Hagskýrslur um sveitarsjóðareikninga - 01.10.1999, Page 11

Hagskýrslur um sveitarsjóðareikninga - 01.10.1999, Page 11
Sveitarsjóðareikningar 1998 9 Munurinn skýrist einkum af því að hér eru fjármál sveitar- félaga sett fram sérstaklega en í þjóðhagsreikningum eru þau talin hluti af starfsemi hins opinbera í heild. Þetta snertir fyrst og fremst innbyrðis samskipti ríkissjóðs og sveitarfélaga og þar með hvar útgjöld af sameiginlegri starfsemi þessara aðila erutalin. I þjóðhagsreikningumerutilfærslurfráríkissjóðitil sveitarfélaga færðar sem útgjöld hjá ríkissjóði og koma til frádráttar vergum (brúttó) útgjöldum sveitarfélaga. I reikningum sveitarfélaga - og þar með í þessari skýrslu - eru þessar tilfærslur taldar til tekna hjá þeim og koma þannig á móti vergum útgjöldum þeirra. Þá koma tekjur af seldri þjónustu sveitarfélaga til lækkunar á útgjöldum þeirra í uppgjöri þjóðhagsreikninga og teljast í flestum tilvikum til einkaneyslu. Hjá sveitarfélögum eru þessar tekjur færðar í tekjuhlið rekstrarreiknings og eru hluti af ráðstöfunarfé þeirra. í þjóðhagsreikningum eru öll fjármál Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga talin hj á sveitarfélögum. I þessari skýrslu kemur fram hjá sveitarfélögum eingöngu sá hluti af fjármálum Jöfnunarsjóðs, sem varðar samskipti hans við þau, en fyrirgreiðsla sjóðsins við aðra aðila er ekki meðtalin. Afkoma sveitarfélaga 1998 I þessari skýrslu um fjármál sveitarfélaga á árinu 1998 er í yfirlitstöflum reynt að sýna þau í samhengi við afkomu þeirra árið á undan. Með því móti fæst gleggri mynd en ella af helstu breytingum sem urðu á fjárhag sveitarfélaganna á árinu 1998. Annars vegar verður fjallað um sveitarfélögin í heild, hins vegar borin saman fjármál þeirra á íbúa miðað við mismunandi flokkun sveitarfélaga. Fjárhagur sveitarfélaga í heild Niðurstöðutölur um fjármál sveitarfélaga á árinu 1998 sýna bæði aukinn tekjuhalla og lánsfjárþörf samanborið við árið á undan. Tekjur sveitarfélaga jukust um 12,6% eða um 10,8% að raungildi og gjöld um 13,5% eða um 11,6% að raungildi. Heildargjöld umfram heildartekjur námu 4,5 milljörðum króna á árinu 1998. Árið á undan var hallinn 3,6 milljarðar króna samanborið við 0,6 milljarða króna árið 1996 og 1,9 milljarða króna árið 1995. Sem hlutfall af landsframleiðslu var tekjuhallinn svipaður árin 1997 og 1998 eða 0,7% fyrra árið og 0,8% það seinna. Lítill munur 4. yfirlit. Tekjur og gjöld sveitarfélaga 1997-1998 Summary 4. Local government revenue and expenditure 1997—1998 Milljónir króna á verðlagi hvers árs Hlutfall af VLF' Million ISK at current prices Percent of GDP' 1997 1998 1997 | 1998 Heildartekjur 56.416 63.543 10,6 10,8 Total revenue Skatttekjur 39.018 43.655 7,4 7,4 Tax revenue Beinir skattar 30.765 34.435 5,8 5,9 Direct taxes Obeinir skattar 8.253 9.220 1,6 1,6 Indirect taxes Þjónustutekjur 12.649 14.006 2,4 2,4 Service revenue Vaxtatekjur 653 626 0,1 0,1 Interest Tekjur til fjárfestingar 4.096 5.256 0,8 0,9 Capital transfers received Heildargjöld 59.968 68.073 11,3 11,6 Total expenditure Rekstrargjöld 44.484 50.085 8,4 8,5 Operational outlays Fjármagnskostnaður 2.287 2.504 0,4 0,4 Interest Gjöld til fjárfestingar 13.197 15.485 2,5 2,6 Investment outlays Tekjujöfnuöur -3.552 -4.530 -0,7 -0,8 Revenue halance 1 Verg landsframleiðsla, en hún nam 529.949 m. kr. árið 1997 og 586.572 m. kr. árið 1998, samkvæmt gögnum Þjóðhagsstofnunar. Landsframleiðslan jókst um 5,3% að raungildi íyrra árið ogum 5,1% seinna árið. Gross domesticproduct amountedto 529,949 mitlion ISK 1997 and586.572 millionlSK in 1998. var á tekjuhalla og hreinni lánsfjárþörf sveitarfélaganna bæðiárin.. Semhlutfallaflandsframleiðslunamlánsfjárþörfín 0,6% árið 1997 og 0,9% árið 1998. 3. yfirlit sýnir fjármál sveitarfélaga á árunum 1997 og 1998 í hnotskum. Tekjuhalli sveitarfélaganna svaraði til 7,1% af tekjum þeirra árið 1998 samanborið við 6,3% árið 1997. Eru það nokkru hærri hlutföll en næstu tvö ár þar á undan en árið 1996 var það 1,3% og 4,6% árið 1995. Árið 1994 nam hallinn 19,4% af tekjum sveitarfélaganna og 15,1% árið 1993, en þau tvö ár var halli þeirra mun meiri en þekkst haföi um langt skeið. í 4. yfirliti er dregin upp mynd aftekjuafkomu sveitar- félaga árin 1997 og 1998. Heildartekjur sveitarfélaga námu 10,8% af landsfram- leiðslu ársins 1998ogheildargjöldþeirra 11,6%. Áratuginn 1989-1998 mældust umsvif sveitarfélaga á bilinu 9-11% af landsframleiðsluhversárs. Á samatímabilijókst landsfram- leiðslan um tæp 22% að raungildi, en tekjur sveitarfélaga jukust um 45% að raungildi og gjöld þeirra um tæp 47%. Aukin umsvif sveitarfélaga skýrast einkum af tilflutningi verkefna frá ríki til sveitarfélaga. Tekjur sveitarfélaga era einkum af þrennum toga; skatt- tekjur, eigin rekstrartekjur og framlög frá öðrum. Síðasttaldi tekjustofninn er aðallega vegna sölu á eignum hjá sveitar- félögum og greiðslurtil sveitarfélaga frá ríkissjóði og öðrum sveitarfélögum til að standa skil á hlutdeild í kostnaði af sameiginlegum verkefnum. I þeim yfirlitum sem hér era
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Hagskýrslur um sveitarsjóðareikninga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hagskýrslur um sveitarsjóðareikninga
https://timarit.is/publication/1126

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.