Morgunblaðið - 30.08.2019, Side 2
Útlit er fyrir að útflutningsverð-
mæti fiskeldis á þessu ári verði á
við útflutningsverðmæti loðnu í
venjulegu ári. Stefnt er á frekari
vöxt á næstu árum.
16
2 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. ÁGÚST 2019
Blaðamaður sló á þráðinn til
Guðlaugs Óla Þorlákssonar,
útgerðarmanns og skipstjóra
á Hafborg EA. Hann segir
þorsk þvælast fyrir veiðum.
22
30.08.2019
30 | 08 | 2019
Útgefandi
Árvakur
Umsjón
Skúli Halldórsson sh@mbl.is
Blaðamenn
Skúli Halldórsson
sh@mbl.is
Auglýsingar
Bjarni Ólafur Guðmundsson
bog@mbl.is
Forsíðumyndina tók
Þröstur Njálsson
Prentun
Landsprent ehf.
Fiskveiðiárið 2018/2019 er nú brátt á enda og 200 mílur og Morgun-
blaðið gera það upp hér í þessu blaði með viðtölum við nokkra af
helstu forystumönnum tengda greininni.
Mál manna er að árið hafi verið ágætt, þó að loðnubrestinum hafi
fylgt þungt högg fyrir uppsjávarútgerðir og aðra þá sem reiða sig á
þau uppgrip sem fylgja vertíðinni alla jafna. Loðnan er eitt stórt
spurningarmerki, segir Sigurður Guðjónsson, forstjóri Hafrann-
sóknastofnunar, í viðtali í blaðinu. Ekki hafi tekist að mæla stofninn
vel undanfarin tíu ár.
Jens Garðar Helgason, formaður Samtaka fyrirtækja í sjávar-
útvegi, tekur í sama streng og segir loðnuna ólíkindatól. Loðnubrest-
urinn hljóti því að kalla á meiri fjárveitingar til hafrannsókna heldur
en verið hefur.
Ef til vill má þess vegna fagna því að nú hillir undir nýtt hafrann-
sóknaskip, en búast má við komu þess til landsins í byrjun árs 2022.
Ljósmynd/Þröstur Njálsson
Fiskveiðiárið ágætt en þungt högg fylgdi loðnubrestinum
Matís, í samstarfi við fleiri aðila,
hyggst kynna Íslendingum saltfisk-
inn. Til þess hefur verið stofnað til
sérstakrar saltfiskviku, sem haldin
verður í september.
18-19
6-12
Rætt er við forystu-
menn tengda sjávar-
útvegi um það fisk-
veiðiár sem nú er að
líða, auk þess sem
horft er til komandi
vertíða.
Fiskur er í auknum mæli fluttur
héðan úr landi óunninn. Formaður
SFÚ segir Ísland verða af miklum
verðmætum vegna þessa.
4