Morgunblaðið - 21.08.2019, Qupperneq 12
12 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. ÁGÚST 2019SJÓNARHÓLL
V E R K F RÆÐ I S T O F A
Ert þú að spila
í myrkri?
EGGERT
Rúmlega helmingur launþega á Íslandi greiðir mán-aðarlega í viðbótarlífeyrissparnað. Hinn helming-urinn fer á mis við 2% launahækkun frá vinnu-
veitanda í formi mótframlags. Það eru næstum því 15.000
kr. í hverjum mánuði eða 180.000 kr. á ári sé miðað við
meðaltal heildarlauna samkvæmt nýlegum upplýsingum
frá Hagstofu Íslands, það munar um minna.
Að eignast húsnæði
Sömu aðilar eru jafnframt líklega að fara á mis við hag-
kvæmasta möguleika sem þeim býðst í fjármögnun á hús-
næði hérlendis. Þar sem nýta má viðbótarlífeyrissparnað
bæði sem útborgun við kaup á
húsnæði og til að greiða fast-
eignalán hraðar niður, skatt-
frjálst.
Tökum dæmi um tvo aðila, A
og B, sem tóku báðir 20 millj-
óna króna óverðtryggt hús-
næðislán með jöfnum afborg-
unum í júní 2014 til 40 ára, á 6%
föstum vöxtum út lánstímann.
Aðili A ákvað að greiða í
viðbótarlífeyrissparnað og nýta hann til að greiða inn á
höfuðstól lánsins í hverjum mánuði síðustu 5 ár. Á hinn
bóginn ákvað Aðili B að greiða ekki í viðbótarlífeyr-
issparnað. Á þessu 5 ára tímabili hefur aðili A greitt 2,5
milljónir skattfrjálst inn á höfuðstól lánsins sem stendur
nú í rétt rúmum 15 milljónum. Lánið hjá aðila B stendur
hinsvegar í 17,5 milljónum. Ef aðili A myndi hætta að
greiða inn á lánið á þessum tímapunkti, myndi aðili B
samt koma til með að greiða tæpum 3 milljónum meira en
aðili A í vexti yfir lánstímann. Ef aðili A gæti hinsvegar
haldið áfram sama fyrirkomulagi út lánstímann myndi
hann greiða rúmum 10 milljónum minna í vaxtagreiðslur
en aðili B.
Nýverið ákváðu stjórnvöld að framlengja heimildir ein-
staklinga til að nýta viðbótarlífeyrissparnað skattfrjálst
inn á lán um 2 ár, þ.e. til og með 30. júní 2021. Þeim sem
hafa hingað til ekki nýtt sér þessa heimild býðst því enn að
taka þátt og njóta góðs af þeim ávinningi sem af því hlýst.
Þeir sem hafa verið að nýta hana þurfa að skrá sig inn á
leidretting.is og staðfesta áframhaldandi þátttöku, að öðr-
um kosti hafa greiðslur þeirra inn á lán fallið niður. Sé
áframhaldandi þátttaka staðfest fyrir 30. september 2019
verður uppsöfnuð inneign frá 30. júní 2019 greidd inn á lán
viðkomandi. Eftir 30. september nk. virkjast ráðstöfunin
einungis aftur frá þeim mánuði sem umsókn berst og upp-
söfnuð inneign því ekki greidd inn á lán viðkomandi. Það
er því mikilvægt að staðfesta áframhaldandi þátttöku sem
fyrst. Athugið að þau sem nýta sér úrræði vegna fyrstu
íbúðar þurfa ekki að aðhafast neitt vegna þessa.
Hagkvæm leið til sparnaðar
Það eru ekki allir sem kjósa að
nýta viðbótarlífeyrissparnað til að
fjármagna húsnæði. Við starfslok
lækka almennt ráðstöfunartekjur og
viðbótarlífeyrissparnaður getur því
reynst hagkvæm leið til að brúa bilið
enda enginn fjármagnstekjuskattur
greiddur af ávöxtun né tekjuskattur
við innborgun. Þrjátíu ára einstak-
lingur með 721.000 kr. í mánaðarlaun
út 40 ára starfsævi (meðtal heildar-
launa skv. Hagstofu Íslands) gæti hugsanlega átt um 45
milljónir við starfslok. Eigið framlag viðkomandi væri að-
eins um 14 milljónir en ávöxtun og framlag vinnuveitanda
væri um 30 milljónir sé t.d. miðað við 3,5% ávöxtun. Við-
bótarlífeyrissparnaður er laus til útgreiðslu við 60 ára ald-
ur eftir hentisemi hvers og eins og erfist að fullu ef við-
komandi fellur frá. Það má því einnig líta á sparnaðinn
sem einskonar líftryggingu fyrir aðstandendur.
Eins og sjá má eru kostir viðbótarlífeyrissparnaðar
margir en því miður er aðeins um helmingur launþega að
njóta þeirra. Þau sem lesa þessa grein eru hvött til að
skoða hvort viðbótarlífeyrissparnaður henti sér og sínum,
hvort heldur sem markmiðið er að safna í sjóð til að eiga
við starfslok eða til fjármögnunar á húsnæði, nú eða hvort
tveggja.
Á vef RSK eru nánari upplýsingar um þau úrræði sem
standa til boða og á vef helstu fjármálastofnana er hægt
að setja sínar forsendur í reiknivél viðbótarlífeyrissparn-
aðar.
LÍFEYRISMÁL
Hjörtur Smári Vestfjörð
sérfræðingur í eignastýringu hjá Arion banka
Að eignast húsnæði og
spara á hagkvæman hátt
”
Eins og sjá má eru
kostir viðbótarlífeyris-
sparnaðar margir en
því miður er aðeins
um helmingur launþega
að njóta þeirra.
FORRITIÐ
Sama hvort fólk á erindi út í heim
starfsins eða ánægjunnar vegna, þá
þarf oftar en ekki að hafa augun opin
fyrir óheiðarlegum leigubílstjórum
sem reyna að plata ferðalanga. Virð-
ist það eiga við um allar borgir, að
þar má finna leigubíla með gjald-
mæla sem ekki má treysta, eða bíl-
stjóra sem velja langa og hlykkjótta
leið á áfangastað. Í sumum löndum
er síðan til siðs að prútta um farið
fyrirfram, og stendur aðkomufólk þá
illa að vígi enda ekki kunnugt stað-
háttum og verðlagi almennt.
Forritið Hagglestar ætti því að
geta komið í góðar þarfir í næstu
viðskiptaferð, og tryggja að fjár-
málastjórinn geri engar athuga-
semdir við kostnað vegna leigubíla-
ferða þegar heim er komið.
Það sem Hagglestar gerir er ein-
faldlega að safna saman upplýs-
ingum frá ferðalöngum um hvað
hlutirnir kosta í raun. Viðmótið er
ekki ósvipað og hjá Uber: notandinn
skráir inn áfangastaðinn, og Haggle-
star finnur bestu leiðina og áætlar
hvað farið ætti að kosta, umreiknað í
gjaldmiðil notandans. Að auki inni-
heldur forritið þýðingarvél til að
auðvelda samskiptin við ökumann-
inn.
Í augnablikinu nær gagnagrunnur
Hagglestar yfir alla Asíu og stendur
til að bæta fleiri heimshlutum við á
næstunni. ai@mbl.is
Dagar óprúttinna
leigubílstjóra taldir