Morgunblaðið - 21.08.2019, Qupperneq 14
Nýjustu fréttir af hagkerfi Þýska-
lands minna á einn frægasta smell-
inn sem þaðan hefur komið. Söng-
konan Nena gerði allt vitlaust árið
1983 með hressilegu lagi við
drungalegan texta um 99 blöðrur –
Neunundneunzig Luftballons – sem
svífa af stað. Stjórnvöld hlaupa til,
halda að fljúgandi furðuhlutur sé
þar á ferð, og herþoturnar eru
sendar á vettvang. Snjallir
þotuflugmennirnir, sem upplifa sig
eins og Kirk kaptein, finna blöðr-
urnar og gera það sem þeir kunna
best: hleypa af skotum og skapa
læti. Nágrannaþjóðunum líst ekki á
blikuna og endar lagið með því að
99 ráðherrar sem efast ekki agnar-
ögn um eigin hæfni – hielten sich
für schlaue Leute – lýsa yfir stríði
sem varir í 99 ár.
Söngur Nenu endurómaði ótta
almennings á kaldastríðsárunum
við það að eitthvert smáræði gæti
hleypt öllu í háaloft, enda misviturt
fólk við stjórnvölinn. En ef Nena
væri hagfræðingur (sem hún er
ekki – en hún lærði aftur á móti
gullsmíði) hefði hún kannski klætt
lagið í nýjan búning í kjölfar fjár-
málahrunsins 2008, eða evru-
krísunnar 2015, þegar margir
bentu á að hvers kyns tilraunir
stjórnvalda til að örva hagkerfi
Evrópu myndu bara virka í skamm-
an tíma – ef þær virkuðu á annað
borð. Að fjármagnsinnspýting er
eins og að lækna fótbrot með am-
fetamíni: sjúklingurinn mun vafalít-
ið geta sprett úr spori um stund en
hann verður aldeilis lemstraður
þegar áhrifin fjara út.
Þegar Seðlabanki Evrópu ákvað
að tímabært væri að stíga á brems-
una, seint á síðasta ári hafði sam-
tals 2.600 milljörðum evra verið ýtt
með handafli út í hagkerfi álfunnar.
Og samt hefur Evrópa ekki náð að
komast almennilega á skrið undan-
farinn áratug.
2.600 milljarðar blaðra svífa út
við sjóndeildarhring. Og hvað gera
þá allir sérfræðingarnir og pólitík-
usarnir, annað en að blása í fleiri
blöðrur?
Kenna ytri aðstæðum um
Seðlabanki Þýskalands hefur
núna gefið það út að samdráttar-
skeið sé í uppsiglingu í stærsta
hagkerfi Evrópu, og því fjórða
stærsta í heiminum á eftir Banda-
ríkjunum, Kína og Japan. Dregið
hefur úr framleiðslu iðnfyrirtækja
og útflutningur minnkað skarplega,
svo að horfur eru á að hagvöxtur
verði neikvæður á þriðja ársfjórð-
ungi. Á öðrum ársfjórðungi skrapp
hagkerfið saman um 0,1% og er
efnahagslægð formlega hafin þegar
hagkerfi dregst saman tvo ársfjórð-
unga í röð.
Það hjálpaði á öðrum ársfjórð-
ungi að einkaneysla og aukin út-
gjöld hins opinbera vógu upp á móti
kuldakastinu sem gengið hefur yfir
þýskan iðnað, en seðlabankinn seg-
ir alls óvíst hve lengi það jafnvægi
muni haldast.
Ástæðan fyrir þessari þróun er,
að sögn Financial Times, erf-
iðleikar hjá þýskum bílaframleið-
endum, óvissa vegna Brexit og
smitáhrif frá tolladeilum Banda-
ríkjanna og Kína. Hver mælingin á
fætur annarri bendir til nið-
urskurðar og bölsýni hjá þýskum
fyrirtækjum. Bjartsýniskönnun
hagrannsóknastofnunarinnar ZEW
í Mannheim sýnir að sérfræðingar í
þýsku fjármálakerfi og atvinnulífi
hafa ekki verið svartsýnni síðan
2011 þegar evrukrísan stóð hvað
hæst. Útflutningur hefur dregist
saman um 8% undanfarið ár, og
samdrátturinn í iðnaði mælist 5,2%.
Ekki er samt allt í tómu volli. At-
vinnuleysi hefur sjaldan mælst
lægra, þjónustugeirinn stækkar ört
og kraftur er í fasteignamark-
aðinum. En í Þýskalandi veltur
langtímaárangur atvinnulífsins á
iðnaði, og þess er ekki langt að bíða
að sú grein dragi aðrar niður með
sér ef ekki verður viðsnúningur í
bráð. Strax má merkja kulnun á
vinnumarkaði og urðu aðeins til um
1.000 ný störf í júní, en undanfarin
fimm ár hafa að jafnaði bæst við
44.000 ný störf í þessum mánuði.
