Morgunblaðið - 21.08.2019, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 21.08.2019, Qupperneq 10
10 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. ÁGÚST 2019 NÝTT – Veggklæðning Rauvisio Crystal • Mikið úrval lita og áferða • Auðvelt í uppsetningu og umgegni • Framleiðum eftir óskum hvers og eins • Hentar fyrir heimili, vinnustaði og almenningssvæði Fanntófell hefur sérhæft sig í framleiðslu á borðplötum og sólbekkjum síðan 1987. Fanntófell ehf. | Gylfaflöt 6-8 | 112 Reykjavík | Sími 587 6688 | fanntofell.is Varar ráðið þá við því að verið sé að stunda ósjálfbærar veiðar á stofninum og mælir með því að landaður afli verði skorinn niður um heil 63%, til viðbótar við þau 47% sem tekin voru af afla- heimildum á síðasta ári. Þorskstofninn hefur áður þurft að þola áföll og var raunar hættu- lega nálægt því að hrynja með öllu frá því snemma á áttunda áratug síðustu aldar og fram til ársins 2006. Takmörkuðu fjölda veiðidaga Tekið var til varna með því að takmarka fjölda veiðidaga, taka báta úr umferð, banna veiðar á uppvaxtarsvæðum og útbúa net með stærri möskva. Stofninn var enda orðinn fjór- faldur árið 2017 miðað við árið 2006. Og það var þá sem al- þjóðlega stofnunin Marine Stewardship Council (MSC) gaf þremur útgerðum vottorð um sjálfbærar veiðar. En nú hafa óháðir endurskoð- endur lagst yfir skýrslu hafrann- sóknaráðsins. Þeir munu í lok september tilkynna hvort útgerð- irnar geti haldið vottorðum sínum. Verði úrskurður þeirra neikvæður gæti norðursjávarþorskur brátt horfið af matseðlinum, segir í um- fjöllun blaðsins. Bretar leggja sér til munns um 115 þúsund tonn af þorski á ári hverju. Aðeins um 15 þúsund tonn koma úr Norðursjó en hin hundr- uð þúsundin koma að mestu úr Barentshafi eða af fengsælu fiski- miðunum undan ströndum Íslands og Noregs. En tegundin þykir þó enn hafa verulegt táknrænt mikilvægi fyrir breskan sjávarútveg, sem heldur úti störfum fyrir um 24 þúsund manns – hverra meirihluti starfar í Skotlandi. Ströng varúðarorð um ástandið Alþjóðahafrannsóknaráðið, sem hefur á að skipa vísindamönnum frá ríkjunum við strendur Norður- Atlantshafsins, ráðleggur rík- isstjórnum og fyrirtækjum í sjáv- arútvegi um ástand stofna og þær aflaheimildir sem hægt er að gefa út án þess að setja sjálfbærni þeirra í hættu. Ráðið gaf eins og áður sagði út viðvörun á síðasta ári, þegar það mælti með að þorskafli yrði skor- inn niður um 47%. Ráðlagningunni í ár, þar sem lögð er til skerðing upp á næstum tvo þriðju hluta aflaheimilda, fylgja ströng var- úðarorð um slæmt ástand stofns- ins. „Það er óljóst hvað veldur þessu,“ segir í skýrslunni. „Frek- ari vinnu er þörf til að rannsaka líffræðilega þáttinn og áhrif lofts- lagsbreytinga og veiða.“ Tæki gildi undir lok október Umhverfisverndarsamtök hafa bent á að veitt hafi verið úr stofn- inum umfram það hámark sem hann hefur verið talinn geta þolað á undanförnum árum. Þorskurinn sé sem sagt veiddur úr hafi hraðar en hann nær að fjölga sér. Í grein Guardian segir að teg- undin sé ekki að fjölga sér eins hratt og hún gerði áður, of margir ungfiskar séu veiddir og að brott- kast afla sé enn við lýði þrátt fyrir að hafa verið bannað. Ef endurskoðendurnir ákveða í næsta mánuði að svipta útgerð- irnar vottorðum sínum mun svipt- ingin taka gildi síðla októbermán- aðar. Mestu áhrifanna mun gæta í stórmörkuðum, hjá fisksölum og á veitingastöðum þar sem sjálfbærni er mikilvægur þáttur í huga með- vitaðra neytenda. Tækifæri gætu þannig jafnvel skapast fyrir þau íslensku fyrirtæki sem flytja MSC-vottaðan þorsk til Bretlands. „Það verður minna af þorski sem er veiddur af Bretum,“ segir Aoife Martin hjá Seafish, sam- tökum sem styðja breskan sjávar- útveg. „En meira að segja fyrir þessa ráðgjöf ráðsins þá höfum við alltaf flutt inn mest af því sjáv- arfangi sem við borðum.“ Þorskstofninn í Norðursjó stendur illa Skúli Halldórsson sh@mbl.is „Hvert fór allur þorsk- urinn?“ Svo hljóðar fyrir- sögn greinar í breska dag- blaðinu Guardian sem birtist á sunnudag, þar sem fjallað er um slæma stöðu þorskstofnsins í Norðursjó og vísað til ný- útgefinnar skýrslu Alþjóða- hafrannsóknaráðsins. Ljósmynd/Þröstur Njálsson Bretar leggja sér til munns um 115 þúsund tonn af þorski á ári hverju. 15 þúsund tonn af því magni veiða þeir sjálfir. Guðmundur Þórðarson, sviðs- stjóri botnsjávarsviðs hjá Haf- rannsóknastofnun, segir að- spurður að ákaflega ólíklegt sé að þorskstofninn í kringum Ísland og í Barentshafi fylgi niður á eftir þorskinum í Norðursjó. „Ástæða þess að dregið er svona úr ráðgjöf ICES er að stofn- matið núna er mun lægra en stofnmatið í fyrra,“ segir Guð- mundur. „Þannig að miðað við stofnmat- ið núna var stofninn ofmetinn á síðasta ári. Stofninn er núna met- inn undir varúðarmörkum og ráð- gjöfin miðast við að ná því að hann verði við varúðarmörk árið 2021. Ástæðurnar fyrir þessu eru ekki að fullu þekktar en einnig kemur til fremur léleg nýliðun á undanförnum árum.“ Hann segir stjórn á veiðum hér við land góða og að stjórnvöld hafi sett sér nýtingarstefnu í formi aflareglu sem fylgt hafi verið á síðustu árum. „Verði það gert áfram er mjög ólíklegt að það ástand sem uppi er í Norðursjó komi upp á Íslandi nema þá vegna nýliðunarbrests í langan tíma eða aukinna affalla af öðrum sökum, eins og við höfum séð með nýliðunarbrest humars og sýkingu síldarinnar hér við land.“ Ólíklegt að okkar þorskur fylgi á eftir frænda sínum syðra Morgunblaðið/Ófeigur Guðmundur Þórðarson segir veiðistjórn góða og að aflareglu sé fylgt.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.