fjölgaði stöðunum jafnt og þétt í nokkur ár. „Frá því að fyrsti stað- urinn var opnaður var stöðunum að fjölga um tvo til þrjá á ári, allt þar til þeir voru orðnir um tutt- ugu talsins,“ segir Skúli, sem telur að staðirnir verði á bilinu 15-20 þegar horft er nokkur ár fram í tímann. Undanfarin misseri hefur þrem Subway-stöðum verið lokað, í Vestmannaeyjum, Keflavík og á N1 í Fossvogi. Nú starfa um 300 manns hjá fyrirtækinu í ríflega hundrað stöðu- gildum. Tekur íslenskt hráefni fram yfir erlent Undanfarin misseri hefur fjöldi nýrra tegunda af mataræði skotið upp kollinum og komist í tísku. Ber þar hæst ketó, veganisma auk ýmiss annars. „Brauð hefur þótt fremur óvinsælt undanfarin ár sökum tískubylgja í mataræði landsmanna. Það sér þó held ég fyrir endann á því enda gerir fólk sér grein fyrir því að það eru kaloríurnar sem þú neytir og brennir sem skipta máli en ekki endilega tegundin. Ég missti sjálfur rúm 20 kg á síðasta ári og borða iðulega Subway oftar en einu sinni á dag. Við bjóðum hins vegar einnig upp á salöt og vefjur sem hafa verið í mik- illi sókn undanfarin ár, en við höfum verið að fá talsvert til baka af viðskiptavinum sem voru að forðast brauðið,“ segir Skúli og kveðst leggja mikið upp úr því að vera með besta hráefni sem völ er á. Þar skipti ekki mestu hvort um er að ræða íslenskt eða erlent hráefni þó að hann kjósi fremur innlenda vöru. „Við reynum alltaf ef við getum að nota ís- lenskt hráefni enda er ég hlynntur því að kaupa af íslenskum framleiðendum. Það kemur þó ekki í veg fyrir að ég taki bestu vöruna á besta verðinu enda er ég í fyrirtækjarekstri. En við höfum þó sýnt það í gegnum tíðina að við reynum eftir fremsta megni að sækja íslenskar vörur,“ segir Skúli. Allt of háar álögur í Reykjavík Í liðinni viku bárust fréttir af gjaldþroti Osta- búðarinnar og Dill Restaurant, en staðirnir hafa löngum þótt meðal þeirra allra bestu í miðborg Reykjavíkur. Fram kom í frétt Morgunblaðsins fyrr í þessum mánuði að síðasta árið hefðu sam- tals um 40 staðir hætt eða hafið starfsemi. Þá eru dæmi um að hundruð milljóna króna hafi tapast vegna gjaldþrota veitingahúsa í miðborginni að undanförnu. Að sögn Skúla er ástæða til að hafa áhyggjur af stöðunni. „Maður er virkilega ugg- andi af því að þetta eru mjög góðir staðir sem far- ið hafa á hausinn. Þess utan sjáum við fína rekstraraðila gefast upp og það er mikið áhyggju- efni. Ef við einblínum á Reykjavík má fljótt sjá að álögur hafa snarhækkað, sem allt auðvitað endar á viðskiptavininum. Hann fær á endanum nóg og segir hingað og ekki lengra, enda neitar hann að greiða fyrir hækkandi launatengd gjöld, fast- eignagjöld og aðrar álögur,“ segir Skúli sem telur að stöðum muni fjölga í úthverfum höfuðborgar- svæðisins. Þá sé óumflýjanlegt að stöðum fækki í heildina. „Það er engin spurning held ég. Staðir hafa í auknum mæli verið að fara í úthverfin sem er að mínu mati mikið ánægjuefni. Ef við tökum Garða- bæ sem dæmi er núna hægt að velja milli fínna veitingastaða þar sem áður var engan stað að finna. Staðan í miðborginni er hins vegar mjög al- varleg og ég hef áhyggjur af því þegar verið er að loka gæðastöðum á borð við Dill og Ostabúðina. Það er ekki góð þróun.