Hagskýrslur um sveitarsjóðareikninga - 15.05.1990, Blaðsíða 9
Inngangur
Introduction
1. Fjármál sveitarfélaga 1982-1984
The development oflocal government finances in 1982-1984
Afkoma sveitarfélaga 1982-1984. Umfang
sveitarfélaga eins og það kemur fram í þessari skýrslu
er annað en það sem mælt er í þjóðhagsreikningum.
Munurinn skýrist einkum af því að hér eru fjármál
sveitarfélaga sett fram sérstaklega, en í
þjóðhagsreikningum eru þau talin hluti af starfsemi
hins opinbera í heild. Þetta snertir fyrst og fremst
innbyrðis viðskipti ríkissjóðs og sveitarfélaga og þar
meðþaðhvarútgjöldafsameiginlegri starfsemi þessara
aðila eru talin. I þjóðhagsreikningum eru tilfærslur frá
ríkissjóði til sveitarfélaga færðar sem útgjöld hjá
ríkissjóði og koma til frádráttar vergum (brúttó)
útgjöldum sveitarfélaga. I reikningum sveitarfélaga—
og þar með í þessari skýrslu — eru þessar tilfærslur
taldar til tekna hjá þeim og koma þannig á móti vergum
útgjöldum þeirra. Þá koma tekjur af seldri þjónustu
sveitarfélaga til lækkunar á útgjöldum þeirra í uppgjöri
þjóðhagsreikninga og teljast í flestum tilvikum til
einkaneyslu. Hjá sveitarfélögum eru þessar tekjur
færðar í tekjuhlið rekstrarreiknings og eru hluti af
ráðstöfunarfé þeirra. Að síðustu eru öll fjármál
Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga talin hjá sveitarfélögum í
þjóðhagsreikningum. I þessari skýrslu kemurfram hjá
sveitarfélögum sá hluti af fjármálum Jöfnunarsjóðs,
sem varðar viðskipti hans við þau, en fyrirgreiðsla
sjóðsins við aðra aðila er ekki meðtalin.
Vægi sveitarfélaga í opinberum fjármálum hér á
landi er fremur lítið samanborið við grannríki okkar á
Norðurlöndum. Á tímabilinu 1982-1984 voru
sveitarfélögin 224 að tölu fyrstu tvö árin en þeim
fækkaði um eitt á árinu 1984 eftir sameiningu tveggja
hreppa. Flest þeirra eru tiltölulega lítil og fámenn og
verða því að sníða sér stakk eftir vexti og miða fjármál
sín við að þau séu sem næst íjafnvægi. I reynd eru það
aðeins fáir þéttbýlisstaðir sem geta eða hafa þörf fyrir
að ráðast í stærri framkvæmdir. I 1. yfirliti er gefin
nokkur mynd af fjármálum sveitarfélaganna í heild á
þessutímabili.
1. yfirlit. Tekjur og gjöld sveitarfélaga 1982-1984
Milljónir króna
á verðlagi hvers árs Hlutfall af VLF0
1982 1983 1984 1982 1983 1984
Heildartekjur 5.994 8.366 9,4 9,1 9,6
Skatttekjur 2Þ94 3.620 5.293 6.0 5.5 6,0
þ.a. beinir skattar 1.319 2.071 2.977 3,5 3,1 3,4
þ.a. óbeinir skattar 975 1.549 2.316 2,5 2,4 2,6
Þjónustutekjur 711 1.271 1.667 1,9 1,9 1,9
Innkomin framlög til fjárfestingar 385 693 975 1,0 1,1 1.1
Aðrar tekjur 207 410 431 0,5 0,6 0,5
Heildargjöld 6.332 7.881 10,1 9,6 9,0
Rekstrargjöld 2.424 4.180 5.492 6,3 6,4 6,3
Fjármagnskostnaður 295 490 390 0,8 0,7 0,4
Gjöld til fjárfestingar 1.140 1.662 1.999 3,0 2,5 2,3
Tekjujöfnuður -262 -338 485 -0,7 -0,5 0,6
1) Verg landsframleiðsla.