Morgunblaðið - 27.08.2019, Síða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. ÁGÚST 2019
Systkinin Jóhanna Lea
og Bjarni Þór Lúðvíksbörn:
Jóhanna 16 ára
Bjarni 15 ára
Af hverju fóruð þið að æfa golf?
Við fórum að æfa golf af því að pabbi
tók okkur með sér í golf og okkur fannst
svo gaman að við byrjuðum að æfa og
fengum í kjölfarið mikinn áhuga á golf-
inu.
Hvað hafið þið æft lengi?
Við höfum æft í rúmlega fimm ár. Við
byrjuðum að æfa sumarið 2014.
Hvað högg finnst ykkur skemmtileg-
ast að æfa ?
Jóhanna: Mér finnst skemmtilegast að
æfa járnahögg.
Bjarni: Það eru 30 metra högg yfir
bönker og lítið green til þess að vinna
með.
Hvar þurfið þið helst að bæta ykkur í
golfinu?
Jóhanna: Ég þarf aðallega að bæta
mig í stutta spilinu.
Bjarni: Ég þarf að bæta mig í pútt-
unum.
Hver er uppáhaldskylfan í pokanum?
Jóhanna: Uppáhaldskylfan mín er
pútter.
Bjarni: Mín uppáhaldskylfa er 2-
járnið.
Hvenær tókst ykkur að fara undir 100
högg á hring?
Jóhanna: Það var á áskorendamótaröð
Íslandsbanka sumarið 2015 þegar ég
spilaði á 99 höggum.
Bjarni: Það var í apríl 2015 í æf-
ingaferð á Costa Ballena á Spáni.
Besta skorið á 18 holu hring hjá ykk-
ur?
Jóhanna: Besta skorið mitt er -1 á
Korpu (71).
Bjarni: Lægsta skorið mitt er 68 högg
af gulum teigum á Korpunni.
Snýst allt um golf hjá ykkur systk-
inum?
Já, það snýst mikið um golf hjá okkur.
Við æfum fimm daga í viku á veturna og
svo á vorin þegar vellirnir eru opnaðir
og skólinn klárast þá byrja mótin sem
eru svo til allar helgar fram á haustið.
Það eru æfingar alla virka daga á sumr-
in og svo spilum við líka með vinum og
fjölskyldu þegar það eru ekki mót. Við
höfum líka farið um jól og áramót síð-
ustu ár til Flórída til að spila og keppa
og í fríum er eiginlega alltaf golf.
Er keppni á milli ykkar á golfvell-
inum?
Já – það er yfirleitt mikil keppni á
milli okkar!
Hvert er besta golfráðið?
Jóhanna: Hugsa bara um eitt högg í
einu og gefast ekki upp.
Bjarni: Þetta klassíska – eitt högg í
einu.
Hver er fyrirmyndin í golfinu?
Jóhanna: Annika Sörenstam.
Bjarni: Tiger Woods.
Hvert er draumahollið?
Jóhanna: Annika Sörenstam, Tiger
Woods, Dagbjartur Sigurbrandsson.
Bjarni: Tiger, Rory og John Daily.
Hvað ráðleggið þið þeim krökkum
sem langar að æfa golf?
Jóhanna: Bara hafa gaman og vera
þolinmóð og gefast ekki upp.
Bjarni: Að drífa sig bara á æfingu.
Það þarf ekkert að kunna og það er frá-
bær kennsla hjá GR.
Iðkendur í barna- og
unglingastarfi GR
Morgunblaðið leitaði til Birgis Björnssonar sem vinnur alla daga við að
þjónusta kylfinga í Hraunkoti í Hafnarfirði, hjá æfingasvæði Golfklúbbs-
ins Keilis, og í gegnum golfkylfur.is. Birgir er kylfusmiður og mælir til
dæmis fyrir kylfinga hvernig kylfur og sköft ættu að henta best fyrir við-
komandi. Við spurðum Birgi hver kostnaðurinn gæti verið þegar kemur
að því að kaupa kylfur fyrir börn eða unglinga sem eru að byrja í íþrótt-
inni skemmtilegu.
