Morgunblaðið - 27.08.2019, Síða 15
ÞRIÐJUDAGUR 27. ÁGÚST 2019 MORGUNBLAÐIÐ 15
Vertu
framúrskarandi
Til að skara fram úr í flóknum aðstæðum þarf
ástríðu, einbeitingu, viljastyrk og útsjónarsemi.
Í rekstri líkt og atvinnumennsku í íþróttum skiptir
máli að hafa forgangsröðunina í lagi og hugrekki til
að fara nýjar leiðir er byggja á þekkingu, reynslu og
réttum upplýsingum.Við leggjum okkur fram svo þú
skarir fram úr.
Kynntu þér þjónustuframboð KPMG á vefsíðu
félagsins eða hafðu samband í síma 545 6000
og við verðum þér innan handar.
kpmg.is
S
umar fjölskyldur sameinast
um áhugamál, hvort heldur
það heitir fjallamennska,
hestaíþróttir, veiði af öllu
tagi, eða golfið, en það er
einmitt sú íþróttagrein sem á hvað
auðveldast með að þétta hópinn innan
stórra sem smárra heimila.
Í tilviki hjónanna Elínar Sveins-
dóttur og Sigmundar Ernis Rúnars-
sonar er golfið fjölskyldusportið, en
ekki einasta sveifla þau hjónin kylf-
unum sumarlangt og drjúgan hluta
vetrar, heldur eru börnin þeirra Ernir
og Auður heilluð af sportinu og hafa
æft það frá unga aldri innan raða GR,
en þess utan eru systur Elínar og fjöl-
skyldur þeirra á kafi í golfi, svo og
gamli maðurinn, pabbi systranna sem
áttræður gefur ekkert eftir í því að
pútta fyrir fugli eða pari, stundum
reyndar skolla, eins og gengur.
„Golfið sameinar fjölskylduna og
býr til hennar gæðastundir, það er nú
ekkert flóknara,“ bendir Elín á og
maðurinn hennar bætir við: „Það er
magnað að geta spilað einn og sama
leikinn með barni sínu og maka,
venslafólki, vinum og tengdapabba á
jafnréttisgrundvelli. Einmitt þannig
er golfið,“ segir Sigmundur Ern-
ir.„Forgjafarkerfið gerir það að verk-
um að getan skiptir minna máli en
samveran.“ Elín tekur undir þetta:
„Það er óviðjafnalegt að sjá pabba
minn og dóttur mína í sama leik á sín-
um forsendum, með einbeitnina í al-
gerum forgangi, keppa hvort við ann-
að, en líka við sig sjálf – og geta svo
verið saman í einu og sama hollinu
eins og náin fjölskylda.“
Gæðastundir á golfvellinum
Sigmundur Ernir segir golfið hverf-
ast um gæðastundir, jafnt heima og
erlendis, í hans tilviki þétti það ekki
aðeins hjónalífið og fjölskylduböndin
heldur færi það honum slíkan fjölda
af félögum og vinum að vart eða ekki
verði jafnað við aðrar íþróttir:
„Það er eitthvað í sportinu sjálfu
sem gerir þátttakendurna að vinum,
jafnvel þótt þeir séu bara saman eina
dagstund í skemmtilegu holli.
Kannski er það vegna þess að hver og
einn er að keppa hvað mest við sjálfan
sig – og fær til þess óskoraðan stuðn-
ing frá spilafélögunum. Golfið gengur
nefnilega út á það að keppinautunum
gangi vel.“
Pabbi Elínar og tengdafaðir Sig-
mundar Ernis fékk fyrsta golfsettið
sitt í fimmtugsafmælisgjöf og tók
áminninguna alvarlega. Hafði verið
þessi dæmigerði iðnaðarmaður sem
lifði fyrir starfið og vildi helst hanga
eins lengi í vinnunni og hugsast gat,
en golfið breytti miklu:
„Við konan mín prófuðum þetta
skrýtna sport fyrir hvatningu dætra
okkar – og féllum bara fyrir því. Allt í
einu vorum við saman í frístundum og
nutum okkar með allri fjölskyldunni,
bæði heima og erlendis, en einnig
uppi í bústað á Flúðum sem við kom-
um á fót sakir nálægðarinnar við golf-
völlinn þar. Og svo hef ég á seinni ár-
um heillast af því hvað barnabörnin
mín eru að verða fær í golfinu. Ég
legg mig fram við að fylgjast með
þeim á mótum og það er ekkert síðra
að ganga með þeim átján holur en að
leika þær sjálfur. Svona sameinast
fjölskyldan í golfi,“ segir Sveinn, faðir
Elínar og Sigmundur Ernir tengda-
sonur hans bætir við: „Það er nú ekk-
ert verra að sjá þann gamla hreyfa
sig á meðan hann fylgist með ætt-
kvíslinni slá í gegn.“
Golfið er náttúrlega eitt helsta um-
ræðuefnið við matarborðið heima hjá
Elínu og Sigmundi Erni og það tak-
markar ekki umræðuefnið að verð-
andi tengdadætur og tengdasonur
þeirra eru líka heilluð af sportinu.
„En aðalatriðið er þetta,“ segja
hjónin: „Við getum leikið okkur með
börnunum okkar og líklega barna-
börnunum eins lengi og við viljum, jú
og gamla manninum í einu og sama
hollinu.“
Elín Sveinsdóttir og Sig-
mundur Ernir eru með
bakteríuna sem virðist
vera bráðsmitandi í
þeirra tilviki
Sveinn og ásamt barnabarninu Auði í golfi á Spáni árið 2011.
Fjölskyldan sameinast í golfi
Fjölskyldan við 18. flötina á Korpúlfsstaðavelli að loknum golfhring í sumarblíðunni.