Fréttablaðið - 24.09.2019, Blaðsíða 14
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit-
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Hjördís Erna
Þorgeirsdóttir | hjordiserna@frettabladid.is s. 550 5767 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@
frettabladid.is s. 550 57686 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s. 550
5762 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf
Ábyrgðarmaður:
Kristín Þorsteinsdóttir
Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Atli
Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 550 5657, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@
frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is,
s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 550 5653,
Hilmar Kári starfar, sem verkefnastjóri hugbún-aðarlausna hjá STEF, hefur
grennt sig með breyttu mataræði
og aukinni hreyfingu en Guð-
laug Emma, eða Gullý eins og
hún er kölluð, fór í magabandsað-
gerð. Bæði hafa einnig tekið sig á
varðandi hreyfingu. Átak Hilmars
hófst í maí á síðasta ári. „Ég var
búinn að prófa ýmislegt án árang-
urs svo ég tók þá ákvörðun að fara
á ketó mataræði. Ég hafði heyrt að
fólk hefði náð árangri með því svo
það var allt í góðu að prófa,“ segir
hann. „Margir segja að mataræðið
skipti meira máli en flest annað
þegar maður vill létta sig. Fyrstu
sex mánuðina á ketó var ég ekkert
farinn að hreyfa mig en missti
engu að síður nálægt tuttugu kíló.
Núna er ég búinn að missa 40 kíló.
Áður var ég 130 kíló,“ segir Hilmar.
Gerist ekki á einni nóttu
Hann viðurkennir að þyngdin
var farinn að há honum mikið
í daglegu lífi. „Það er skerðing á
lífsgæðum að vera svona þungur.
Ég hef alltaf haft ágætis þol, bæði
til gangs og vinnu. Hins vegar
svitnaði ég mikið, var hættur að
geta beygt mig og mæddist við
minnstu hreyfingu. Þetta var
á engan hátt gott. Ég borðaði
iðulega seint á kvöldin og skildi
ekkert í því af hverju ég var með
bakf læði. Eftir að ég breytti
mataræðinu finn ég ekki lengur
fyrir því. Ég fasta hluta dagsins,
borða aldrei fyrr en um hádegið
og ekki seinna en klukkan sex
til sjö á kvöldin. Þetta hefur alls
ekki verið erfitt. Það er hausinn
sem stýrir öllum gerðum manns,“
útskýrir Hilmar. „Ég vil þó taka
fram að þetta gerðist ekki á einni
nóttu. Það tók alveg sinn tíma að
venjast þessu breytta lífi. Það tók
mig sjö mánuði að koma mér í það
ferli sem ég er í núna. Mér þótti
erfitt að venja mig á að borða ekki
á kvöldin og var oft mjög svangur
á morgnana. Það tók því tíma að
venja sig á þetta. Ég drekk sex
lítra af vatni á dag og bæti stein-
efnum út í það, svo set ég rjóma
út í kaffið mitt eða smjör. Þetta er
ekki f lókið.“
Snýr ekki til baka
Hilmar segir að það sé í raun
ekkert svo margt sem hann þurfi
að sleppa í mataræðinu. Það eru
kartöf lur, hrísgrjón, allt korn
og rótargrænmeti ásamt sykri.
„Ég sakna ekki þessara matvæla
vegna þess að mér líður betur
ef ég sleppi þeim. Ég er aðeins
farinn að leyfa mér á tyllidögum,
fékk mér til dæmis plokkfisk og
rúgbrauð um daginn en fékk mér
lítið á diskinn. Hugarástandið er
allt sem skiptir máli. Einnig hef ég
skorið niður áfengi sem var ekkert
mál þar sem ég hef aldrei verið
mikið fyrir það. Ég hljóp 10 km í
Reykjavíkurmaraþoninu í sumar
og ætla að fara 21 km á næsta ári,“
segir hann. „Ég byrjaði að hlaupa
eftir að ég léttist og fer í ræktina
þrisvar til fimm sinnum í viku.
Mér fannst ég þurfa að styrkja mig
eftir að ég léttist og fá liðleikann
í gang. Líkaminn þarf að vera í
góðu ástandi og ég mun ekki snúa
til baka til fyrra lífs. Lífsgæði mín
hafa gjörbreyst.
Það er til dæmis rosalega vond
líðan að geta ekki keypt sér föt
í venjulegri verslun. Ég fór einu
sinni í Primark í Bretlandi og það
voru engin föt þar sem pössuðu á
mig. Það var helst að ég fengi eitt-
hvað í Dressman XXXL. Núna hef
ég skorið öll X af fötunum mínum
nema eitt. Það munar tíu senti-
metrum á gömlu bolunum mínum
og þeim nýju.“
Elín
Albertsdóttir
elin@frettabladid.is Fjölskyldan
er sannarlega
ánægð með
árangurinn.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ANTON BRINK
Fyrir og eftir.
Efri myndin var
tekin á jólum
fyrir fimm
árum. Neðri
myndin var
síðan tekin um
síðustu jól.
HIlmar Kári
segir að þessi
mynd af sér
og hundinum
hans, Pjakki,
hafi haft áhrif
á hann og ýtti
honum út í að
breyta lífs-
stílnum.