„Mikilvægast er að kylfurnar passi fyrir viðkomandi, sama hvert merk-
ið er og burtséð frá verði. Aðalatriðið að þær séu í réttri lengd fyrir krakk-
ana. Forðast ber að láta stytta fullorðinskylfur fyrir börnin. Ég myndi
segja að það eigi alls ekki að gera vegna þess að þær eru allt of þungar og
stífar. Fyrir vikið er líklegt að krakkinn þrói með sér sveiflugalla sem
verði erfitt að breyta seinna meir,“ segir Birgir og spurður um verðdæmi
segir hann að verðin geti auðvitað verið misjöfn en nefnir nokkur dæmi
frá framleiðandanum US Kids til að gefa lesendum einhverja hugmynd.
„US Kids er til dæmis með kylfur handa krökkum frá 96-167 cm. Dæmi
um verð er rautt sett á 22.900 krónur og inniheldur 3 kylfur og poka. Blátt
sett kostar 29.900 kr. og inniheldur 4 kylfur og poka. Appelsínugult sett er
á 35.900 kr. og inniheldur 5 kylfur og poka. Grænt sett kostar 39.900 kr.
og inniheldur 5 kylfur og poka og gula settið 43.900 kr, er með 5 kylfur og
poka.
Eins og í öllu öðru getur verið breidd í verði og gæðum. Þegar börn eða
unglingar eru komin á það stig að taka golfið alvarlegra, og stunda miklar
æfingar, er Ping til dæmis með Prodi G kylfurnar sem fást í þrettán
stærðum og eru pantaðar út frá mælingu. Þeim fylgir ein frí uppfærsla
eða lenging. Þar er um að ræða dýrari kylfur en jafnframt vandaðri,“
sagði Birgir Björnsson.
Er kostnaðarsamt að kaupa
kylfur fyrir unga iðkendur?
Ljósmynd/Edwin Rögnvaldsson
Birgir Björnsson er með yfirgripsmikla menntun í golfkylfusmíði.
S
norri Páll Ólafsson er yfirþjálfari hjá
Golfklúbbi Reykjavíkur. Hann segir
algengt að börn og unglingar byrji í
golfi vegna tengsla við kylfinga í
sinni fjölskyldu en er þó ekki algilt.
„Við erum þrír þjálfararnir sem komum
mest að þjálfun barna, unglinga og afrekskylf-
inga GR og er hlutverk mitt utan þjálfunar að
vera í forsvari fyrir starfið og halda utan um
daglegt skipulag í góðri samvinnu við þá David
Barnwell og Derrick Moore. Er ég afskaplega
heppinn að hafa þá mér við hlið dags daglega
og hefur samstarf okkar gengið frábærlega.
Við eigum það sameiginlegt að hafa gríðarlega
gaman af starfinu og lítum á það sem forrétt-
indi að fá að starfa við ástríðu okkar. David og
Derrick hafa starfað í tugi ára við þjálfun barna
og unglinga og búa yfir ómetanlegri reynslu.
Hafa þeir náð aðdáunarverðum árangri á sín-
um ferli. Er því uppbyggjandi og hvetjandi fyr-
ir mig að fá að starfa með þeim í teymi og sjá
hvernig þeir viðhalda metnaði sínum í þjálf-
uninni.
Við höfum allir gaman af því að fá að vinna
með kylfingum í öllum aldurshópum á hverjum
degi og höfum mikinn metnað til þess að við-
halda því sem er við höfum gert vel og bæta
það sem við getum bætt til þess að gera vinnu-
umhverfið enn betra og skemmtilegra fyrir
iðkendur og félagsmenn GR.“
Geta fengið búnað að láni
Hvernig er best fyrir krakka að stíga fyrstu
skrefin í golfíþróttinni? Fyrstu kynnin þurfa jú
að vera jákvæð og skemmtileg
„Fyrstu kynni barna af golfíþróttinni í gegn-
um tíðina eru gjarnan fyrir tilstuðlan eldri fjöl-
skyldumeðlima, ömmu eða afa, foreldra, eða
eldri systkina sem stunda íþróttina og draga
yngri skyldmenni með sér. Eru fyrstu kynnin
af golfinu ýmist þannig börnin vilja ólm komast
aftur í golf eða þykir þetta vera erfið og tíma-
frek afþreying.
