Morgunblaðið - 27.08.2019, Side 2
2 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. ÁGÚST 2019
Útgefandi Árvakur Umsjón Kristján Jónsson Blaðamenn Kristján Jónsson kris@mbl.is, Jóhann Ingi Hafþórs-
son johanningi@mbl.is Auglýsingar Bjarni Ólafur Guðmundsson daddi@k100.is Prentun Landsprent ehf.
Forsíðumyndina tók Hari
H
ugmyndin að baki því að halda
mót eins og Reykjavík Junior
Open, byggist á því að hægt
verði að þróa hér á landi á
næstu árum alþjóðlegt ung-
mennamót í golfi, mót sem myndi draga til
landsins erlenda keppendur og foreldra
þeirra. Það er mikill
metnaður til staðar hjá
GR að skapa yngri iðk-
endum golfsins hér á
landi vettvang til að
keppa við erlenda jafn-
aldra sína á móti á ís-
lenskum völlum. Mót sem
stæðist samanburð við
þau mót sem okkar
fremstu krakkar hafa
verið sækja á erlendri
grundu undanfarin ár. Til
þess að hugmyndin um alþjóðlegt mót hér
á landi verði að veruleika, þarf mótið sjálft
og völlurinn undir það að standa undir því.
Völlurinn þarf að vera þannig úr garði
gerður að það muni reyna sem mest á getu
krakkana í golfinu, þannig að þau þurfi að
hafa sem flestar tegundir högga í pokanum
ef þau ætla að geta náð árangri í slíku
móti,“ segir Lúðvík Bergvinsson, formaður
foreldraráðs hjá GR.
Ef ekki er reynt tekst ekkert
Lúðvík segir að mótshaldið nú sé eins kon-
ar tilraun þótt metnaður sé fyrir því innan
GR að mótið verði árlegur viðburður.
„Mótið í ár verður það fyrsta undir þessu
nafni, þ.e. Reykjavík Junior Open. Að því
loknu verður reynslan af því metin og farið
nánar yfir það hvort og þá hvernig eigi að
hefja kynningu á mótinu erlendis í vetur
með það að leiðarljósi að halda það aftur
næsta sumar, þá líklega um mitt sumar, og
reyna að fá til landsins erlenda þátttak-
endur.
Það er almenn skoðun meðal þeirra sem
hafa komið að og starfað í unglingastarfinu
hjá GR, þjálfara og fleiri, að það sé mik-
ilvægt fyrir krakkana að geta keppt á mót-
um sem þessum hér á landi og að slík mót
geti hjálpað þeim sem stefna hærra í golf-
inu að átta sig á því hvað þarf til að ná
langt. Það verður fróðlegt að sjá hvernig til
tekst með þetta mót, en ætlunin er að
leggja mat á það eftir mótið hvort sú hug-
mynd sem verið er að leggja upp með sé
raunhæf og framkvæmanleg. En stað-
reyndin er samt sem áður sú að mögulega
er betra tækifæri til þess að gera þetta nú
en áður þar sem Reykjavík er orðið al-
þjóðlega þekkt vörumerki umfram það sem
áður var.
Það mun svo koma í ljós hvort þessi
draumur getur orðið að veruleika eða ekki,
en ef ekki er reynt tekst ekkert. Það er
enginn vafi á því að það yrði ungmenna-
golfinu mikil lyftistöng ef það tækist að
koma svona móti á laggirnar. Það má gera
ráð fyrir því að það taki nokkur ár, en allar
ferðir hefjast á litlu skrefi,“ segir Lúðvík
og er ánægður með þau viðbrögð sem
mótahaldið hefur fengið hingað til og von-
ast til að veðurguðirnir verði hliðhollir.
Draumurinn að mótið verði alþjóðlegt
Barna- og unglingamótið Reykjavík Junior Open haldið í fyrsta
sinn hjá Golfklúbbi Reykjavíkur um næstu helgi
Morgunblaðið/Ómar
Barnastarfið er í blóma í golfíþróttinni.