Komst ekki í rússíbana
Gullý, systir Hilmars, hefur ekki
síður náð gríðarlegum árangri í
baráttunni við aukakílóin. Hún
segist hafa tekið þá ákvörðun um
jólin 2014 að gera eitthvað róttækt
í sínum málum. „Ég var stödd í
skemmtigarði með syni mínum
og ætlaði með honum í rússíbana.
Því miður gat ég það ekki því ég
passaði ekki í sætin.
Ég sá að þetta var ekki bara að
hafa áhrif á mín lífsgæði heldur
einnig sonar míns og ég varð því að
gera eitthvað í málunum. Ég hafði
heyrt af magabandsaðgerð og að
Auðun Sigurðsson væri farinn að
gera hana hér á landi. Ég ákvað að
panta tíma strax í janúar 2015 í
ráðgjöf,“ segir hún. Gullý var farin
að finna fyrir skertum lífsgæðum
og hafði minnkandi orku í dag-
Ég vil þó taka fram
að þetta gerðist
ekki á einni nóttu. Það
tók alveg sinn tíma að
venjast þessu breytta
lífi. Það tók mig sjö
mánuði að koma mér í
það ferli sem ég er í núna.
Hilmar Kári Hallbjörnsson
hátt. Ég hafði verið dugleg árinu
áður en ég fór í aðgerð að labba
en það var ekki nóg. Eftir aðgerð
kynntist ég Metabolic, en það er
kerfi sem hannað er af Helga Jónasi
Guðfinnssyni og byggist á stuttum
en áköfum æfingum. Það hentar
mér mjög vel og ég hlakka alltaf
til að fara á æfingar. Þetta er núna
hluti af mínum lífsstíl og ég reyni
að fara að minnsta kosti fimm
sinnum í viku. Núna hef ég orku
og getu í að gera hluti sem ég gat
ekki áður og ég hef líka lært að lifa
í núinu. Þetta er besta ákvörðun
sem ég hef tekið og mér finnst ég
hafa grætt mörg ár,“ segir Gullý.
Ketó virkar
„Við systkinin þurftum nauð-
synlega að breyta lífsstílnum og
það höfum við gert,“ segir Hilmar
sem er kvæntur bandarískri konu
og stefnir á f lutning til Banda-
ríkjanna. „Það var eiginlega konan
mín og dóttir hennar sem fóru
að tala um ketó mataræðið. Ég
greip boltann og byrjaði í þessu
með þeim. Konan mín hefur misst
20 kíló og dóttirin 22 kíló. Ketó
mataræðið virkar, svo einfalt er
það. Fólk sem ekki þekkir til talar
oft neikvætt um ketó. Uppistaðan
í matnum mínum er spínat, kletta-
salat og annað grænt salat. Ég set
ofan á það góðar olíur, osta og
fleira. Einnig borða ég feitt kjöt,
beikon, lambaframpart og annað
kjöt með góðri fitu. Áður borðaði
ég 400 g nautasteik. Nú dugar hún
í fjórar máltíðir. Ég get leyft mér að
kaupa fína nautasteik vegna þess
hversu lítið ég borða. Ég borða því
hollan og góðan mat. Uppáhalds-
maturinn minn er samt saltkjöt og
baunir en það borðar maður bara
einu sinni á ári,“ segir Hilmar Kári
hressilegur og ánægður með lífið
enda nýr og breyttur maður.
legum störfum. Hún var ekki með
nein heilsufarsleg vandamál en allt
stefndi í þá átt ef hún gerði ekkert
í sínum málum. Hún fór í aðgerð á
Akranesi 8. maí 2015 og fann strax
betri líðan.
„Orkan jókst, ég fór að finna
mun á mér, ekki bara líkamlega
heldur andlega líka og fór að
njóta þess að hreyfa mig. Bandið
hefur gert kraftaverk fyrir mig og
hjálpað mér að minnka matar-
skammtana, en skammtastærðir
voru minn helsti veikleiki. Ég nýt
þess að borða hægar og ég er ekki
frá því að maturinn bragðist betur
við það. Ég fór líka að njóta þess
meira að fara út á meðal fólks,
klæða mig upp á og gera mig fína.
Stærsti plúsinn var svo að geta gert
meira með syni mínum því orkan
var meiri og ég naut þess að hreyfa
mig með honum. Frá því að ég var
sem þyngst og þangað til núna
hafa farið 40 kíló. Líðan mín er
gjörbreytt bæði andlega og líkam-
lega. Mér finnst gaman að hreyfa
mig og það hefur hjálpað mér and-
lega líka. Ég er mun léttari á allan
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 4 . S E P T E M B E R 2 0 1 9 Þ R I ÐJ U DAG U R
2
4
-0
9
-2
0
1
9
0
5
:2
1
F
B
0
3
2
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
D
9
-0
2
5
8
2
3
D
9
-0
1
1
C
2
3
D
8
-F
F
E
0
2
3
D
8
-F
E
A
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
3
2
s
_
2
3
_
9
_
2
0
1
9
C
M
Y
K