Hagskýrslur um sveitarsjóðareikninga - 15.01.1994, Qupperneq 9
Inngangur
Introduction
1. Fjármál sveitarfélaga 1991
The development oflocal govemment fmances in 1991
Sveitarfélög 1991. Eftir töluverð umskipti með nýjum lögum
um verkaskiptingu milli ríkis og sveitarfélaga er tóku gildi í
ársbyrjun 1990 urðu tiltölulega litlar breytingar á málefnum
sveitarfélaga á árinu 1991. Arið 1990 voru s veitarfélögin 204
að tölu og hafði þeim fækkað um níu frá árinu á undan.
Sveitarfélögunum fækkaði ennum þrjúáárinu 1991 og voru
því 201 í lok þess árs. Frá árinu 1983 hefur sveitarfélögunum
fækkað úr 224 eða um 23. Eins og fjöldi sveitarfélaga hér á
landi gefur til kynna eru flest þeirra tiltölulega lítil og
fámenn. Af þeim sökum er fjárhagur þeirra nokkuð þröngur
og miðast fjármálastjórn þeirra við að hann sé sem næst í
jafnvægi.
Skýrslur Hagstofu um fjármál sveitarfélaga byggja á
ársreikningum þeirra. A undanförnum árum hefur verið lagt
hart að sveitarfélögum að standa skil á reikningum sínum en
þau hafa verið með misjöfnum hætti og því tafið skýrslu-
gerðina. Skýrist það meðal annars af því hve mörg og fámenn
sveitarfélög eru hér á landi. Skilin hafaþó batnað verulega á
síðustu árum og hefur tekist að afla gagna frá langflestum
sveitarfélaganna. Eftirfarandi yfirlit sýnir skiptingu sveitar-
félaganna og fbúafjölda þeirra ásamt skilum þeirra á
ársreikningum til Hagstofunnar.
1. yfirlit. Sveitarfélög 1990 og 1991. Skil ársreikninga
Table 1. Local government in 1990 and 1991. Annual accounts returned
Höfuð- Önnur sveitarfélög eftir íbúafjölda
Allt borgar- Other municipalities by number ofinhab.
Whole Capital 1.000- 400-
country regionn >3.000 3.000 999 <400
Árið 1990 1990
Heildarfjöldi sveitarfélaga 204 9 7 19 25 144 Municipalities, total
Hlutfallsleg skipting 100,0 4,4 3,4 9,3 12,3 70,6 Percentage break-down
Heildarfjöldi íbúa 255.708 145.980 41.673 29.504 15.694 22.857 Inhabitants, total
Hlutfallsleg skipting 100,0 57,1 16,3 11,5 6,1 8,9 Percentage break-down
Skil ársreikninga Annual accounts returned
Fjöldi sveitarfélaga 200 9 7 19 25 140 Municipalities
Hlutfall af heildarfjölda 98,0 100,0 100,0 100,0 100,0 97,2 Per cent oftotal
Fjöldi íbúa 255.391 145.980 41.673 29.504 15.694 22.540 Inhabitants
Hlutfall af heildarfjölda 99,9 100,0 100,0 100,0 100,0 98,6 Per cent oftotal
Árið 1991 1991
Heildarfjöldi sveitarfélaga 201 9 7 19 28 138 Municipalities, total
Hlutfallsleg skipting 100,0 4,5 3,5 9,5 13,9 68,7 Percentage break-down
Heildarfjöldi íbúa 259.577 149.482 42.136 29.536 17.617 20.806 Inhabitants, total
Hlutfallsleg skipting 100,0 57,6 16,2 11,4 6,8 8,0 Percentage break-down
Skil ársreikninga Annual accounts returned
Fjöldi sveitarfélaga 199 9 7 19 28 136 Municipalities
Hlutfall af heildarfjölda 99,0 100,0 100,0 100,0 100,0 98,6 Per cent oftotal
Fjöldi íbúa 259.482 149.482 42.136 29.536 17.617 20.711 Inhabitants
Hlutfall af heildarfjölda 99,96 100,0 100,0 100,0 100,0 99,5 Per cent oftotal
Höfuðborgarsvæðið nær yfir þéttbýlissveitarfélögin og nærliggjandi sveitarfélög frá Hafnarfirði að Hvalfjarðarbotni. Capital region includes capital area
and the neighbouring district.
Yfirlitið sýnir fækkun sveitarfélaga um þrjú milli ára og
nokkra tilfærslu á milli flokka fámennari sveitarfélaganna.
Sveitarfélögum í fámennasta flokknum fækkaði um sex á
árinu 1991 eða úr 144 í 138. Sveitarfélögum innan þessa
flokks fækkaði um þrjú vegna sameiningar sveitarfélaga á
árinu 1991 en þau voru eftirfarandi:
a) Hrafnagilshreppur, Saurbæjarhreppur og Öngulsstaða-
hreppur sameinuðust í eitt sveitarfélag, Eyjafjarðar-