Hagskýrslur um sveitarsjóðareikninga - 15.01.1994, Blaðsíða 24
22
Sveitarsjóðareikningar 1991
2. Bókhaldslykill sveitarfélaga, úrvinnsla gagna og skýringar við töflur
Local governmenl chart af accounts, processing of data and explanatory notes to the tables
Bókhaldslykill Sambands íslenskra sveitarfélaga. I
ársbyrjun 1979 tók Hagstofan upp nýtt og breytt ársreiknings-
form sem var sniðið eftir nýjum bókhaldslykli fyrir
sveitarfélög. Var hann saminn af sérstakri bókhaldsnefnd á
vegum Sambands íslenskra sveitarfélaga í þeim tilgangi að
koma á samræmi í bókhaldi og reikningsskilagerð hjá sveitar-
félögum.
Grundvallarlykill hins samræmda bókhalds hefur 8 sæti.
Fyrstu tvö sæti hans sýna málaflokka og bókhaldseiningar
sveitarsjóðs. Þau eru bundin fyrir öll sveitarfélög. Næstu tvö
sæti eru notuð til sundurliðunar í deildir og starfsemisþætti.
Næstu þrjú sæti lykilsins (5.-7.) eru notuð til sundurliðunar
á tegundir útgjalda og tekna. Loks er síðasta sæti lykilsins
notað til flokkunar á tekjum og gjöldum á rekstur, gjaldfærða
eða eignfærða fjárfestingu.
Arsreikningsform Hagstofu fylgir bókhaldslyklinum en er
ekki jafn sundurliðað. Það sýnir fyllstu sundurliðun á fyrstu
tvö sæti lykilsins og hið síðasta. Hins vegar er ekki beitt
fyllstu sundurliðun á 3. og 4. sæti og forntið gerir ekki ráð
fyrir tegundasundurliðun samkvæmt 5.-7. sæti lykilsins.
Eftirtöldum meginreglum er beitt í uppgjöri Hagstofunnar
um færslu bókhalds og reikningsskil sveitarfélaga.
Allartekjuroggjöld,semtilheyrahverjuuppgjörstímabili,
þ.e. almanaksárinu, eru færð á því tímabili án tillits til hvenær
greiðsla fer fram. Með öðrum orðum þá er hér um s vonefndan
rekstrargrunn að ræða. Þannig eru óinnheimtar tekjur færðar
til tekna á rekstrarreikningi og til eignar í efnahagsreikningi.
A sama hátt eru ógreidd gjöld færð til gjalda í rekstrarreikningi
og til skuldar í efnahagsreikningi.
I einu heildaryfirliti er nefnist rekstrar- og framkvæmda-
yfirlit er greint á milli rekstrar sveitarfélaga, gjaldfærðrar
fjárfestingar og eignfærðrar fjárfestingar þeirra. A rekstur
færast allartekjur og gjöld sem varða rekstur sveitarsjóðs. Á
gjaldfœrða fjárfestingu færast útgjöld vegna allra
framkvæmda og eignabreytinga, sem ekki eru eignfærð í
efnahagsreikningi. Þannig teljast liðir eins og götur, holræsi,
leikvellir, skrúðgarðar, innanstokksmunir og áhöld til
gjaldfærðrar fjárfestingar. I tekjuhlið er færð bein þátttaka
annarra aðila í viðkomandi gjaldfærðri fjárfestingu, svo sem
gatnagerðargjöld og þéttbýlisvegafé. Til eignfœrðrar
fjárfestingar teljast útgjöld til kaupa á fasteignum, vinnu-
vélum, bílum og vélasamstæðum. Þessar eignir eru færðar í
eignahlið í efnahagsreikningi. Bein þátttaka annarra aðila í
eignfærðri fjárfestingu, t.d. framlög úr ríkissjóði, eru færð í
tekjuhlið eignfærðrar fjárfestingar. Ekki er reiknað með
árlegri afskrift húseigna eða annarra varanlegra rekstrarfjár-
muna sveitarsjóðs, heldur er verðmæti eigna fært í samræmi
við mat eins og það er á hverjum tíma. Gert er ráð fyrir að
breyting á matsverði sé fcerð á endurmatsreikning undir
eigið fé í efnahagsreikningi.