Þarf svo ekki að spyrja að því að
ef Þýskaland siglir inn í
samdráttarskeið er hætt við að það
taki stóran hluta álfunnar með sér í
fallinu. Boða nýjustu tölur ekki gott
því starfsemi iðnfyrirtækja á evru-
svæðinu dróst saman um 1,6% í
júlí.
Opni ríkisbudduna
Ekki er öll von úti enn, til
skemmri tíma litið, því þýsk stjórn-
völd hafa svigrúm til að grípa til að-
gerða. Seðlabanki Evrópu virðist
vera að gera sig líklegan fyrir nýja
innspýtingu fyrir evrusvæðið allt
og mikið aðhald hefur verið í rík-
isfjármálum Þýskalands undanfar-
inn áratug, í samræmi við stefnu
sem fengið hefur heitið svart núll –
Schwarze Null – svo að afgangur
hefur verið af rekstri ríkissjóðs síð-
an 2014 og ríkið ekki tekið nein ný
lán. Er núna þrýst af miklum krafti
á stjórnvöld að gera hlé á þessum
mikla fjárhagslega aga. Aldrei hafi
verið ódýrara fyrir hið opinbera að
safna skuldum, og kjörið að ríkið
láti til sín taka með einhvers konar
örvunarpillu – s.s. uppbyggingu
innviða eða lækkun skatta – svo að
tveir slæmir ársfjórðungar verði
ekki að nokkrum slæmum árum.
Fjármálaráðherrann Olaf Scholz
segir stjórnvöld hafa svigrúm fyrir
allt að 50 milljarða evra viðbót-
arútgjöld. Heildarskuldir hins opin-
bera ættu að fara niður í sem jafn-
gildir 58% af landsframleiðslu á
þessu ári – rétt undir 60% þak Evr-
ópusambandsins, að því er Reuters
greinir frá, svo að lítilsháttar
skuldasöfnun myndi ekki líta svo
illa út á þessum tímapunkti. Á fundi
með blaðamönnum sagði Scholz að
fjármálakreppan 2008 og 2009 hefði
einmitt kostað Þýskaland í kringum
50 milljarða evra.
Ástandið verður samt áfram það
sama í grunninn, þrátt fyrir 50
milljarða innspýtingu, og ekkert
sem Merkel getur gert til að
höggva á hnútinn í deilu Kína og
Bandaríkjanna eða galdra fram far-
sælan endi á Brexit-sögunni.
Og svo er hitt að frá fjármála-
hruni hefur hagkerfi Þýskalands,
og raunar allrar Evrópu, ekki bein-
línis verið á fleygiferð þó að tekist
hafi að halda sjó. Grundvallarvand-
inn ristir miklu dýpra, bæði fyrir
Þýskaland og fyrir álfuna. Þannig
er réttilega bent á það í ritstjórn-
arpistli WSJ að það þurfi að grisja
íþyngjandi regluverk Þýskalands
og vinda ofan af meingallaðri orku-
skiptaáætlun sem hefur snarhækk-
að orkureikning fyrirtækja.
Þarf að laga undirstöðurnar –
setja spelku á brotið – frekar en að
seilast eftir amfetamínsprautunni.
En nokkrir tugir þúsunda millj-
arða eru einfaldari lausn fyrir pólit-
íkusa. Og þeir upplifa sig örugglega
eins og Kirk kaptein á meðan.
Samdráttarskeið að bresta á
Ásgeir Ingvarsson
Skrifar frá Istanbúl
ai@mbl.is
Seðlabanki Þýskalands
á von á slæmum þriðja
ársfjórðungi og jafnt
stórir sem smáir vilja að
stjórnvöld dragi úr aðhaldi
í ríkisfjármálum til að
hressa hagkerfið
tímabundið við.
Þrýst er á Scholz og Merkel að gera hlé á þeim mikla aga sem einkennt hef-
ur fjármál ríkisins undanfarinn áratug, og smyrja þannig hjól atvinnulífsins.
Frá árinu 2000 til 2017, í þúsundum milljarða dala
Landsframleiðsla Þýskalands, Japans,
Bretlands, Frakklands og Ítalíu
7
6
5
4
3
2
1
0
’00 ’01 ’02 ’03 ’04 ’05 ’06 ’07 ’08 ’09 ’10 ’11 ’12 ’13 ’14 ’15 ’16 ’17
4,87
3,68
2,62
2,58
1,93
Heimild: Google og Alþjóðabankinn
Japan Þýskaland
Bretland Frakkland Ítalía
14 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. ÁGÚST 2019FRÉTTIR
Góð þjónusta í tæpa öld 10%afslátturfyrir 67 áraog eldri
Flugvallarþjónusta
BSR sér um að skutla þér út á flugvöll og aftur heim þegar þú ferð til útlanda.
5-8 manneskjur
19.500 kr.
1-4 manneskjur
15.500 kr.
Verð aðra leið:
Þarftu skjóta afgreiðslu á ein-
blöðungum, bæklingum, vegg-
spjöldum, skýrslum, eða nafn-
spjöldum? Þá gæti stafræna
leiðin hentað þér. Sendu okkur
línu og fáðu verðtilboð.
STAFRÆNT