Hagskýrslur um sveitarsjóðareikninga - 01.02.1993, Page 5
Formáli
Þessi skýrsla um fjármál sveitarfélaga árið 1989 er framhald
af fyrri ritum Hagstofunnar um sama efni. Eins og greint er
frá í formála undanfarinna skýrslna hefur útgáfa sveitar-
sjóðareikninga síðasta áratuginn tafist mjög. Þetta stafar
bæði af vandkvæðum við samræmda skýrslugerð um s veitar-
sjóði eftir upptöku nýs bókhaldslykils og nýs ársreiknings-
forms fyrir sveitarfélög árið 1979 og af vanskilum sveitarfélaga
á ársreikningum til Hagstofunnar.
Árin 1988 og 1989 var gert sérstakt átak til þess að ná inn
þeim reikningum fyrri ára, sem enn voru í vanskilum. Var þá
meðal annars beitt þeim úrræðum að stöðva greiðslur úr
Jöfnunarsjóði sveitarfélagatil viðkomandi sveitarfélagaeins
og lög gera ráð fyrir. Þetta bar þann árangur að unnt var að
ljúka úrvinnslu sveitarsjóðareikninga áranna 1979-1986 og
voru niðurstöður birtar í þremur ritum Hagskýrslna Islands.
Fjórða ritið sem tekur til áranna 1987 og 1988 kom út í
desember sl. Þetta rit tekur til ársins 1989, en skýrslur um
fjármál sveitarfélaga 1990, 1991 og 1992 verða birtar síðar
á þessu ári.
Efni þessarar skýrslu skiptist í þrjá hluta. I fyrsta lagi er
gerð grein fyrir afkomu sveitarfélaga árið 1989, bæði í heild
sinni og eftir íbúafjölda. I annan stað er fjallað um helstu
skilgreiningar og skýringar við megintöflur skýrslunnar. I
þriðja lagi eru megintöflur sýndar og samanstanda þær af
þremur töfluyfirlitum yfir fjárhag hvers sveitarfélags og einu
yfirliti sem sýnir afkomu fyrirtækja sveitarfélaga sem hafa
sjálfstæðan fjárhag.
Á Hagstofunni hafa Gunnar H. Hall og Kristinn Karlsson
haft umsjón með úrvinnslu sveitarsjóðareikninga og annast
gerð þessarar skýrslu, en Sigurborg Steingrímsdóttir hefur
annast umbrot bókarinnar.
Hagstofa íslands í febrúar 1993
Hallgrímur Snorrason
Preface
This publication is a continuation of previous reportsön local
government fmances by the Statistical Bureau of Iceland.
The publication of these reports for the last decade has been
severely delayed. This was the result of both, the adoption in
1979 of a new system for annual financial statements of local
governments which caused considerable difficulties in con-
structing coordinated accounts for this sector and of neglect
by many municipalities to supply the Statistical Bureau with
their accounts in the new form.
In 1988 and 1989 a special effort was made in collecting
financial statements from those local authorities that had
neglected to return the prescribed questionnaires to the Sta-
tistical Bureau. This made it possible to finalize the statistics
on local government finances in the period 1979-1988. These
are published in four reports. This report covers the year 1989
and reports for the years 1990, 1991 and 1992 will be
published later this year.
This report falls into three parts. The first part contains an
outline of the development of local government finances in
1989. In the second section an account is given of main
defmitions and explanations to the main tables. These form
the third part of this report.
The Statistical Bureau of Iceland in February 1993
Hallgrímur Snorrason
Director