Morgunblaðið - 27.08.2019, Page 8
8 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. ÁGÚST 2019
V
ið lögðum nokkrar spurn-
ingar fyrir Heiðar Davíð
Bragason, fyrrverandi
Íslandsmeistara og yf-
irþjálfara hjá Golfklúbbi
Akureyar.Ef foreldrar vilja leyfa
barni sínu að prófa golf, hvernig
ber það sig að?
„Á sumrin er Golfskóli GA
starfræktur og er hann góður
byrjunarreitur fyrir börn sem
hafa áhuga á að mæta á golfæf-
ingar. Golfskóli GA er 4-5 daga
námskeið þar
sem lagt er upp
með að kynna
íþróttina í formi
leikja og var
hann haldinn
átta sinnum í
sumar þar sem
rúmlega 180
börn mættu á
námskeiðin í
heild sinni. Þeg-
ar iðkendur hafa
lokið tveimur námskeiðum geta
þau sótt fastar æfingar hjá okkur
og ganga námskeiðsgjöldin upp í
æfingagjaldið.“
Hversu mörg börn og unglingar
æfa hjá GA?
„Hjá GA eru um 90-100 börn á
aldrinum 6-18 ára að stunda æf-
ingar yfir sumartímann. Það hefur
orðið mikil aukning í barna- og
unglingastarfinu en í lok sumars
2017 voru um 55 iðkendur á þessu
aldursbili. Þjálfarar GA hafa að
undanförnu verið duglegir að fara
í nærsveitir og kenna krökkum
golf, til dæmis á Húsavík og Dal-
vík. Það eru tveir þjálfarar við fé-
lagið allan ársins hring en á sumr-
in bætast einnig við tveir
aðstoðarþjálfarar sem bæði hjálpa
til með æfingar og Golfskóla GA.“
Hafa val um æfingaálagið
Hversu margar æfingar eru í viku
og hvernig er þeim háttað?
„Á sumrin hafa börnin val um
fimm æfingar í viku þar sem æf-
ingarnar eru að lágmark ein og
hálf klukkustund í senn. Hver iðk-
andi velur síðan hversu oft í viku
hann vill mæta á æfingar. Eldri
iðkendur geta þar að auki sótt
aukaæfingar á morgnana og þann-
ig fjölgað æfingum í sjö æfingar á
viku ef vilji er fyrir því. Þar af eru
tvær æfingar í viku spilæfingar
þar sem eldri iðkendur spila ýmist
9 eða 18 holur á Jaðarsvelli en
einnig eru yngri iðkendur duglegir
að spila æfingavöll GA, Dúddisen,
sem er sex holu par 3 völlur.“
Hvernig fer mótahald fram á
sumrin og hvaða mótum eru börn
og unglingar að taka þátt í?
„Á hverjum þriðjudegi er
Þriðjudagsmótaröð GA þar sem
börn og unglingar keppa sín á
milli, annaðhvort 9 eða 18 holur.
Yngstu börnin og nýliðar spila á
par 3 holu vellinum. Við leggjum
áherslu á að þau sæki Norður-
landsmótaröðina, sem er mótaröð
sem klúbbarnir á Norðurlandi
standa fyrir. GA sendir kylfinga á
Íslandsbankamótaröðina, þar sem
allt að 15 iðkendur fara á hvert
mót. Einnig taka afreksunglingar
hjá GA þátt í einstaka mótum á
GSÍ mótaröð fullorðinna. Við bjóð-
um okkar bestu unglingum að
sækja mót erlendis á hverju ári og
förum einnig árlega í æfingaferð
til útlanda til þess að brjóta upp
vetrarstarfið og undirbúa okkur
fyrir sumarið.“
Hvernig er vetrarstarfinu hátt-
að?
„GA býr yfir góðri inniaðstöðu í
kjallara Íþróttahallarinnar á Ak-
ureyri. Þar er 18 holu púttvöllur,
tveir Trackman-golfhermar og þar
að auki er hægt að slá í net á sex
mottum. Krakkar í GA æfa þar
3-4 sinnum í viku undir hand-
leiðslu þjálfara. Á veturna heim-
sækja golfkennarar GA grunn-
skóla Akureyrar og kynna
golfíþróttina fyrir þeim í íþrótta-
tímum og hefur það reynst vel til
að fá fleiri börn til að byrja í golfi.
Einnig er öllum skólum á Ak-
ureyri og nágrenni velkomið að
heimsækja okkur á Jaðar á haust-
in og vorin með nemendur sína til
þess að prófa íþróttina.“
Hvað kostar að æfa golf hjá GA
og hvað er innifalið?
„Árgjald (æfingagjald) í GA fyr-
ir krakka 18 ára og yngri er eft-
irfarandi:
15-18 ára – 42.500 kr.
11-14 ára – 32.500 kr.
10 ára og yngri – 27.500 kr.
Árgjaldið nær bæði yfir sum-
artímann og vetrartímann og inni-
falin í því eru æfingagjöld og
ótakmarkað magn af boltum í
Klöppum, æfingasvæði GA. Iðk-
endur fá einnig heimild til að leika
Jaðarsvöll ótakmarkað sem og
Dúddisen, par 3 holu völlinn.“
Mikil fjölgun iðkenda á Akureyri
Löng hefð er fyrir golfiðkun á Akureyri á íslenskan
mælikvarða og er Jaðarsvöllur á meðal elstu
golfvalla landsins.
Ungir iðkendur á æfingasvæðinu við Jaðarsvöll á Akureyri.