“ Hafa tekið á sig högg vegna hærri gjalda Ef litið er á ársreikning Stjörnunnar ehf., einkaleyfishafa veitingahúsakeðjunnar Subway, fyrir árið 2017 má fljótt sjá að staðurinn hefur, líkt og aðrir veitingastaðir, orðið fyrir barðinu á hækkandi álögum. Á árinu 2017 dróst hagnaður- inn saman um ríflega 116 milljónir króna frá árinu áður og nam rétt ríflega 13 milljónum króna. Afkoman á síðasta ári var ekki góð að sama skapi. Að sögn Skúla hefur verið ráðist í miklar hagræðingaraðgerðir á þessu ári sem hafa skilað sér í bættri rekstrarafkomu. Ráðgert er að afkoman verði mun betri á yfirstandandi ári. „Það er ekki hægt að neita því að reksturinn hefur þyngst undanfarin misseri. Auknar álögur og harðari samkeppni spila þar stóra rullu, þó ég kvarti ekkert undan samkeppni enda er hún af hinu góða. Við höfum ekki látið þessar hækkanir ganga beint til viðskiptavina okkar heldur tekið á okkur höggið. Undanfarna mánuði höfum við hins vegar straumlínulagað reksturinn enn frekar án þess að það bitni á nokkurn hátt á verði, gæðum eða þjónustu. Afkoman er betri og okkur hefur tekist að snúa við rekstrinum á þessu ári með mikilli vinnu lykilstjórnenda. Það sem hins vegar bætist við erfitt rekstrarumhverfi er málaferli, þar sem við höfum þurft að verjast ofsóknum slit- astjóra í þrotabúi, sem hefur haft veruleg áhrif á afkomu Stjörnunnar,“ segir Skúli. Vísar hann í máli sínu til málshöfðunar Sveins Andra Sveins- sonar, skiptastjóra þrotabús EK1923 ehf. (EK) á hendur fasteignafélaginu Sjöstjörnunni ehf., sem jafnframt er dótturfélag Stjörnunnar ehf. Gæti þurft að greiða nær hálfan milljarð aftur fyrir sömu fasteignina Dómur féll í málinu í undirrétti síðla árs 2018 þar sem Skúli var dæmdur til að greiða á fimmta hundrað milljónir króna til þrotabús EK. Málinu hefur nú verið áfrýjað til Landsréttar og gera má ráð fyrir að það verði tekið fyrir síðar á þessu ári. Að sögn Skúla er málið með hreinum ólíkindum enda bendi ekkert til þess að hann hafi með Það var talsverður erill þegar blaðamann bar að garði við bláu húsin í Faxafeni þar sem veitinga- staðurinn Subway er til húsa. Í anddyrinu stóð stofnandi og eigandi keðjunnar hér á landi, Skúli Gunnar Sigfússon, sem tók á móti blaðamanni með handabandi. Eftir kveðjur og stutt samtal lá leið okkar á aðra hæð hússins þar sem Skúli, sem jafnan er kenndur við Subway, er með skrifstofu- aðstöðu. Við hófum spjall okkar á því að ræða hvernig ferill Skúla hófst, en 11. september nk. eru liðin 25 ár frá því að fyrsti Subway-staðurinn var sett- ur á stofn. Frá þeim tíma hefur vöxturinn verið stöðugur og eru staðirnir nú orðnir 21 talsins, sem jafnframt gerir Subway að einni útbreidd- ustu veitingahúsakeðju landsins. Þremur árum áður en keðjan var sett á laggirnar hafði Skúli út- skrifast úr háskóla í Phoenix í Arizona-ríki í Bandaríkjunum þar sem hann stundaði nám í fjármálum. Í millitíðinni starfaði hann um skamma hríð hjá Landsbréfum sem fyrirtækja- ráðgjafi. „Ég starfaði hjá Landsbréfum