Jólatíðindi - 01.12.1939, Blaðsíða 2

Jólatíðindi - 01.12.1939, Blaðsíða 2
2 Jólatíðindi Það var aðfangadagskvöld. Úti var fannbylur, með stormi, svo að snjórinn fauk kringum húsin. En fæstir höfðu af því að segja, því að flestir voru inni hjá sér í hl);um herbergjum og búnir að hafa fata skipti, komnir úr hversdagsfötunum í hátíðafötin. Á mörgum heimilum iágu stórar hrúgur af jólagjöfum í kringum fót- inn á jólatrénu. Það mátti sjá á forvitnislegu augnaráði barnanna, hvað þeím bjó í brjósti. »Hvað skyldi nú vera í bögglinum þarna?« »Gaman þætti mér að vita, hvort ég ætti að fá þennan stóra böggul í« Þetta og þvf um líkt voru þau að hugsa. Þetta mátti lesa út úr aug- um þeirra. Nú gengu allir til kvöldverðar, og gleðin ljómaði í andlitum allra. Fyrst var lesið guðspjall dagsins og margur öfundaði hirðana fj'rir það, að þeir fengu aö heyra hinn dásam- lega englasöng: >Dýrð sé Guði í upphæðum, friður á jörðu og þókn- un Guðs á mönnunum*. Og ekki var laust við, að Betle hemsbúum væri ámælt fyrir það, að þeir tóku svo illa á móti frelsarao- um. Einhver sagði, að ef barnið hefði komið til þeirra, þá skildi það hafa fengið ólíkt betri viðtökur, þá skjfldi það ekki hafa þurft að sofa í jötu innan um fénaðinn. og þjóðir komist á vonarvöl. Eins er ástandið inn á við: Valdafíkn, fjárgræðgi og sjálfselska lýsa sér alstaðar, hjá háum og lágum, en Jesús andi, sem er óeigingjarn kær- leiki til Guðs og náungans, fær sjaldan að koma til mála. Árangur- inn verður ákafur stéttabardagi, inn- byrðis öfund og hatur milli stéttanna, Og á heimilunum og í hjörtunum er eins ástatt. Menn vilja ekki láta Jesú verða leiðtoga, eða boðorð hans mælikvarða lífs síns og framiomu, og þar af leiðandi getur hann ekki byggt þar ríki sitt 1 réttlátum friði og fögnuði; árangurinn verður ófrið- ur, sundrung, tómlæti og ósamrými. Guð gefi, að Jesús megi ná rétti sínum á jörðinni, að hinn heimilislausi konungur megi fá að stfga í hásætið, sem með iéttu er hans, og að ríki þessa heims megi bráðlega verða Drottins og hans hins smurða. Úá myndi jólakveðja englanna uppfyll- ast: »Dýrð sé Guði í upphæðum,. friður á jörðu og velþóknun meðal mannannac. Þá yrði jörðin aftur Paradís Ó, að minnsta kosti mörg hjörtu vildu hlíða áminningu Drottins á á þessum Jólum: »Opnið yður þér eiJífu hlið, svo að konungur dýrðar- innar megi ganga inn*. Já, megi friðarhöfðinginn fá að halda innreið sína í margar dýrmæt ar mannssálir! Komi þitt ríki, ástkæri Frelsari! Pá var drepið á dyr. Hver skyldi nú eiga erindi þaugað á sjálfa jóla- nóttina? Mamma gekk til dyra og opnaði hurðina varlega, til þess að hleypa ekki inn kuldanum, Pá gengur inn stálpaður piltur illa til fara. Hann var svartur á hár og ógreiddur, svo að heldur stakk í stúf við heimilis- fólkiö, allt kembt, klipt og þvegið, Pilturinn bar stóra körfu á hand- leggnum fulla af gipsmyndum. Hann tój^upp eina myndina og sagði um leið; >Kaupið Jesú, góðu hjón og börn, kaupið Jesú, kaupið Maríu, kaupið Jósef!