Morgunblaðið - 30.08.2019, Side 11
FÖSTUDAGUR 30. ÁGÚST 2019 MORGUNBLAÐIÐ 11
Eltak sérhæfir sig í sölu
og þjónustu á vogum
Bjóðum MESTA úrval
á Íslandi af smáum
og stórum vogum
Skúli Halldórsson
sh@mbl.is
R
áðgjöf Hafrannsóknastofn-
unar um aflaheimildir ár
hvert virðist nú orðin nær
óumdeild. Að minnsta
kosti á meðal þeirra ráða-
manna sem taka ákvörðun um hvort
fylgja eigi ráðgjöfinni eða ekki.
„Ráðherra fer að ráðgjöf stofnun-
arinnar eins og þeir hafa gert í mörg
ár. Menn virðast
því taka vel við
þessum boðskap,
sem er gott því
þetta er besta
fyrirkomulag sem
völ er á til að við-
halda sjálfbærum
veiðum við land-
ið,“ segir Sigurð-
ur Guðjónsson,
forstjóri Haf-
rannsóknastofn-
unar.
Spurður hvort einhver varúðar-
merki séu til staðar í helstu veiði-
stofnum við Íslandsstrendur bendir
forstjórinn á að við kynningu ráð-
gjafarinnar í vor hafi verið blikur á
lofti í þónokkrum tegundum.
„Það eru ákveðnar tegundir þar
sem við höfum ekki séð almennilega
nýliðun í dálítið langan tíma, og það
veit aldrei á gott. Þetta eru djúp-
karfi, langlúra, skötuselur, blálanga,
stórkjafta, gullkarfi og hlýri. Þorsk-
urinn er í ágætu standi en ýsan
minnkar eitthvað – þó hún sveiflist
vissulega alltaf eitthvað á milli ára.“
Hann segir það enn fremur ljóst
að humarinn sé í miklum vandræð-
um, þar sem ekki hefur sést góð ný-
liðun lengi. „Humarinn er langlíf
tegund en nú verðum við að draga
verulega mikið úr veiðum vegna
þessa.“
Loðnan er eitt stórt spurning-
armerki, segir Sigurður, en ekki
voru gefnar út aflaheimildir í loðnu á
liðnu fiskveiðiári því árgangurinn
sem kom til Íslands að hrygna var
lítill.
Loðnan er ólík þorskinum að því
leyti að sá fiskur sem ekki er veidd-
ur á tilteknu ári bætist ekki við veiði
næsta árs, þar sem hún deyr eftir
hrygningu.
„Þú verður að grípa loðnuna þeg-
ar hún kemur, því hún er svo
skammlíf. Góðu fréttirnar eru að
samkvæmt mælingum hefur þokka-
leg hrygning náðst í vor. Ungloðna
svokölluð – sem á eftir eitt ár til
hrygningar – hún mældist tiltölu-
lega léleg og við erum því ekki alltof
vongóð um komandi vertíð. En okk-
ur hefur nú gengið illa að mæla þetta
síðustu tíu árin eða svo.“
Farinn verður leiðangur með haf-
rannsóknaskipinu Árna Friðrikssyni
í lok september til að kanna ástand
loðnustofnsins. Er þá haldið í norð-
vestur í átt að Grænlandi. „Þá verða
einhverjar fréttir.“
Þorskurinn er eins og áður sagði í
ágætu standi og hefur sjaldan verið
betri. Endurskoðun á aflareglu í
þorski er að hefjast og mun ráðu-
neytið stýra þeirri vinnu að sögn
Sigurðar. „Þá eru líka teknar inn
efnahagsforsendur og annað – ekki
bara hvað er fiskifræðilega gott að
gera, heldur líka hvað er efnahags-
lega mikilvægt.“
Sú regla sem út úr því kemur mun
fara í rýni hjá Alþjóðahafrann-
sóknaráðinu. „Það mun taka ein-
hvern tíma,“ segir hann og bætir við
að ómögulegt sé að spá fyrir um
hvernig sú aflaregla verði.
Sjórinn í kringum Ísland er
óvenju hlýr og hefur verið það und-
anfarinn áratug.
„Þetta er hlýrri sjór en mælst hef-
ur við landið nokkurn tíma. Og það
er auðvitað farið að hafa áhrif. Þess-
ar breytingar skýra kannski af
hverju við fengum makríl inn í lög-
söguna, af hverju loðnan er í vand-
ræðum, af hverju ýsa er komin
hringinn í kringum landið í miklu
magni, af hverju skötuselur dreifir
úr sér og hugsanlega af hverju hum-
arinn er í vandræðum.
Allt er þetta breytingum undir-
orpið og þessar tegundir hljóta að
vera að svara breytingum í umhverf-
inu. Umhverfið hefur heilmikið að
segja.“
Nýtt rannsóknaskip í bígerð
Á hátíðarfundi Alþingis á Þingvöllum í júlí í fyrra var samþykkt að ríkið léti 3,5
milljarða króna renna til hönnunar og smíði nýs hafrannsóknaskips. Nýja
skipið kemur í stað rannsóknaskipsins Bjarna Sæmundssonar RE-30, sem
smíðað var árið 1970 og er komið mjög til ára sinna. Hafrannsóknastofnun
mun halda áfram að nota Árna Friðriksson, sem er mun yngra skip, smíðað
árið 2000.
Gæti komið til landsins 2022
„Nú er verið að vinna að því á fullu að hanna skipið og við stefnum að því að
það fari í útboð fyrri hluta næsta árs. Smíðatíminn gæti þá verið um það bil
tvö ár. Skipið gæti því verið komið til landsins í byrjun ársins 2022,“ segir
Sigurður. „Það er því fullt tilefni til að hlakka til.“
Fram undan er líka flutningur Hafrannsóknastofnunar í glænýtt húsnæði
við höfnina í Hafnarfirði. „Það verða mikil tímamót, sem sennilega verða í
nóvember. Húsið er hannað utan um okkar starfsemi þannig að því mun
fylgja nokkur bylting fyrir okkur.“
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Umhverfið hefur heilmikið að segja
Hjá Hafrannsóknastofn-
un hefur fólk ekki ýkja
góðar vonir um komandi
loðnuvertíð. Erfiðlega
hefur tekist að mæla
ástand stofnsins en
haldið verður í leiðangur
í lok september. Þokka-
leg hrygning náðist í vor.
Bjarni Sæmundsson við bryggju.
Nýtt skip á að koma í stað þess
gamla og von er á því árið 2022.
Sigurður
Guðjónsson
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Sjórinn í kringum landið er óvenju hlýr og hefur verið það undanfarinn áratug.