Heiðar Davíð
Bragason
G
olfklúbburinn Keilir í Hafnarfirði er
fyrirmyndarfélag og uppfyllir
gæðakröfur ÍSÍ um barna- og ung-
mennastarf. Þjálfarar Keilis eru
menntaðir PGA-golfþjálfarar og
hafa mikla og góða reynslu af því að vinna
með börnum og ungmennum. Karl Ómar
Karlsson er íþróttastjóri Keilis en Björgvin
Sigurbergsson, fjórfaldur Íslandsmeistari,
þjálfar einnig hjá Keili. Við lögðum nokkrar
spurningar fyrir Karl varðandi barna- og ung-
lingastarfið.
Hvers vegna sótti félagið um viðurkenn-
inguna hjá ÍSÍ?
„Þegar ég var ráðinn í starf sem íþrótta-
stjóri Keilis var það mitt fyrsta verk að fá við-
urkenninguna sem fyr-
irmyndarfélag ÍSÍ.
Golfklúbburinn Keilir hafði
fyrir mörgum árum ráðist í
gerð metnaðarfullrar
íþróttanámskrár en hafði
samt aldrei fengið við-
urkenninguna fyrirmynd-
arfélag ÍSÍ. Þess vegna tók
ég verkið að mér og klár-
aði, við fengum viðurkenn-
inguna og við sjáum alls
ekki eftir því. Enda var
krafa frá Íþróttabandalagi Hafnarfjarðar að
Keilir skyldi ná sér í viðurkenninguna. Mér
finnst það skipta máli að þeir sem að vinna og
stjórna við íþróttaþjálfun geri öðrum grein
fyrir því, foreldrum, stjórnarmönnum, fé-
lagsmönnum og öðrum hvernig við vinnum
starfið okkar, af meiri fagmennsku og að
ákveðið gæðamat sé í gangi. Við leggjum
áherslu á það hvað er vel gert og hvað má
betur fara í starfinu okkar.“
Hafið þið verið með kynningar á golfíþrótt-
inni í bænum? Hvernig hefur til tekist?
„Á vorin og á haustin höfum við verið með
kynningar á golfi hjá 5.-7. bekk og einnig hafa
eldri bekkir grunnskólanna verið að mæta til
okkar á kynningar. Við gerðum samkomulag
við leikskólann Vesturkot í Hafnarfirði fyrir
þremur árum. Þá mæta elstu krakkar leik-
skólans í fastan golftíma hjá okkur einu sinni í
viku allt árið, þar sem við erum bæði inni og
úti að æfa golf og í bland við ýmsa leiki. Þetta
gekk svo vel að sum þeirra vildu halda áfram
og eru byrjuð að æfa golf í starfinu okkar.“
Hægt að stunda fleiri íþróttir
Hvernig hafa opnu æfingarnar tekist og mæta
margir á þær?
„Það var ákveðið að vera með opnar æfing-
ar vegna þess að sumir krakkarnir eru að æfa
aðrar íþróttir. Þá geta þau komið á bilinu milli
kl. 13.00 og 16.00 á daginn og æft golf. Þetta
fyrirkomulag hefur hentar mörgum ansi vel.
Þá geta þau mætt á golfæfingu fyrir eða eftir
aðrar íþróttaæfingar. Allir eru sáttir við fyr-
irkomulagið.“
Hvernig gengur að virkja foreldra barna og
unglinga til þátttöku?
„Það eru sífellt fleiri og fleiri foreldrar sem
eru að tengjast starfinu okkar með aukinni
þátttöku barna og unglinga á æfingum og í
keppnum. Mér finnst það skipta máli að
hvetja foreldra til að taka þátt og gera þeim
grein fyrir að öll hjálp er vel þegin.“
Hvernig hefur golfleikjaskóli Keilis gengið
á sumrin?
„Þegar ég tók við sem íþróttastjóri breytti
ég öllu varðandi golfleikjaskólann. Golf-
leikjaskólinn er fyrir allar stelpur og stráka á
aldrinum 5-8 ára og 9-12 ára. Markmið skól-
ans er að fyrstu kynni af golfi séu jákvæð og
það sé gaman að leika golf. Farið er í helstu
þætti golfleiksins, allt frá púttum til upphafs-
högga, leiknar eru nokkrar golfholur á golf-
velli. Kennsla er gjarnan í formi þrauta og
golfleikja en áhersla er á að kynna helstu
golfsiði og golfreglur fyrir krökkunum. Í sum-
ar var þriðja árið mitt sem skólastjóri golf-
leikjaskólans og hafa hátt í 350 krakkar kom-
ið á hverjum sumri í skólann og hefur það
skilað sér í fleiri börnum inn í íþróttastarf
okkar. Mér til aðstoðar eru efnilegir kylfingar
Keilis í bland við afrekskylfinga sem leiðbein-
endur við skólann.“
Eru breytingar í farvatninu?
„Í vetur verður lagt nýtt púttteppi í Hraun-
kotið í október og verður það mikil lyftistöng
frá teppinu sem er búið að vera í 12 ár í
Hraunkoti. Einnig verða keyptir tveir nýir
golfhermar af GC Hawk og GC Quad frá For-
esight af fullkomnustu gerð. Við viljum alltaf
gera gott starf hjá okkur betra og halda því
við sem golfklúbburinn Keilir er þekktur fyrir
en það er frábær árangur, besti golfvöllur á
Íslandi og góð aðstaða til golfiðkunar.“
Leikskólabörn í golfi í Hafnarfirði
Leikskólabörn og grunn-
skólakrakkar fá að kynnast
íþróttinni hjá Keili
Morgunblaðið/Ernir
Kylfingar á 18. flötinni á hinum glæsilega Hvaleyrarvelli í Hafnarfirði hjá Golfklúbbnum Keili en þar er orðin rík hefð fyrir golfinu.
Karl Ómar
Karlsson