Morgunblaðið - 27.08.2019, Side 6
6 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. ÁGÚST 2019
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
D
avid Barnwell er fyrir löngu orðið
þekkt nafn í golfhreyfingunni á Ís-
landi enda hefur hann kennt
nokkrum kynslóðum að sveifla
golfkylfum. Hingað kom David frá
Englandi árið 1986 og er orðinn harðsoðinn
Íslendingur. Morgunblaðið settist niður á
svölunum í golfskálanum í Grafarholti með
þessum litríka golfkennara sem valinn var
golfkennari ársins í fyrra af Samtökum golf-
kennara á Íslandi.
Eins og gefur að skilja hefur margt breyst
hér á eyjunni síðan David flaug til landsins í
febrúar 1986 í þeim erindagjörðum að ræða
við forráðamenn Golfklúbbs Akureyrar.
„Sem dæmi má nefna að gamla flugstöðin
var ennþá í notkun þegar ég kom fyrst.
Leifsstöð var ekki til þá og kom ekki fyrr en
árið eftir. Ég man þetta vel vegna þess að
mér fannst flugvöllurinn svo einkennilegur
og með tréveggjum. Ég hélt ég væri kominn
til Rússlands,“ segir David og hlær að minn-
ingunni. Óhætt er að segja að fyrsta heim-
sókn hans til Íslands hafi gengið brösuglega.
„Ég fór á Hótel Loftleiðir þegar ég kom á
föstudagskvöldi og átti flug til Akureyrar
daginn eftir. Ég komst ekki norður fyrr en á
sunnudagskvöldi vegna ófærðar. Þegar ég
reyndi að horfa út um gluggann á hótelher-
bergi mínu á þriðju hæð var þykkt lag af
snjó fast á glugganum,“ lýsir David en hann
ræddi við Akureyringa og samdi á miðviku-
deginum um að gerast golfkennari hjá GA.
Þá var hann hins vegar veðurtepptur á
Akureyri í tvo daga til viðbótar og fríið sem
hann tók sér frá starfi sínu í Leeds varð átta
dagar vegna þessara skakkafalla.
„Ég er frá Harrogate í Yorkshire. Er það í
nágrenni Leeds. Ég veit að Leeds United á
marga stuðningsmenn á Íslandi og ég er einn
sá harðasti sem fyrirfinnst í þeim efnum. Ég
er handviss um að nú fer liðið upp í úrvals-
deildina í vor en ég ætla ekki að jinxa það.
Ég jinxaði það nefnilega í fyrra,“ segir David
sposkur en á heimaslóðum kynntist hann
golfíþróttinni.
Í hans heimaklúbbi starfaði Howard Clark
um tíma en þeir sem lengi hafa fylgst með
golfi ættu að muna eftir honum. Clark var til
að mynda í Ryderliði Evrópu árið 1987 þegar
Evrópa vann Bandaríkin í fyrsta skipti á
bandarískri grundu. David hafði áhuga á því
að reyna fyrir sér sem atvinnukylfingur en
gaf drauminn um frægð og frama upp á bát-
inn eftir tvítugt. „Ég held að ég hafi verið 24
ára þegar ég ákvað að leggja frekar fyrir
mig kennslu og þjálfun. Ég fann að ég var
ekki nógu góður til að komast alla leið sem
atvinnukylfingur,“ útskýrir David en hann
segist hafa fengið góðan stuðning hjá for-
eldrum sínum þegar hann sinnti golfinu. Fyr-
ir fyrsta starfið hjá golfklúbbnum fékk hann
einungis 12 pund á viku í laun. Þreif kylfur
og gerði eitt og annað sem hann kallaði hálf-
gerða þrælavinnu.
John Drummond áhrifavaldur
Hvernig kom það til að David endaði á Ís-
landi? Hafa ber í huga að árið 1986 var golfið
ekki ofarlega á baugi hjá eyjarskeggjum.
Mikið vatn er runnið til sjávar síðan þá.
„John Drummond var golfkennari hjá GR
og hann var vinur minn. Það eina sem ég
vissi um Ísland var að John hafði staðið sig
vel hér sem golfkennari en hann var hér frá
1984-1991. Þannig kom þetta til og ég fékk
tækifæri til að fara til Akureyrar. Fólkið
heima hélt að ég væri ruglaður. Ég man ég
fór í viðtal við staðarblað heima og þar var
talað um eskimóa. Þeir vissu ekki neitt um
Ísland. Ég hef aldrei séð eftir þessari
ákvörðun,“ rifjar David upp en veðurguðirnir
tóku betur á móti honum þegar hann fluttist
til landsins.
