Morgunblaðið - 21.08.2019, Síða 12

Morgunblaðið - 21.08.2019, Síða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. ÁGÚST 2019SJÓNARHÓLL V E R K F RÆÐ I S T O F A Ert þú að spila í myrkri? EGGERT Rúmlega helmingur launþega á Íslandi greiðir mán-aðarlega í viðbótarlífeyrissparnað. Hinn helming-urinn fer á mis við 2% launahækkun frá vinnu- veitanda í formi mótframlags. Það eru næstum því 15.000 kr. í hverjum mánuði eða 180.000 kr. á ári sé miðað við meðaltal heildarlauna samkvæmt nýlegum upplýsingum frá Hagstofu Íslands, það munar um minna. Að eignast húsnæði Sömu aðilar eru jafnframt líklega að fara á mis við hag- kvæmasta möguleika sem þeim býðst í fjármögnun á hús- næði hérlendis. Þar sem nýta má viðbótarlífeyrissparnað bæði sem útborgun við kaup á húsnæði og til að greiða fast- eignalán hraðar niður, skatt- frjálst. Tökum dæmi um tvo aðila, A og B, sem tóku báðir 20 millj- óna króna óverðtryggt hús- næðislán með jöfnum afborg- unum í júní 2014 til 40 ára, á 6% föstum vöxtum út lánstímann. Aðili A ákvað að greiða í viðbótarlífeyrissparnað og nýta hann til að greiða inn á höfuðstól lánsins í hverjum mánuði síðustu 5 ár. Á hinn bóginn ákvað Aðili B að greiða ekki í viðbótarlífeyr- issparnað. Á þessu 5 ára tímabili hefur aðili A greitt 2,5 milljónir skattfrjálst inn á höfuðstól lánsins sem stendur nú í rétt rúmum 15 milljónum. Lánið hjá aðila B stendur hinsvegar í 17,5 milljónum. Ef aðili A myndi hætta að greiða inn á lánið á þessum tímapunkti, myndi aðili B samt koma til með að greiða tæpum 3 milljónum meira en aðili A í vexti yfir lánstímann. Ef aðili A gæti hinsvegar haldið áfram sama fyrirkomulagi út lánstímann myndi hann greiða rúmum 10 milljónum minna í vaxtagreiðslur en aðili B. Nýverið ákváðu stjórnvöld að framlengja heimildir ein- staklinga til að nýta viðbótarlífeyrissparnað skattfrjálst inn á lán um 2 ár, þ.e. til og með 30. júní 2021. Þeim sem hafa hingað til ekki nýtt sér þessa heimild býðst því enn að taka þátt og njóta góðs af þeim ávinningi sem af því hlýst. Þeir sem hafa verið að nýta hana þurfa að skrá sig inn á leidretting.is og staðfesta áframhaldandi þátttöku, að öðr- um kosti hafa greiðslur þeirra inn á lán fallið niður. Sé áframhaldandi þátttaka staðfest fyrir 30. september 2019 verður uppsöfnuð inneign frá 30. júní 2019 greidd inn á lán viðkomandi. Eftir 30. september nk. virkjast ráðstöfunin einungis aftur frá þeim mánuði sem umsókn berst og upp- söfnuð inneign því ekki greidd inn á lán viðkomandi. Það er því mikilvægt að staðfesta áframhaldandi þátttöku sem fyrst. Athugið að þau sem nýta sér úrræði vegna fyrstu íbúðar þurfa ekki að aðhafast neitt vegna þessa. Hagkvæm leið til sparnaðar Það eru ekki allir sem kjósa að nýta viðbótarlífeyrissparnað til að fjármagna húsnæði. Við starfslok lækka almennt ráðstöfunartekjur og viðbótarlífeyrissparnaður getur því reynst hagkvæm leið til að brúa bilið enda enginn fjármagnstekjuskattur greiddur af ávöxtun né tekjuskattur við innborgun. Þrjátíu ára einstak- lingur með 721.000 kr. í mánaðarlaun út 40 ára starfsævi (meðtal heildar- launa skv. Hagstofu Íslands) gæti hugsanlega átt um 45 milljónir við starfslok. Eigið framlag viðkomandi væri að- eins um 14 milljónir en ávöxtun og framlag vinnuveitanda væri um 30 milljónir sé t.d. miðað við 3,5% ávöxtun. Við- bótarlífeyrissparnaður er laus til útgreiðslu við 60 ára ald- ur eftir hentisemi hvers og eins og erfist að fullu ef við- komandi fellur frá. Það má því einnig líta á sparnaðinn sem einskonar líftryggingu fyrir aðstandendur. Eins og sjá má eru kostir viðbótarlífeyrissparnaðar margir en því miður er aðeins um helmingur launþega að njóta þeirra. Þau sem lesa þessa grein eru hvött til að skoða hvort viðbótarlífeyrissparnaður henti sér og sínum, hvort heldur sem markmiðið er að safna í sjóð til að eiga við starfslok eða til fjármögnunar á húsnæði, nú eða hvort tveggja. Á vef RSK eru nánari upplýsingar um þau úrræði sem standa til boða og á vef helstu fjármálastofnana er hægt að setja sínar forsendur í reiknivél viðbótarlífeyrissparn- aðar. LÍFEYRISMÁL Hjörtur Smári Vestfjörð sérfræðingur í eignastýringu hjá Arion banka Að eignast húsnæði og spara á hagkvæman hátt ” Eins og sjá má eru kostir viðbótarlífeyris- sparnaðar margir en því miður er aðeins um helmingur launþega að njóta þeirra. FORRITIÐ Sama hvort fólk á erindi út í heim starfsins eða ánægjunnar vegna, þá þarf oftar en ekki að hafa augun opin fyrir óheiðarlegum leigubílstjórum sem reyna að plata ferðalanga. Virð- ist það eiga við um allar borgir, að þar má finna leigubíla með gjald- mæla sem ekki má treysta, eða bíl- stjóra sem velja langa og hlykkjótta leið á áfangastað. Í sumum löndum er síðan til siðs að prútta um farið fyrirfram, og stendur aðkomufólk þá illa að vígi enda ekki kunnugt stað- háttum og verðlagi almennt. Forritið Hagglestar ætti því að geta komið í góðar þarfir í næstu viðskiptaferð, og tryggja að fjár- málastjórinn geri engar athuga- semdir við kostnað vegna leigubíla- ferða þegar heim er komið. Það sem Hagglestar gerir er ein- faldlega að safna saman upplýs- ingum frá ferðalöngum um hvað hlutirnir kosta í raun. Viðmótið er ekki ósvipað og hjá Uber: notandinn skráir inn áfangastaðinn, og Haggle- star finnur bestu leiðina og áætlar hvað farið ætti að kosta, umreiknað í gjaldmiðil notandans. Að auki inni- heldur forritið þýðingarvél til að auðvelda samskiptin við ökumann- inn. Í augnablikinu nær gagnagrunnur Hagglestar yfir alla Asíu og stendur til að bæta fleiri heimshlutum við á næstunni. ai@mbl.is Dagar óprúttinna leigubílstjóra taldir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.