Morgunblaðið - 27.08.2019, Síða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. ÁGÚST 2019
Ó
lafur Björn Loftsson, fyrrverandi
Íslandsmeistari í golfi og eini ís-
lenski kylfingurinn sem hefur
leikið á PGA-móti, hvetur alla
unga og efnilega kylfinga til að
fara í háskólanám í Bandaríkjunum eigi
þeir þess kost. Sjálfur fór Ólafur í UNC
Charlotte-háskólann í Norður-Karolínu, þar
sem hann gat æft og keppt í golfi við glæsi-
legar aðstæður um leið og hann menntaði
sig.
„Augljósu kostirnir eru náttúrlega að þú
æfir og keppir í golfi við bestu aðstæður
sem gerast fyrir áhugamenn í heiminum.
Samhliða því ertu að fá menntun sem er
náttúrlega gríðarlega mikilvæg. Þetta er
einstakt tækifæri fyrir unga kylfinga til að
láta drauminn rætast. Þetta er sérstaklega
gott fyrir Íslendinga þar sem við höfum
ekki tækifæri til að spila golf árið um kring.
Við erum með góðar aðstæður inni, en það
er ekkert sem jafnast á við að æfa við kjör-
aðstæður allt árið,“ sagði Ólafur í samtali
við Morgunblaðið. Hann segir misjafnt
hvort skólar hafi samband við kylfinga eða
öfugt.
Verður að vanda valið
„Þjálfarar skólaliðanna reyna mikið að hafa
samband við sterkustu kylfingana, jafnvel
3-4 árum áður en þeir byrja í námi. Annars
er ferlið mjög misjafnt og allur gangur á
því hvort frumkvæðið kemur frá þjálfurum
eða leikmönnum.“
Ólafur segir að kylfingar verði að vanda
valið þegar kemur að skólum í Bandaríkj-
unum, enda gríðarlega margir og misjafnir
skólar í boði.
„Það er mjög mikilvægt að finna hvað
hentar hverjum og einum. Bandaríkin eru
náttúrlega rosalega stórt land, svipað stórt
og öll Evrópa. Það er því mikill munur á
menningunni í mismunandi borgum og um
1.000 skólar sem hægt er að velja á milli.
Sumir leggja mikla áherslu á námið en aðr-
ir leggja aðaláhersluna á golfið. Einhverjir
kylfingar hafa gert þau mistök að fara bara
eitthvað og það eru helstu gallarnir í þessu;
þú getur endað á stað sem hentar þér ekki
mjög vel.
Ólafur lýsti venjulegum skóladegi hjá sér
á meðan hann var í námi. Dagarnir eru mis-
munandi í mismunandi skólum, en Ólafur
fékk nægan tíma til að einbeita sér að golf-
inu.
„Á venjulegum skóladegi hjá mér var lík-
amsrækt kl. 6:30 á morgnana. Eftir það var
skóli til 12:30 og eftir það annaðhvort farið
á golfæfingu eða spilað. Það voru und-
ankeppnir um að komast í liðið. Stundum
eru 10 í liðinu en bara fimm spila á hverju
móti. Á kvöldin fór maður svo að læra. Það
voru tólf mót hjá okkur á ári og þá fengum
við frí í skólanum. Það komu því dagar sem
var bara golf, en eftir að tímabilinu lauk var
í staðinn meiri áhersla lögð á námið. Í mínu
tilviki gerði ég lítið annað en að vera í skól-
anum og í golfi,“ sagði Ólafur Björn.
Sérstaklega gott fyrir Íslendinga
Einstakt tækifæri að leika golf í
Bandaríkjunum og afla sér
menntunar um leið
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Ólafur Björn Loftsson á Íslandsmótinu í
golfi í Grafarholti í ágúst. Þar varð hann
einmitt Íslandsmeistari árið 2009.
Kynningardagur
fyrir börn og unglinga 18 ára og yngri
Laugardaginn 14. septemberkl. 10.00–14.00 í Básum, Grafarholti.