« Það var grafkyrt í stofunni. Nú var öllum forvitni á að vita, hvað pabbi legði til málanna, og hann lét ekki á sér standa og kallar upp í einu vetfangi: »Út með þig flökku- kindin þfn, út með þig! Ertu svo djarfur að trufla jólaguðræknina hjá okkur með þessu gipsmynda rugli þínu! Hypjaðu þig, ellegar ég skal þrffa í kragann á þér og — — — Flökkudrengurinn hrökk nndan og fór, en pabbi hélt áfram að lesa jólaguðspjallið® Síðan var jólagjöf- unum skipt og gengið í kring um jólatréð. En öllum fannst svo eríitt að komast í gott jólaskap. f*að var eins og litli flökkudrengurinn hefði alveg spillt fyrir þeim jólafriönum. Flökkudrengurinn hélt nú áfram göngu sinni frá einum dyrunum til annara. Hann þurfti að selja mikið áður en hann kæmi heim aftur því annars átti hann vísa von á að fá að kenna á stafnum hans pabba sfns. Þegar hann hitti fyrir haröa og miskunnarlausa menn, þá hugsaði hann til flökkumanna-hreysisins úti í skógarjaðrinuns; honum fannst þá næstum sem hann heyrði blót og formælingar föður síns og finna ti) eymslanna undan stafshöggunum. Sumstaðar tókst honum að selja dálítið, en fyrir mjög lágt verð, því að þeir vildu ekki láta flökkudreng »hafa sig fyrir féþúfu*. Það var farið að verða framorðið og litli flökkupilturinn snýr heim- leiðis til sfns samastaðar og bjóst ekki við öðru en skömmum og ragni af því hann hefði ekki selt meira og leitað yrði á honum hátt og lágt til að vita, hvort hann hefði ekki ef til vill stungið neinu inn á sig, Því næst vonast hann eftir að fá hálf kroppaða hænu, sem einhver af heimafólkinu hefir stolið úr hænsna- garði náungans, eí annars nokkru yrði leyft, þegar hinir væru búnir að borða Lítið hús liggur hægra megin við götuna. Ljós skín f glugganum og honum liggur við að drepa á dyr. Honum finnst húsið þó svo fátæklegt að hann ásetur sér að fara fram hjá Þó var hann orðinn lafþreyttur. — Allt í einu sortnar honum fyrir sjón um. Hann sér ekkert, en þreifar sig samt áfram, Þegar minnst varði, rak hann höfuöið í vegg og við árekstuiinn vaknaði hann af dvalan- um, sem á hann var siginn, Hann sér þá, að hann er kominn að dyr- unum á lula húsinu, og fyr en hann gæti vikið sér við, er hurðin opnuð og kallað meö blfðri kvenmanns- rödd: »Hver er þarna?« Pá vakn aði óðara verslunarandinn í piltinum: »Gott kvöld! Góða frúl ég er að selja myndir: Kaupið Tesú, kaupið Maríu, kaupið Jósef!« »Veslings barn, kondu inn!* sagði góða konan. »Þú ættir ekki að vera úti svona síðla dags og í svona vondu veðri*, sagði hún. Þessi á- stúðlegu orð urðu veslings þreytta drengnum ofurefli — hann fór að gráta og misti körfuna með öllum myndunum, svo að þær molbrotnuðu, og hneig svo niður í snjóinn. — Þegar hann kom aflur til rænu, þá lá hann í legubekk f hlýju herbergi og í staðinn fýrir kvistótta stafinn hans föður síns, struku mjúkar barnahendut úfnu lokkana hans ógn blfðlega. Fjögur börn voru í kring um hann og öll kepptust þau á um að sýna hor.um kærleika. — Stundu síöar var hann settur að boröi með ekkjunni og börnunum hennar litlu. Hann sat þar sem húsbóndinn sat á sama kvöldi árið áður, Ekkjan haföi átt í vök að verjast, frá því maöurinn ’nennar dó, veturinn áður; en Guð hafði verið henni góður og börnunum, svo að þöu höfðu við og við getað dregið saman fáeinar krónur handa »fátæk- um«, og nú gáfu þau piltinum alla þá peninga og hann réði sér ekki fyrir fögnuði. Því næst lásu þau jólaguöspjallið, og flökkupilturinn hafði aldrei heyrt það fyrri, Og þegar mamma lét aftur bókina, stóðu tárin í augum hans. Hann bað um að lofa sér að sjá bókina. Og af hverju? Ekki var hann þó læs. Hann flettir blöð unurn og leggur bókina opna frá sér aftur. Pá beygja þau kné og biðja og síðan heldur hann af stað til flökkumannabúðanna. Þegar mamma gekk aftur að borðinu. til þess að láta biblíuna aftur, þá nemur hún augnablik staðar og andvarpar og segir: »Ég þakka þér Jesús, fyrir heimsóknina!