á árunum 1991-93’ og þá sem fyrirtækjaráðgjafi. Ég sá hins vegar ekki fyrir mér að starfa sem slíkur til fram- tíðar enda hafði ég löngun til að stofna mitt eigið fyrirtæki og vera minn eigin herra,“ segir Skúli og bætir við að stofnun Subway á Íslandi hafi blundað í honum allt frá upphafi náms hans í Bandaríkjunum nokkrum árum áður. Þar hafi hann verið fastur viðskiptavinur enda maturinn í senn góður og ódýr, en að sama skapi unninn úr góðu hráefni. „Ég kynntist þessu sem náms- maður í Bandaríkjunum og varð svo til strax fast- ur viðskiptavinur Subway. Eftir að hafa marg- sinnis snætt þarna fór ég að hugsa hversu gaman væri að taka þetta til Íslands. Þegar ég kem heim aftur ákveð ég hins vegar að hefja störf hjá Landsbréfum, en var þó alltaf með stofnun stað- arins í bakhöfðinu. Ég fann strax að þessi „jakka- fatavinna“ frá 9 til 17 átti ekki við mig og var því ákveðinn í að ég myndi hætta í þessu starfi. Í framhaldinu hafði ég samband við höfuðstöðvar Subway í Bandaríkjunum og hóf viðræður um að fá sérleyfi fyrirtækisins hér á landi,“ segir Skúli. Fékk loksins já eftir mikla vinnu Spurður hvort það hafi reynst auðvelt að fá for- svarsmenn Subway í Bandaríkjunum til að láta svo til nýútskrifaðan háskólanema fá sérleyfi keðjunnar hér á landi kveður Skúli nei við. Þrjóska hans og ákveðni hafi þó á endanum orðið til þess að samþykki fékkst. „Á þessum tíma var tölvupóstur varla kominn til sögunnar þannig að ég sendi bréf og hringdi nokkrum sinnum út til að ræða við þá. Ég fékk nokkur nei en í stað þess að gefast upp var ég fastur fyrir og hélt áfram þar til þeir gáfu mér færi á að skrifa allavega viðskipta- áætlun. Ég eyddi heilu sumri í að gera hana og vandaði afar vel til verka enda vildi ég hafa hana alveg skothelda. Í framhaldinu var þetta sam- þykkt og fyrsti staðurinn var í kjölfarið opnaður 11. september 1994,“ segir Skúli. Stöðum fjölgaði hratt eftir opnun í Faxafeni Hversu stórt var fyrirtækið í sniðum í upphafi? „Ég var með um tuttugu manns í vinnu þegar við fórum af stað með þetta. Það var alveg brjálað að gera og röð umhverfis húsið fyrstu dagana.“ Varstu sjálfur að smyrja samlokurnar? „Ég verð alveg að viðurkenna að ég var ekkert Neitaði að gefast upp á d Aron Þórður Albertsson aronthordur@mbl.is Það eru annasamir mánuðir fram undan hjá fjárfestinum og eiganda veitingahúsakeðjunnar Subway á Íslandi, Skúla Gunnari Sigfússyni. Frekari fjárfestinga í veitingageiranum er hugsanlega að vænta á næsta ári auk þess sem dómur verður kveðinn upp í máli þrotabús EK1923 ehf. Þá eru jákvæð teikn á lofti varðandi rekstur núverandi fyrirtækja fjáfestisins stórtæka, en rekstur Subway hefur undanfarin misseri reynst eilítið þyngri en oft áður. Að sögn Skúla hafa hækkandi álögur og meintar ofsóknir Sveins Andra Sveinssonar, skiptastjóra þrotabús EK1923 ehf., haft þar mikið að segja. ” Það sem hins vegar bætist við erfitt rekstrarumhverfi er mála- ferli þar sem við höfum þurft að verjast ofsóknum slitastjóra í þrotabúi sem hefur haft veruleg áhrif á afkomu Stjörnunnar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.