Breytingar ársreikninga sveitarfélaga 1990. í VIII. kafla
sveitarstjórnarlaga nr. 8/1986 er fjallað um fjármál
sveitarfélaga. Reglugerð samkvæmt 81. gr. laganna, um
bókhald og ársreikninga sveitarfélaga, var sett á árinu 1989.
11. kafla reglugerðarinnar eru ákvæði um bókhald sveitar-
félaga, en þar segir m.a. að gefin skuli út handbók um
reikningshald sveitarfélaga og fyrirtækja þeirra og þar skulu
koma fram leiðbeinandi reglur um flokkun og greiningu á
tekjum og gjöldum, eignum og skuldum sveitarfélaga á
hverjum tíma. Slíkur bókhaldslykill fyrir reikninga sveitar-
félaga hefur eins og áður sagði verið í notkun frá reikningsárinu
1979. Setning reglugerðarinnar hafði því ekki áhrif til
breytinga hvað þetta varðar, og breytingar á málaflokkum
rekstrar- og framkvæmdayfirlits voru óverulegar.
III. kafla reglugerðarinnar eru ákvæði um ársreikninga
sveitarfélaga, en í 9. gr. hennar segir að sveitarfélög, stofnanir
þeirra og fyrirtæki skulu beita eftirtöldum reikningsskila-
aðferðum:
a) Sértæk reikningsskil fyrir sveitarsjóði og stofnanir
sveitarfélaga sem reknar eru á sambærilegum grundvelli.
b) Almennri reikningsskilaaðferð hjá fyrirtækjum í
atvinnurekstri.
Með þessu er kveðið á um að reikningar sveitarsjóða eigi
að fylgja sértækri reikningsskilaaðferð en ekki almennri.
Þróun í þá átt var hafin áður og samfara upptöku
bókhaldsly kilsins 1979 var stigið stórt skref í þá átt, sérstaklega
hvað varðar færslu bókhaldsins sjálfs (rekstrar- og fram-
kvæmdayfirlit í stað hreins rekstrarreiknings), en í uppgjöri
var enn stillt upp efnahagsreikningi samkvæmt almennri
reikningsskilaaðferð (áhersla á eiginfjárstöðu í stað peninga-
legrar stöðu) og einföldu sjóðsstreymi.
I handbók bókhaldsnefndar Sambands íslenskra sveitar-
félaga, sem gefin var út samkvæmt reglugerðinni (Handbók
um bókhald og reikningsskil sveitarfélaga, nóvember 1991),
eru sveitarfélög hvött til að endurskoða þær reikningskila-
aðferðir sem beitt hafði verið hj á s veitarsj óðum og fy rirtækj um
þeirra fram til 1990. Til leiðbeiningar við ákvörðun um val á
reikningsskilaaðferð er bent á, að rétt sé t.d. að hafa í huga
hvort rekstraryfirliti sé ætlað að gefa glögga mynd af hagnaði
eða tapi á viðkomandi tímabili og einnig hvort eiginfjárstaða
í efnahagsreikningi skuli vera í samræmi við almennt
viðurkenndar reikningsskilaaðferðir fyrirtækja í atvinnu-
rekstri.
Bókhaldsnefndin gefur út eftirfarandi aðalreglu (eða
algengustu aðferð) varðandi hvaða reikningsskilaaðferð skal
beitt á sveitarsjóði og fyrirtæki sveitarfélaga (Handbók, kafli
5.1 bls. 1):
Sveitarsjóðir sértæk
Hafnarsjóður sértæk
Vatnsveita almenn
Hitaveita almenn
Félagslegar íbúðir sértæk
Strætisvagnar almenn
Félagsheimili
Framkvæmdasjóður almenn
Lífeyrissjóður - eftirlaunasjóður ... almenn
Ljóst er að í ársreikningum sveitarsjóðanna sjálfra er ekki
lögð áhersla á að sýna hagnað eða tap, heldur ráðstöfun tekna
sveitarsjóða til hinna ýmsu verkefna samanborið við
fjárhagsáætlun. I efnahagsreikningi sveitarsjóða er dregin
fram peningaleg staða sem niðurstöðutala, en ekki lögð
áhersla á að sýna eiginfjárstöðu í samræmi við almennar