Ágrip úr þjóðarbúskapnum - 01.04.1983, Blaðsíða 3

Ágrip úr þjóðarbúskapnum - 01.04.1983, Blaðsíða 3
árinu, en 12 000 tonn voru í birgðum um áramót. Fyrstu tvo mánuði ársins voru flutt út um 800 tonn af skreið. Þá má nefna, að reiknað er með, að afurðir væntanlegrar loðnubræðslu í haust verði ekki fluttar út fyrr en í ársbyrjun 1984. Loks er gert ráð fyrir nokkurri aukningu freðfiskbirgða. Niðurstaðan hvað sjávarútveginn varðar, er spá um lítilsháttar aukningu birgða í dæminu um óbreytta sjávarafurðaframleiðslu en birgðaminnkun í lakara dæminu. Auk þess er nú búist við að álbirgðir minnki um 10 000 tonn, samkvæmt upplýsingum ísal. Standist þessi spá, minnka birgðir útflutningsvöru í heild á þessu ári eftir hina miklu aukningu í fyrra. Viðskiptakjörin við útlönd rýrnuðu um l1/2% á árinu 1982, vegna töluverðrar lækkunar útflutningsverðs, einkum á sjávarafurðum, áli og kísiljárni. Horfur eru nú á, að viðskiptakjör batni á árinu 1983, einkum vegna lækkunar olíuverðs og hækkunar á verði áls og kísiljárns. í þjóðhagsspá 1983 er nú gert ráð fyrir, að meðalverð alls vöruútflutnings verði 1% hærra í Bandaríkjadollurum en í fyrra. Er þá reiknað með 2% lækkun á meðalverði sjávarafurða frá því sem var í fyrra. Verð á saltfiski er talið lækka um 20% en freðfiskverð hækka um 5%. Þá er búist við 20% verðhækkun á áli, 11% á kísiljárni, en að verð á öðrum iðnaðarvörum verði svipað og í fyrra. Hér er alls staðar miðað við verð í Bandaríkjadollurum. I þessu sambandi er rétt að benda á, að hækkun á álverði bætir ekki greiðslujöfnuð íslendinga í sama mæli og hækkun á verði sjávarafurða. Skráð olíuverð á Rotterdammarkaði lækkaði að mun í lok síðastliðins árs og í byrjun þessa en hefur hækkað nokkuð á ný á síðustu vikum. í þjóðhagsspá er miðað við, að skráð verð haldist út árið á svipuðu stigi og að undanförnu ‘, en þó verður að gera ráð fyrir nokkrum sveiflum vegna árstíðabreytinga í eftirspurn, eins og þegar sýnist farið að koma fram í bensínverði. Þess ber og að gæta að nokkur tími líður þar til skráð verð í Rotterdam kemur fram hér. í þjóðhags- spánni er nú reiknað með, að innflutningsverð á olíu hér á landi verði 12—13% lægra að meðaltali í ár en í fyrra. Meðalverð almenns vöruinnflutnings, annars en olíu, var á árinu 1982 ívið lægra en árið áður, ef miðað er við meðalgengi. Reiknað í dollurum svaraði þetta til meira en 7% lækkunar á árinu eftir 5% lækkun á árinu 1981. Reiknað er með, að verð á innflutningi öðrum en olíu verði svipað í dollurum í ár og í fyrra. Þessi áætlun er gerð með hliðsjón af spám alþjóðastofnana um verð í utanríkisviðskiptum og þróun innflutningsverðs hér á landi til loka ársins 1982. Miðað við lækkun olíuverðs um 12—13% lækkar verð alls vöruinnflutnings samkvæmt spánni um 2% reiknað í dollurum. Framangreindar spár um breytingar útflutnings- og innflutningsverðs leiða til þeirrar niðurstöðu, að viðskiptakjörin muni batna um 3% að meðaltali á árinu 1983. Kjör í þjónustuviðskiptum við útlönd fara nú einnig batnandi, og er reiknað með, að þau batni álíka mikið og vöruviðskiptakjörin, einkum vegna lækkunar vaxta á alþjóðalánamarkaði og verðlækkunar eldsneytis á flugvélar og skip í förum milli landa. Reiknað er með, að meðalvextir af erlendum lánum til lengri tíma en eins árs lækki úr nær 12% á árinu 1982 niður í 10% á árinu 1983, 1 Skráð verð í Rotterdam hinn 8. apríl var sem hér segir í dollurum: Bensín 286, gasolía 250, svartolía 164. 3

x

Ágrip úr þjóðarbúskapnum

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ágrip úr þjóðarbúskapnum
https://timarit.is/publication/1368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.