Smári - 01.04.1929, Blaðsíða 10
16
S M Á R 1
— Jonni: Eru 7 eða 12 dagar í
árinu ?
Siggi: Hvorki 7 nje 12. Það eru
365 dagar í árinu, drengur! En það
eru 7 dagar í viku og 12 mánuðir í
árinu.
Jonni: Nú — jæja. Það er það,
sem hefir vilt mig!
— Faðirinn: Hvert ætlarðu ineð
þessa mýflugu, Fanney?
Fanney: Inn til mömmu. Jeg ætla
að láta hana búa til úlfalda úr henni
handa mjer. Þú sagðir í gær, aðhún
gerði aitaf úlfalda úr múflugunni. Jeg
ætla að sjá, hvernig hún fer að því! j
Verðlaunabotninn.
„Smára" bárust alls 8 botnar viö
öfugmæla-fyrripartinn í jólablaðinu
1928. Að öllu athuguðu dæmdi dóm-
nefndin
Steini Hilmar Bjarnasyni,
Ósi við Esklfjörð,
verðlaunin — 2 krónur. — Steinn er
12 ára gamall. — Botn hans hljóðar
þannig:
Hestur galar. Hani slœr.
Hundur smíöar rokka. —
Verður þá öll vísan þannig:
Krummi jarmar. Kisa hlœr.
Kindin prjónar sokka.
Hestur galar. Hani slœr.
Hundur smíðar rokka.
Þess skal getið, að Steinn litli skrif-
aði ábyrgðarmanni „Smára" með eig-
in hendi mjög snyrtilegt brjef, og var
það með þökkum þegið.
Fleiri botnar verða, ef til vill, birtir
síðar, og í næsta blaði kemur
nýr verðlauna-fyrripartur.
í tómstundum.
Ráðningar, sbr.
Eldspýtnaþrautin:
síðasta blað:
Stúkuheiti:
Perla.
Falin nöfn:
1. Anna (i-ann a-lt).
2. Ásta. 3. Lauga.
4. Laufey.
Frœndsemisgáta:
Móðir mín.
Taflþraut nr. 4. Lausnarleikur:
De4—hl.
Sitt af hverju.
Br. Tryggvi Jónsson,
skátaforingi frá Siglu-
firði, dvaldi um tíma
lijer á Norðfirði. Að
tilhlutun barnast. Vor-
perla leiðbeindi hann
nokkrum ungum mönn-
um í skátafræðum, og
Iauk einn þeirra hjá
honum hinu stærra skátaprófi og ann-
ar minna prófinu. Talsverður áhugi
er vaknaður fyrir skátareglunni með-
al æskulýðsins, og mjög er líklegt,
að með vorinu verði stofnaður skáta-
flokkur á Norðfirði. „Smári“ flytur
br. Tryggva Jónssyni alúðarþökk fyrir
starf hans hjer, og óskar honum góðs
gengis. —
— Prentvillur. í jólablaðinu 1928:
Bls. 42, fr. d.: Heimar fagni, les
himnar fagni. í síðasta blaði stóð,
að þaö væri gefið út í jan.—febr.
1928, í stað jan.—febr. 1929.
— Fregnir af hag og horfum ung-
lingastarfsins á Austurlandi kemur í
næsta blaði.
Prentsmiðja Sig. Þ. Ouðmundssonar, SeyðisfirBi