Lúðvík
Bergvinsson
Systkinin Böðvar Bragi og
Helga Signý Pálsbörn.
Helga 13 ára.
Böðvar 16 ára.
Af hverju fóruð þið að æfa
golf?
Arnór bróðir okkar var að æfa
golf hjá GR og foreldrar okkar
spila golf svo það lá beint við
fyrir okkur að prófa. Við höfum
æft og spilað golf síðan.
Hvað hafið þið æft lengi?
Við byrjuðum bæði að æfa golf
þegar við vorum um það bil sex
ára.
Hvaða högg finnst ykkur
skemmtilegast að æfa?
Helga: Mér finnst skemmtileg-
ast að æfa púttin.
Böðvar: Mér hefur alltaf fund-
ist skemmtilegast að æfa vippin.
Hvar þurfið þið helst að bæta
ykkur í golfinu?
Böðvar: Ég vil koma boltanum
nær holunni í innáhöggunum og
síðan að bæta púttin.
Helga: Ég þarf að vinna meira
í löngu höggunum, bæði dræ-
vernum og brautartrjánum.
Hver er uppáhaldskylfan í
pokanum?
Helga: Ég er góð í inn-
áhöggum með P-inu mínu.
Böðvar: Dræverinn er í mestu
uppáhaldi, sérstaklega þegar ég
er að slá vel.
Hvenær tókst ykkur fyrst að
fara undir 100 högg á hring?
Böðvar: Í móti spilaði ég fyrst
á undir 100 höggum í æfingaferð
GR-unglinga á Spáni þegar ég
var 8 ára.
Helga: Ég spilaði fyrst undir
100 högg í meistaramóti þegar
ég var 10 ára.
Besta skorið á 18 holu hring
hjá ykkur?
Helga: Lægsti hringurinn
minn á rauðum teigum er 76
högg um daginn á Korpunni.
Böðvar: Lægstu hringirnir
mínir í móti eru 67 högg á hvít-
um teigum í Grafarholti í sumar,
67 högg á gulum teigum á Korp-
unni í sumar og 66 á bláum teig-
um á Korpunni sumarið 2017,
sem er vallarmet. Á rauðum
teigum á ég best 67 högg í móti í
Grafarholti 2017.
Snýst allt um golf hjá ykkur
systkinunum?
Böðvar: Já, síðustu ár, en til
að byrja með æfði ég líka fót-
bolta.
Helga: Golfið tekur meiri og
meiri tíma hjá mér, en ég æfi
líka fótbolta allt árið og söng á
veturna.
Er keppni á milli ykkar á golf-
vellinum?
Undanfarið höfum við reyndar
ekki spilað mikið saman því við
keppum í sitthvorum flokknum
og eigum bæði góða spilafélaga.
En þegar við spilum saman þá
erum við auðvitað að keppa.
Hvert er besta golfráðið?
Ef maður ætlar að ná árangri
í golfi þarf maður að æfa eins
mikið og maður mögulega getur.
Og þegar maður er að spila
skiptir einbeiting og þolinmæði
mestu máli.
Hver er fyrirmyndin í golfinu?
Böðvar: Tiger Woods er í
miklu uppáhaldi.
Helga: Ólafía Þórunn er fyr-
irmynd mín og margra stelpna í
golfi.
Hvert er draumahollið?
Böðvar: Draumahollið mitt er
Tiger Woods, Phil Mickelson og
Andri Þór Björnsson.
Helga: Mitt draumaholl er Ti-
ger Woods, Ólafía Þórunn og
Böðvar bróðir.
Hvað ráðleggið þið þeim
krökkum sem langar að æfa
golf?
Þeir ættu bara að drífa sig á
æfingu hjá Golfklúbbi Reykjavík-
ur. Golfkennararnir okkar Snorri
Páll, David og Derrick munu
taka vel á móti þeim.