Laugardaginn 14. september næstkomandi heldur Golfklúbbur Reykjavíkur kynningardag
ætlaðan börnum og unglingum 18 ára og yngri sem hafa áhuga á að kynnast golfíþróttinni.
PGA menntaðir golfkennarar og afrekskylfingar úr GR taka vel á móti gestum, frá kl. 10.00
–14.00, sem geta komið og farið eftir hentugleika á því tímabili.
Forráðamenn og aðstandendur velkomnir.
Dagskrá:
- Kennsla frá PGA golfkennurum í grunnatriðum leiksins
- Kynning á barna- og unglingastarfi GR
- Skemmtilegar æfingar og þrautir
- Spil á Grafarkotsvelli
- Fríir boltar í Básum - Trackman Range
Golfklúbbur Reykjavíkur útvegar gestum búnað til útláns á meðan kennslu stendur.
Sjáumst hress og kát í Básum þann 14. september
Hjá GR eru skipulagðar æfingar
með PGA-menntuðum þjálfurum
í boði allt árið í kring og þar
sem börnin geta sótt þrjár til
fjórar æfingar í viku auk
ýmissa viðburða og
fræðslu. Æfingar fara
að mestu fram í
Grafarholti á sumrin.
Í Básum og á æf-
ingasvæði í kringum
Bása.
Þá er boðið upp á
innanfélagsmótaröð fyrir
börn og unglinga í samstarfi
við Icelandair Cargo og hefur
þátttaka verið virkilega góð und-
anfarin ár. Tíu mót eru á dag-
skrá yfir sumarið þar sem skipt
er í flokka eftir aldri og getu.
Þar fá börn og unglingar eldsk-
írn sína í keppnisgolfi á heima-
velli sínum í ráshópum með æf-
ingafélögum sínum.
Það vekur kannski undrun
þeirra sem stunda ekki golf að
ekki er slegið slöku við yfir vet-
urinn og sækir fjöldi barna æf-
ingar innanhúss á Korpúlfs-
stöðum og í Básum.
Foreldrafélag GR heldur svo úti
púttmótaröð fyrir börn og for-
eldra alla sunnudaga frá
áramótum fram að vori
þar sem góð stemning
myndast og börn og
foreldrar setjast niður í
mótslok og fá sér hress-
ingu saman.
GR hefur einnig skipu-
lagt og sótt æfingaferðir til
útlanda að vori til undanfarin
10-12 ár þar sem iðkendur og
foreldrar sameinast og fínslípa
golfleikinn á grænu grasi við
bestu aðstæður áður en golfvell-
irnir eru opnaðir og sum-
artímabilið hefst formlega heima
á Íslandi.
Börnin eru í skipulögðum
æfngum og spila með þjálfurum
sínum frá morgni til kvölds og
foreldrar leika golf eða njóta sól-
arinnar samhliða.
Hvað er í boði hjá GR fyrir
iðkendur yngri en 18 ára?
GR býður upp á val þegar kemur að æfingum barna og unglinga eftir
því sem hentar hverjum og einum best. Að sögn Snorra Páls Ólafs-
sonar, yfirþjálfara, þá er æfingagjöldunum skipt í þrjá flokka: heils-
ársæfingar, hálfsársæfingar og sumaræfingar.
Eins og fram kemur í blaðinu er ýmislegt innifalið í æfingagjöldum
utan skipulagðra æfinga með þjálfurum og því má vel halda fram að
golfið sé ódýr kostur þegar horft er til ýmissa annarra íþrótta.
Heilsársæfingar: 46.200 krónur.
Hálfsársæfingar: 26.775 krónur.
Sumaræfingar: 17.010 krónur.
Þeir lesendur sem hafa áhuga á því að fræðast frekar um starfið geta
haft samband við skrifstofu Golfklúbbs Reykjavíkur í síma 585-0200 eða
haft samband við yfirþjálfara GR, Snorra Pál Ólafsson, í gegnum net-
fangið snorri@grgolf.is eða í síma: 5850216.
Hver er kostnaðurinn
við æfingagjöld?