Morgunblaðið - 21.08.2019, Síða 11

Morgunblaðið - 21.08.2019, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. ÁGÚST 2019 11SJÁVARÚTVEGUR Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Bjóðum MESTA úrval á Íslandi af smáum og stórum vogum Tveir ungir menn ætla að freista þess að gera, í fyrstu atlögu, einmitt það sem svo margir sérfræðingar hafa sagt að íslensk sjávarútvegsfyr- irtæki ættu að stefna að: flytja út fisk í neytendapakkningum, og selja hann yfir netið. Baldur Þór Sigurðarson og Rögn- valdur Þorgrímsson eru mennirnir á bak við Captain‘s Box, og báðir rétt skriðnir yfir hálfþrítugt. Fyrirtækið hefur verið í mótun frá því í vor og ætti sala að hefjast með haustinu, en þeim félögum til halds og trausts er íslenska vöruhúsið Ísafold í Portland sem ViðskiptaMogginn fjallaði um fyrr í mánuðinum. Fiskurinn kemur frá fiskvinnslunni Stakkholti í Hafn- arfirði og verður keyptur á markaði. Viðskiptamódelið byggist m.a. á reynslu bandaríska fyrirtækisins Butcher‘s Box, sem frá árinu 2016 hefur náð góðum árangri við að selja í áskrift hágæðakjöt af nautgripum sem fóðraðir eru með grasi. „Það er í raun ekki fyrr en nýlega að það verð- ur raunhæfur möguleiki að selja matvæli, og hvað þá kælivöru, yfir netið, og með tilkomu Ísafoldar get- um við ráðist í þetta verkefni án þess að þurfa fyrst að fjárfesta í mikilli yf- irbyggingu og kostnaðarsamri mark- aðsherferð,“ segir Baldur og upp- lýsir að til standi að fylgja fordæmi Butcher‘s Box með því að einblína á áhrifavalda og netauglýsingar til að ná til nýrra viðskiptavina: „Markhópurinn okkar, til að byrja með, verður fólk á aldursbilinu 25 til 40 ára sem er umhugað um heilsu og hollt mataræði, og höfum við m.a. þá sem stunda crossfit sérstaklega í sigtinu, og líka Íslendinga búsetta vestanhafs.“ Einangrað með ull Viðskiptavinir munu panta fiskinn beint af vefsíðu Captain‘s Box og verða í fyrstu í boði 3,8 kg og 6 kg öskjur. „Í hverri öskju nokkrir 920 g pokar með 150-200 g bitum af besta partinum af hverjum fiski. Hentar hver biti í máltíð fyrir einn og myndi ný askja koma heim að dyrum á tveggja eða fjögurra vikna fresti,“ útskýrir Baldur. Um einfrystan fisk er að ræða, sem skorinn er í bita á Ís- landi, en gangi salan vel er hugs- anlegt að ferskum fiski verði bætt við vöruframboðið. Mikil rannsóknarvinna var lögð í að finna réttu umbúðirnar. Þannig varð fyrir valinu svk. bíóplast í 920 g pokana, og brotnar það niður í nátt- úrunni. Askjan sjálf er síðan gerð úr þykkum bylgjupappa sem einangr- aður er með ull. „Ullin sem er notuð fellur til við fataframleiðslu, veitir góða einangrun og er langtum um- hverfisvænni en t.d. frauðplast,“ seg- ir Baldur. Rík áhersla verður lögð á að hampa íslenskum uppruna fisksins og munu kaupendur geta rakið slóð hvers bita allt frá veiðum og þar til askjan er afhent. Baldur segir þenn- an rekjanleika hluta af því að skapa traust á milli verslunarinnar og selj- andans, og þannig yfirstíga þær efa- semdir sem margir gætu haft um gæði og ferskleika matvöru sem pöntuð er yfir netið. „Bandarískir neytendur vilja líka í vaxandi mæli vita nákvæmlega hvaðan maturinn þeirra er og í þannig markaðs- umhverfi getum við hreykt okkur af því að sá fiskur sem við seljum sé veiddur með sjálfbærum hætti.“ Ekkert svigrúm fyrir mistök En er ekki samkeppnin á banda- rískum matvælamarkaði allt of hörð, og áskoranirnar risastórar fyrir agn- arsmáan íslenskan sprota sem ætlar að taka slaginn við Amazon, Whole Foods og aðra risa? „Við fylgjumst einmitt náið með Whole Foods og ætlum að vera með svipað eða lægra verð en sú hágæðaverslun, en spör- um okkur þann kostnað sem fylgir yfirbyggingu stórrar matvöruversl- unar auk þess að losna við milliliði sem annars myndu taka sinn skerf,“ segir Baldur. „Markaðurinn er líka stór, og fer stækkandi, og þurfum við ekki annað en að finna okkar litlu hillu til að geta gengið prýðilega. Neytendur gera æ meira af því að gera matarinnkaupin sín á netinu og nú er svo komið að sá aldurshópur sem er að byrja að búa fer sárasjald- an í verslanir af nokkru tagi, því allt er keypt yfir netið.“ Vanda þarf til verka og áttar Bald- ur sig á að í netverslun geta öll mis- tök verið dýrkeypt. Viðskiptamód- elið byggist á því að fá fólk í langtímaviðskipti og tryggja verður gæðin alla leið, þ.m.t. að fiskurinn rati greiðlega í hendur viðskiptavin- arins og hitni ekki á leiðinni. „Við höfum gert ítrekaðar prófanir til að ganga úr skugga um að dreifingin gangi vel fyrir sig og að umbúðirnar geri sitt gagn, enda yrði það fljótlega á allra vitorði ef einhver við- skiptavinur fengi í hendurnar pakka sem væri ekki 100% í lagi.“ Opna netverslun fyrir íslenskan fisk Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Captain’s Box hyggst selja hágæða sjávarafurðir í áskrift og senda vítt og breitt um Bandaríkin í umhverfisvænum um- búðum sem halda fiskinum köldum. Morgunblaði/Arnþór Birkisson Baldur og Rögnvaldur hafa náð að þróa hugmyndina nokkuð hratt og ætti sala að hefjast með haustinu. Afurðaverð á markaði 20. ágúst 2019, meðalverð, kr./kg Þorskur, óslægður 382,27 Þorskur, slægður 401,44 Ýsa, óslægð 254,90 Ýsa, slægð 224,78 Ufsi, óslægður 123,17 Ufsi, slægður 150,70 Gullkarfi 204,81 Blálanga, slægð 196,94 Langa, óslægð 168,20 Langa, slægð 200,83 Keila, óslægð 68,34 Keila, slægð 117,50 Steinbítur, óslægður 151,39 Steinbítur, slægður 296,17 Skötuselur, óslægður 517,78 Skötuselur, slægður 662,94 Grálúða, slægð 421,36 Skarkoli, slægður 339,52 Þykkvalúra, slægð 445,82 Bleikja, flök 1.600,89 Hlýri, óslægður 274,87 Hlýri, slægður 215,13 Lúða, óslægð 799,00 Lúða, slægð 697,05 Lýsa, óslægð 70,67 Lýsa, slægð 97,39 Skata, slægð 33,00 Stóra brosma, slægð 76,00 Stórkjafta, slægð 282,09 Undirmálsýsa, óslægð 149,47 Undirmálsýsa, slægð 146,51 Undirmálsþorskur, óslægður 219,19 Undirmálsþorskur, slægður 212,83

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.