Iðkendur í barna- og unglingastarfi GR
Börn og unglingar þurfa ekki að
eiga foreldra í golfi til að fá bakt-
eríuna snögglega. Það sýndi sig í til-
felli Dagbjarts Sigurbrandssonar
sem varð stigameistari á mótaröð
GSÍ í sumar aðeins 16 ára gamall.
Systir hans, Perla Sól, sem er Ís-
landsmeistari 14 ára og yngri, fylgdi
í kjölfarið en foreldrarnir, Rakel G.
Magnúsdóttir og Sigurbrandur
Dagbjartsson, hafa enn ekki hafið
golfiðkun sjálf þótt þau eyði samt
sem áður miklum tíma á golfvell-
inum.
„Dagbjarti var boðið að fara í golf
með bekkjarbróður sem bjó í hverf-
inu og var þá 10 ára. Ég spurði
hvernig hann ætlaði að fara í golf
þegar hann ætti ekki golfsett. Hann
fékk bara lánað sett, fór með þeim
og hefur nánast átt heima á vellinum
síðan,“ segir Rakel, móðir Dag-
bjarts og Perlu, þegar Morg-
unblaðið ræðir við hana. „Í fjöl-
skyldunni var enginn sem spilaði
golf en við búum hins vegar rétt hjá
Korpúlfsstaðavelli. Það er því hent-
ugt og stutt fyrir þau að fara þang-
að. Varðandi Perlu þá dró Dag-
bjartur hana eiginlega í golfið, en
þegar við vorum að skutla honum á
æfingar og sækja þá var hún oft með
og sá hvað um var að vera.“
Foreldarnir hafa fylgt börnunum
vel eftir í íþróttinni. Hvort sem er í
öllu skutlinu sem fylgir eða sem
kylfuberar í mótum. „Við fylgdumst
með en þegar þau komust á það stig
að byrja að keppa þá var maður
„caddie“ og í því að keyra þau á mót
út um allt Ísland nánast. Auðvitað
fylgir maður með og kynnist íþrótt-
inni um leið. Við höfum mjög gaman
af þessu þótt við séum ekki farin að
spila sjálf. Ef maður fylgir þeim er
ekki mikill tími til að spila sjálfur. Í
sumar fóru þau á mót hverja einustu
helgi frá 15. maí og þau eru ekki
endilega í sömu mótunum. Þá eru
ekki margar helgar eftir til að leika
sér saman,“ segir Rakel og hlær.
Ekki legið í tölvunni
Hún bætir því við að foreldrarnir
séu farin að leika golf í huganum
enda orðin vel kunnug keppnisgolfi.
„Við kunnum allar reglur og vitum
út á hvað þetta gengur. Þetta verður
skemmtilegra eftir því sem þekk-
ingin verður meiri. Ég man að í
fyrsta skipti sem ég horfði á strák-
inn í móti fannst mér mótið taka
óratíma. En núna fylgist ég spennt
með hverju höggi og finnst tíminn
líða hratt þegar þau keppa,“ segir
Rakel en virku dagarnir séu svolítið
frábrugðnir. Rakel og Sigurbrandur
þurfa ekki að hafa áhyggjur af
hreyfingarleysi barnanna.
„Þegar þau fara á Korpuna þá
ganga þau bara en við höfum þurft
að skutla þeim í Bása og Grafar-
holtið. Þess má geta að á veturna fer
einnig mikill tími í þetta því þá eru
stífar æfingar. Það er margt jákvætt
við þetta. Þau hanga ekki í tölvunni
á sumrin heldur vakna snemma á
morgnana og eru mætt á völlinn eins
og þau séu í vinnu. Þá koma þau
ekki heim fyrr en um kvöldmat. Í
þessu felst mikil hreyfing og útivera.
Strákurinn er til dæmis 16 ára og
hann er ekki í neinu rugli enda held-
ur íþróttin fólki við efnið,“ segir
Rakel og tekur fram að sá dagur
muni koma þegar þau hjónin byrja
að leika golf. kris@mbl.is
Á bólakafi í golfi en
hafa aldrei spilað
Systkinin takast í
hendur að loknum
golfhring.