Hagskýrslur um sveitarsjóðareikninga - 15.05.1990, Page 23
Sveitarsjóðareikningar 1982-1984
21
vinnuvélum, bílum og vélasamstæðum. Þessareignir
eru færðar í eignahlið á efnahagsreikningi. Bein þátttaka
annarra aðila í eignfærðri fjárfestingu, t.d. framlög úr
ríkissjóði, eru færð í tekjuhlið rekstrarreiknings. Ekki
er reiknað með árlegri afskrift húseigna eða annarra
varanlegra rekstrarfjármuna sveitarsjóðs, heldur er
verðmæti eigna fært í samræmi við mat eins og það er
á hverjum tíma. Gert er ráð fyrir að breyting á matsverði
sé fœrð á endurmatsreikning undir eigið fé í
efnahagsreikningi.
Úrvinnsla ársreikninga 1982 til 1984. í bókhaldslykli
sveitarfélaga er meðal annars gert ráð fyrir að útgjöld
til málaflokka séu brúttófærð og er við það miðað í
reikningseyðublöðum Hagstofu. Fyrstu árin eftir að
bókhaldslykillinn var tekinn upp var þó algengt að
sveitarfélög sendu inn reikninga þar sem aðeins komu
fram nettóútgjöld til rekstrar á málaflokka. Þetta átti
einkum við lítil og meðalstór sveitarfélög. Ennfremur
gætti í byrjun nokkurrar ónákvæmni í gjaldfærslu og
eignfærslu fjárfestinga, þ.e. einhver tilhneiging var til
að eignfæra frekar en gjaldfæra fjárfestingu eða til að
færa á rekstur það sem réttara hefði verið að færa á
gjaldfærða fjárfestingu. Við úrvinnslu á Hagstofunni
hefur verið reynt að leiðrétta slíkt og samræma eins og
kostur var.
Upplýsingar sveitarfélaga hafa farið batnandi ár
frá ári en þó hefur ekki þótt fært að sundurgreina tekjur
og verg gjöld í rekstri eftir málaflokkum við töflugerð
fyrir einstök sveitarfélög í þessari úrvinnslu. Ekki er
heldur greint á milli gjaldfærðrar og eignfærðar
fjárfestingar eftir málaflokkum. Heildartölur þessara
liða eru þó sýndar eftir sveitarfélögum í töflunum, en
ætla má að rekstrartekjur, sem þar koma fram, séu
eitthvað vantaldar og að nokkurrar ónákvæmni gæti í
skiptingu milli gjaldfærðrar og eignfærðrar fjárfesting-
ar. Hvorug skekkjan er þó ýkja stór í heildamiðurstöðum.
í þessu hefti eru þrjár megintöflur fyrir hvert hinna
þriggja ára, þrjár gerðir sem eru eins fyrir hvert ár.
Tafla I (fyrir hvert ár) sýnir alla úrvinnslu reikning-
anna eftir kjördæmum, kaupstöðum, sýslum og eftir
hreppum með yfir 400 íbúa. Varðandi mörk hreppa
miðað við 400 íbúa er rétt að taka fram, að hreppar sem
einhvern tíma á tímabilinu hafa 400 eða fleiri íbúa eru
teknir með í þessari sundurliðun. Tafla I hefst á að sýnd
er hei ldarfjárhæð sameiginlegra tekna og sundurliðun
þeirra. Til sameiginlegra tekna sveitarfélaga eru taldar
almennar skatttekjur, þ.e. skattar sem ekki eru markaðir
til ákveðinna verkefna, vaxtatekjur og aðrar tekjur sem
ekki eru sérmerktar ákveðnum verkefnum. Þar á eftir
sýnir taflan heildarfjárhæðir rekstrargjalda og rekstrar-
tekna, en síðan fylgir sundurliðun rekstrargjalda að
frádregnum rekstrartekjum á 16 málaflokka með
nokkurri greiningu á deildir og starfsemisþætti innan
málaflokka. Hér eru eingöngu sýnd rekstrargjöld að
frádregnum rekstrartekjum. I þriðja hluta töflunnar
kemur fram heildar skipting gj aldfærðrar og e ignfærðrar
fjárfestingar ásamt framlögum þar á móti. Þá fylgir
sundurliðun fjárfestingar og framlaga þar á móti á 16
málaflokka og nokkur sundurliðun á deildir og
starfsemisþætti innan málaflokka. Fjórði hluti töfl-
unnar sýnir fjármagnsyfirlit og greiningu þess eftir
uppruna og ráðstöfun fjármagns. Fimmti hluti töfl-
unnar sýnir efnahagsreikning og sundurliðun hans í
eignaliði, skuldaliði og mismunandi þætti eigin fjár.
Sjötti og síðasti hluti töflunnar sýnir rekstrargjöld,
rekstrartekjur, eignir og skuldir vatnsveitna, rafveitna,
hitaveitna og hafnarsjóða sveitarfélaga, sem rekin eru
sem fyrirtæki sveitarfélaga með sjálfstœðan fjárhag.
Tafla II sýnir fjárhæðir meginstærða í töflu I í
krónum á íbúa eftir sömu skiptingu á kjördæmi,
kaupstaði, sýslur og hreppa og í töflu I. Þessi tafla
einfaldar mjög samanburð milli sveitarfélaga.
Tafla III sýnir sundurliðun í 36 liðum á gjöldum,
tekjum, eignum og skuldum sveitarfélaga með færri en
400 íbúa, þ.e. þeirra sveitarfélaga sem ekki koma fram
nema í samtölum í töflum I og II.