Morgunblaðið - 21.08.2019, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. ÁGÚST 2019 11SJÁVARÚTVEGUR
Eltak sérhæfir sig í sölu
og þjónustu á vogum
Bjóðum MESTA úrval
á Íslandi af smáum
og stórum vogum
Tveir ungir menn ætla að freista
þess að gera, í fyrstu atlögu, einmitt
það sem svo margir sérfræðingar
hafa sagt að íslensk sjávarútvegsfyr-
irtæki ættu að stefna að: flytja út fisk
í neytendapakkningum, og selja
hann yfir netið.
Baldur Þór Sigurðarson og Rögn-
valdur Þorgrímsson eru mennirnir á
bak við Captain‘s Box, og báðir rétt
skriðnir yfir hálfþrítugt. Fyrirtækið
hefur verið í mótun frá því í vor og
ætti sala að hefjast með haustinu, en
þeim félögum til halds og trausts er
íslenska vöruhúsið Ísafold í Portland
sem ViðskiptaMogginn fjallaði um
fyrr í mánuðinum. Fiskurinn kemur
frá fiskvinnslunni Stakkholti í Hafn-
arfirði og verður keyptur á markaði.
Viðskiptamódelið byggist m.a. á
reynslu bandaríska fyrirtækisins
Butcher‘s Box, sem frá árinu 2016
hefur náð góðum árangri við að selja
í áskrift hágæðakjöt af nautgripum
sem fóðraðir eru með grasi. „Það er í
raun ekki fyrr en nýlega að það verð-
ur raunhæfur möguleiki að selja
matvæli, og hvað þá kælivöru, yfir
netið, og með tilkomu Ísafoldar get-
um við ráðist í þetta verkefni án þess
að þurfa fyrst að fjárfesta í mikilli yf-
irbyggingu og kostnaðarsamri mark-
aðsherferð,“ segir Baldur og upp-
lýsir að til standi að fylgja fordæmi
Butcher‘s Box með því að einblína á
áhrifavalda og netauglýsingar til að
ná til nýrra viðskiptavina:
„Markhópurinn okkar, til að byrja
með, verður fólk á aldursbilinu 25 til
40 ára sem er umhugað um heilsu og
hollt mataræði, og höfum við m.a. þá
sem stunda crossfit sérstaklega í
sigtinu, og líka Íslendinga búsetta
vestanhafs.“
Einangrað með ull
Viðskiptavinir munu panta fiskinn
beint af vefsíðu Captain‘s Box og
verða í fyrstu í boði 3,8 kg og 6 kg
öskjur. „Í hverri öskju nokkrir 920 g
pokar með 150-200 g bitum af besta
partinum af hverjum fiski. Hentar
hver biti í máltíð fyrir einn og myndi
ný askja koma heim að dyrum á
tveggja eða fjögurra vikna fresti,“
útskýrir Baldur. Um einfrystan fisk
er að ræða, sem skorinn er í bita á Ís-
landi, en gangi salan vel er hugs-
anlegt að ferskum fiski verði bætt
við vöruframboðið.
Mikil rannsóknarvinna var lögð í
að finna réttu umbúðirnar. Þannig
varð fyrir valinu svk. bíóplast í 920 g
pokana, og brotnar það niður í nátt-
úrunni. Askjan sjálf er síðan gerð úr
þykkum bylgjupappa sem einangr-
aður er með ull. „Ullin sem er notuð
fellur til við fataframleiðslu, veitir
góða einangrun og er langtum um-
hverfisvænni en t.d. frauðplast,“ seg-
ir Baldur.