Við leggjum mikið upp úr því að fyrstu kynni
þeirra barna sem við tökum á móti á skipulögð-
um æfingatímum, eða námskeiðum, séu jákvæð
og skemmtileg. Leggjum við mikinn metnað í
að krakkarnir fái góða grunnkennslu í tækniat-
riðum og sjái framfarir frá byrjun. Við lánum
búnað eins og golfkylfur á æfingatímum og get-
ur hver sem er mætt til æfinga án þess að eiga
kylfur eða annan útbúnað fyrst um sinn.“
Tveggja vikna prufuferli
Hvernig eru æfingar fyrir byrjendur upp-
byggðar?
„Æfingar fyrir þau yngstu eru yfirleitt upp-
byggðar í formi skemmtilegra leikja og þrauta
þar sem hver og einn keppir við sjálfan sig eða í
liði með vini eða vinkonu sem skapar góða
stemningu innan æfingahópanna og vilja til
þess að læra meira og bæta sig á milli æfinga.
Við tökum vel á móti öllum börnum og ung-
lingum sem hafa áhuga á því að byrja að æfa
golf og allir nýliðar 18 ára og yngri fá tveggja
vikna prufuferli til þess að kynnast íþróttinni,
æfingafélögum og þjálfurum áður og sjá þar
með hvort áhugi sé fyrir hendi til þess að byrja
að æfa af fullum krafti.
Markmiðið er ekki einungis að byggja upp
framtíðar-afrekskylfinga Golfklúbbs Reykja-
víkur. Þeir sem koma að þjálfuninni leggja
mikið upp úr því að hver og einn iðkandi geti
leikið golf í nútíð og framtíð á sínum forsendum
og hafi ánægju af. Það er misjafnt hvernig börn
og unglingar sem við tökum á móti horfa á hlut-
ina. Sumir finna fljótt að þeir hafa vilja og
metnað til þess að stefna hátt og leggja mikið á
sig til þess að ná árangri í keppnisgolfi á meðan
aðrir hafa einfaldlega ánægju af því að mæta á
æfingar, hitta æfingafélaga sína og bæta sig
nógu mikið til þess að vinna mömmu eða
pabba.“
Kynin æfa saman
Metnaður hvers og eins þróast því af sjálfu sér.
„Það er okkar þjálfaranna að sníða okkur að
markmiðum og forsendum hvers og eins. Við
eigum fyrst og fremst að skila ánægðum kylf-
ingum frá okkur. Æfingahóparnir eru aldurs-
skiptir og æfa stelpu- og strákahópar á sama
tíma með tveimur þjálfurum en í gamla daga
voru kynin aðskilin á æfingum en það hefur
reynst vel að blanda hópunum og fá stelpur og
stráka til þess að vinna saman. Þegar krakk-
arnir ná unglingsaldri getuskiptum við æf-
ingahópunum meira þannig að allir fái sem
mest út úr sínum tíma á hverri æfingu.
Við hvetjum alla krakka til þess að vera í
öðrum íþróttum með golfinu og komum til móts
við foreldra ef æfingatímar skarast á og skipu-
lagið við skutl á æfingar flækist,“ sagði Snorri
ennfremur.
„Eigum að skila ánægðum
kylfingum frá okkur“
Morgunblaðið/Hari
Snorri Páll Ólafsson á vinnustað sínum í Grafarholti í Reykjavík.
» Yfirþjálfari hjá GR. Barna- og unglinga-starfið heyrir undir hann en einnig af-
reksstarfið.
»Menntaður PGA-kennari og hefur komiðað þjálfun og öðrum störfum innan GR
undanfarin 10 ár.
»Meðlimur í GR síðan árið 1995 og fórsjálfur í gegnum barna-, unglinga- og af-
reksstarf GR sem ungur kylfingur.
Snorri Páll Ólafsson