* En á blaðinu, sem drengurinn hafðr sfðast flett upp, stóðu þessi orð: »Það sem þér hafið gert einum af þessum mínum minnstu bræðrum, það hafið þér gert mér*. Jólatréð Forðum þegar í fyrsta skipti átti að halda jól hér í Norðurálfu heims- ins, sagði Guð Faðir þremur engl- um sínum, að þeir skyldu fara og leita að jólatré, Það voru þeir þrír englar, sem honum þótti vænst um — engill trúarinnar, vonarinnar og kærleik- ans. Þeir fóru yfir engi og akra og allt til hins fjarsta skógar, það var afskaplega bitur kuldi. Þessir þrír englar töluðu hver við ann- an, — Er'gill trúarinnar — það var lag- ur hvítur engill með skær og blá augu, sem ávalt horfðu til himins, — Hann mælti fyrstur: »Þegar ég á að velja jólatré, skal það vera í í líkingu krossins, en standa þó beint*. Engill vonarinnar sagði: »Það tré, sem ég ætla að velja, skal ekki visna, það á að vera grænt vetur sem sumar og vera eins kröftugt og líflð, sem sigrar dauðann*. Engill kærleikans — hinn fegursti þeirra, sá, er þykir svo vænt um öll lítil börn, og ætíð ber lítil dreng á hægri handlegg sínum og litla stúlku á hinum vinstri, — mælti á þessa leið: »Það tré, sem ég vil helzt velja, verður að vera hlýlegt tré, sern breiðir greiuar sínar út til kærleiksríkrar varnar öllum smá- fuglnm, fyrir næðingum og stormi*. Hvaða tré fundu þeir svo? Hið blessaða grenitré, sem ber líkingu krossins í öllum greinum sínum, og sem er grænt á vetrum, þótt sujór og klaki hylji jörðina. Þegar þeir höðu fundið það, vildu þeir einnig hver fyrir sig gefa þvf einhverja gjöf. Engill trúarinnar gaf því hin fögru jólaljós, til þess að það gæti skinið með himneskum ljóma sem hina fyrstu jólanótt. Engill vonarinnur setti hina stóru og fögru stjörnu í topp trésins. Engill kærleikans fylti það með gjöfum frá fæti til topps. Og Guð Faðir gladdist yfir engl- um slnum. Verzl. „Eyjafjörður“ óskar viðskiptavinum sinum GLEÐILEGRA JOLA. N Ý K O M I Ð : Pottar, pönnur, emal. föt, mat- pottar, balar, könnur o. fl. — Kjólatau, flónel hvftur tvinni, Smávörur, jólakerti o. fl. Kristján Sigurðsson. Saumavélaolíu (Hvíta vaselinolíu) sel ég á glös. Sama lága verðið og áður. Steingr. Guðmundssoii Góð eldavél til sölu. Hjálpræðish erinn. Sængur- veraléreft hvítt tvíbreitt fæst í Kaupíél. Verkanianaa. Vefnaðarvörudeildin í Drammen í Noregi lá trúuð kona á sjúkrabeði sínu í mörg ár, Það var á aðfangadag jóla. Lítill drengur stóð við rúmið hennar og sagði henni, hvað mjög hann hlakk- aði til kvöldsins og jólatrésins. »Vesalings frænka, þú færð alls ekkert jólatré*, kallaði hann. Og vesalings frænka varð svo hnuggin yfir sínu þunga hlutskiptj Tárin runnu niður kinnar hennar. En svo sá hún sig um hönd og fyrirvarð sig fyrir ístöðuleysi sitt. »Ég hefi frelsara minn, hvers þarf ég frekar aö óska!* Um kvöldið hékk á jólatré litla drengsins bréf, og utan á það var skrifað: »Frá frænku*. Innan í bréfinu stóð: »Já, frænka hefir Kka jólatré, kom, og þú skalt í anda sjá! Fótur þess er Kristur liggjandí í íötur.ni. Toppurinn er Kristur í dýrð himins. Stofninn er krossinn með Kristi. Vökvi trésins er blóð ið, sem hreinsar oss af a!lri synd. Greinarnar eru allir menn, ungir og gamlir, smáir og stórir, sem eru í trúnni á Krist! Þegar ég geng með hryggð að stofninum, svalar vökvinn mér, svo ég fæ nýjan kraft; þegar ég angur- vær hvíli við fót trésins, beygir toppurinn sig brosandi niður til mfn. —

x

Jólatíðindi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Jólatíðindi
https://timarit.is/publication/1370

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.