Rík áhersla verður lögð á að
hampa íslenskum uppruna fisksins
og munu kaupendur geta rakið slóð
hvers bita allt frá veiðum og þar til
askjan er afhent. Baldur segir þenn-
an rekjanleika hluta af því að skapa
traust á milli verslunarinnar og selj-
andans, og þannig yfirstíga þær efa-
semdir sem margir gætu haft um
gæði og ferskleika matvöru sem
pöntuð er yfir netið. „Bandarískir
neytendur vilja líka í vaxandi mæli
vita nákvæmlega hvaðan maturinn
þeirra er og í þannig markaðs-
umhverfi getum við hreykt okkur af
því að sá fiskur sem við seljum sé
veiddur með sjálfbærum hætti.“
Ekkert svigrúm fyrir mistök
En er ekki samkeppnin á banda-
rískum matvælamarkaði allt of hörð,
og áskoranirnar risastórar fyrir agn-
arsmáan íslenskan sprota sem ætlar
að taka slaginn við Amazon, Whole
Foods og aðra risa? „Við fylgjumst
einmitt náið með Whole Foods og
ætlum að vera með svipað eða lægra
verð en sú hágæðaverslun, en spör-
um okkur þann kostnað sem fylgir
yfirbyggingu stórrar matvöruversl-
unar auk þess að losna við milliliði
sem annars myndu taka sinn skerf,“
segir Baldur. „Markaðurinn er líka
stór, og fer stækkandi, og þurfum við
ekki annað en að finna okkar litlu
hillu til að geta gengið prýðilega.
Neytendur gera æ meira af því að
gera matarinnkaupin sín á netinu og
nú er svo komið að sá aldurshópur
sem er að byrja að búa fer sárasjald-
an í verslanir af nokkru tagi, því allt
er keypt yfir netið.“
Vanda þarf til verka og áttar Bald-
ur sig á að í netverslun geta öll mis-
tök verið dýrkeypt. Viðskiptamód-
elið byggist á því að fá fólk í
langtímaviðskipti og tryggja verður
gæðin alla leið, þ.m.t. að fiskurinn
rati greiðlega í hendur viðskiptavin-
arins og hitni ekki á leiðinni. „Við
höfum gert ítrekaðar prófanir til að
ganga úr skugga um að dreifingin
gangi vel fyrir sig og að umbúðirnar
geri sitt gagn, enda yrði það fljótlega
á allra vitorði ef einhver við-
skiptavinur fengi í hendurnar pakka
sem væri ekki 100% í lagi.“
Opna netverslun fyrir íslenskan fisk
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Captain’s Box hyggst
selja hágæða sjávarafurðir
í áskrift og senda vítt
og breitt um Bandaríkin
í umhverfisvænum um-
búðum sem halda
fiskinum köldum.
Morgunblaði/Arnþór Birkisson
Baldur og Rögnvaldur hafa náð að þróa hugmyndina nokkuð hratt og ætti sala að hefjast með haustinu.
Afurðaverð á markaði
20. ágúst 2019, meðalverð, kr./kg
Þorskur, óslægður 382,27
Þorskur, slægður 401,44
Ýsa, óslægð 254,90
Ýsa, slægð 224,78
Ufsi, óslægður 123,17
Ufsi, slægður 150,70
Gullkarfi 204,81
Blálanga, slægð 196,94
Langa, óslægð 168,20
Langa, slægð 200,83
Keila, óslægð 68,34
Keila, slægð 117,50
Steinbítur, óslægður 151,39
Steinbítur, slægður 296,17
Skötuselur, óslægður 517,78
Skötuselur, slægður 662,94
Grálúða, slægð 421,36
Skarkoli, slægður 339,52
Þykkvalúra, slægð 445,82
Bleikja, flök 1.600,89
Hlýri, óslægður 274,87
Hlýri, slægður 215,13
Lúða, óslægð 799,00
Lúða, slægð 697,05
Lýsa, óslægð 70,67
Lýsa, slægð 97,39
Skata, slægð 33,00
Stóra brosma, slægð 76,00
Stórkjafta, slægð 282,09
Undirmálsýsa, óslægð 149,47
Undirmálsýsa, slægð 146,51
Undirmálsþorskur, óslægður 219,19
Undirmálsþorskur, slægður 212,83