„Ég flutti til Akureyrar í apríl 1986. Þá
var einnig snjór en þegar snjórinn var farinn
þá var geggjað veður allt sumarið. Það kom
bara ekki rigning og það voru sunnanáttir
allt sumarið. Jaðarsvöllur var í frábæru
standi og allt í kringum þetta var góð
reynsla fyrir mig. Ég kynntist miðnæturgolfi
í fyrsta skipti og upplifði Arctic Open. Það
tók reyndar tíma að venjast birtunni á nótt-
unni því ég svaf nánast ekki neitt fyrsta
sumarið. Ég var svo undrandi á því hversu
heitt var á Akureyri fyrsta sumarið. Miklu
betra veður en í Leeds. Þetta var stór
ákvörðun fyrir mig enda í fyrsta skipti sem
ég flutti að heiman. Eftir þá reynslu sem ég
fékk fyrsta sumarið gerði ég þriggja ára
samning við GA. Akureyri er ofboðslega fal-
leg. Auðvitað er víða fallegt á Íslandi en Ak-
ureyri er sérstaklega falleg og ég elska bæ-
inn og fólkið. Í framhaldinu keyrði ég einnig
um og kenndi af og til fyrir norðan og aust-
an; á Dalvík, Húsavík, Króknum, Eskifirði og
Egilsstöðum.“
Endurnýjaði ekki vegabréfið
Sé dvöl Davids á Íslandi dregin saman þá
segist hann nánast hafa eytt helmingi tímans
hjá GA og helmingi hjá GR. Hann var hjá
GA 1986-2001 fyrir utan eins árs dvöl í Nor-
egi 1998 sem við getum kallað hliðarspor.
Hann var hjá GR 2002-2007 en fór þá aftur
norður. Þá fór allt til helvítis eins og David
orðar það og á þar við bankahrunið. Fór
hann til Noregs árið 2009 og var í sextán
mánuði. Hann kom til Íslands 2011 og hefur
verið hjá GR allar götur síðan.
„Í dag er ég meiri Íslendingur en Eng-
lendingur. Ég er löngu kominn með íslensk-
an ríkisborgararétt. Mig minnir að það hafi
verið 1996. Gunnar Sólnes og Gísli Bragi
Hjartarson aðstoðuðu mig við það. Síðan þá
hef ég ekki endurnýjað breska vegabréfið.
Ég gæti gert það en hef ekki gert það. Þeg-
ar ég fer til Bretlands þá er það meira eins
og „deja vu“ en mér finnst ég vera heima
þegar ég er í Reykjavík eða á Akureyri. Ég
elska land og þjóð enda er erfitt að finna
betra land til að búa í heiminum. Ég mun
deyja á Íslandi.“
Gamlir nemendur eru víða
David Barnwell hefur haft mikil áhrif á golf-
íþróttina á Íslandi. Hann er heiðursfélagi í
GA og einn þeirra sem stofnuðu PGA-
golfkennarasamtökin á Íslandi. Kylfingar
sem hann hefur einhvern tíma þjálfað eru
víða í hreyfingunni, hvort sem horft er til
þeirra sem nú eru á fullu eins og Ólafíu Þór-
unnar Kristinsdóttur og Guðmundar Ágústs
Kristjánssonar, nýbakaðs Íslandsmeistara,
eða til þeirra sem eldri eru og starfa í hreyf-
ingunni. Þar má nefna Andreu Ásgríms-
dóttur, sem er framkvæmdastjóri hjá Golf-
klúbbi Suðurnesja, og Sigurpál Geir
Sveinsson, golfkennara og þrefaldan Íslands-
meistara.
„Ég elska að sjá þegar núverandi eða fyrr-
verandi nemendur standa sig vel. Fyrir mig
skiptir ekki máli á hvaða getustigi krakk-
arnir eru sem ég er að þjálfa. Að sjá þau
taka framförum og bregðast vel við leiðsögn
er það sem heldur manni gangandi. Ef við-
komandi verður Íslandsmeistari er það mjög
ánægjulegt en það er alveg jafn skemmtilegt
þegar krakkarnir ná einhverjum öðrum
markmiðum,“ segir David og hann fylgist
býsna vel með fólki sem hann hefur þjálfað.
Þar hjálpar Facebook til en þar sem David
hefur verið golfkennari í nær fjóra áratugi
leynast gamlir nemendur víða og á löngu ald-
ursbili.
Morgunblaðið/Hari
„Ég mun deyja á Íslandi“
Golfkennarinn geðþekki David Barnwell kom fyrst til Íslands árið 1986 og varð veðurtepptur bæði í Reykjavík og á Akureyri.
Tók engu að síður fljótt ástfóstri við land og þjóð og sér ekki lengur ástæðu til að endurnýja breska vegabréfið sitt
Þjálfararnir Snorri Páll Ólafs-
son, Derrick Moore og David
Barnwell vinna vel saman.