Hagskýrslur um sveitarsjóðareikninga - 01.10.1999, Page 12

Hagskýrslur um sveitarsjóðareikninga - 01.10.1999, Page 12
10 Sveitarsjóðareikningar 1998 sýnd er hugtakið þjónustutekjur notað sem samheiti fyrir rekstrartekjur sveitarfélaga af veittri þjónustu að viðbættum rekstrarframlögum frá öðrum, svo sem vegna kostnaðar- hlutdeildar í sameiginlegum rekstri. Rekstrar- og fjármagnsgjöld sveitarfélaga vega sem fyrr langþyngst hjá sveitarfélögum og námu tæplega ijórum fimmtu hlutum af gjöldum þeirra á árinu 1998. Á níunda áratugnum var þetta hlutfall tiltölulega stöðugt, en þá rann um fjórðungur afheildargjöldum sveitarfélagatil fjárfestingar. Árin 1989-1992 hækkaði hlutfall ljárfestingarútgjalda í um og yfir 30%. Eftir það hefur hlutfallið lækkað verulega og nam 22% árið 1997 og tæplega 23% árið 1998. Neikvæð afkoma sveitarfélaga á allra síðustu árum hefur valdið því að þau hafa í auknum mæli þurft að taka lán til ffamkvæmda og rekstrar. Áður voru framkvæmdir sveitar- félaga að stærstum hluta Ijármagnaðar af samtímatekjum þeirra fremuren lánsfé. M iki 1 umskipti í afkomu sveitarfélaga á síðustu árum hafa orðið til þess að mörg stærri sveitarfélög hafa sótt inn á útboðsmarkað með skuldabréf til þess að fjármagna framkvæmdir. Lántökur sveitarfélaga umfram afborganir námu 5,6 milljörðum króna á árinu 1998 samanborið við 3,8 milljarðakrónaárið áður og 1,3 milljarða króna árið 1996. Að gefnu tilefni skal tekið fram að í allflestum tilvikum eru fyrirtæki sveitarfélaga, þ.e. hitaveitur, rafveitur og hafnarsjóðir, ekki talin sem hluti af eiginlegum rekstri sveitarfélaganna.Þetta skýrir meðal annars hvers vegna lántökur og lánveitingar sveitarfélaga eru þó ekki meiri en að framan greinir. Tekjur sveitarfélaga. Fram hefur komið að heildartekjur sveitarfélaga námu I0,8%aflandsframleiðsluáárinu 1998. Við samanburð á flárhæðum milli ára verður að taka tillit til almennra verðlagsbreytinga. Vísitala neysluverðs hækkaði að meðaltali um 1,8% frá árinu 1996 til ársins 1997 og um 1,7% milli áranna 1997 og 1998. Tekjursveitarfélagajukust um7,l milljarðkrónaaðnafnvirðiáárinu 1998en þaðsvarar til um 10,8% hækkunar að raungildi frá árinu á undan miðað við breytingu á vísitölu neysluverðs. Tekjur sveitarfélaga hafa aukist töluvert á undanfömum árum, einkum eftir mikinn hagvöxt ff á 1996 og við tilflutning á verkefnum frá ríki til sveitarfélaga. Á árinu 1996 jukust tekjumar um 14% að raungildi frá árinu áundan. Skýrist það meðal annars af 5,7% hagvexti á mælikvarða landff amleiðslu- nnar árið 1996 og af greiðslum ríkissjóðs til sveitarfélaga vegna yfirtöku þeirra á rekstri grunnskóla frá 1. ágúst 1996. Árið 1997 jukust tekjur sveitarfélaga enn frekar bæði vegna 5,3% hagvaxtar og gildistöku laga í ársbyrjun það ár um hækkun á útsvari til að mæta útgjöldum sveitarfélaga af rekstri grunnskólans. Með lögum nr. 66/1995 um grunnskóla var starfsemi þeirra og rekstur flutt frá ríki til sveitarfélaga ffá 1. ágúst 1996. í tengslum við þann tilflutning var lögum um tekjustofna sveitarfélaga breytt í því skyni að afla þeim tekna til að mæta kostnaði af rekstri grunnskólans, lög nr. 79/1996 og lög nr. 122/1996. Þar er hámarks- og lágmarksheimild sveitarfélaga til álagningar útsvars hækkuð um 2,79 prósentustig frá og með l.janúar 1997 og ennfrekarum0,05 prósentustig frá 1. janúar 1998. Vegið meðaltal af útsvari sveitarfélaga í staðgreiðslu hækkaði úr 8,79% árið 1996 í 11,57% árið 1997 og 11,61% árið 1998.1 bráðabirgðaákvæði laganna nr. 79/ 1996 erkveðið áum að ríkissjóður greiði 2.734 millj. kr. til sveitarfélaga og Jöfnunarsjóðs sveitarfélag á árinu 1996 til að standa straum af kostnaði við rekstur grunnskólans frá 1. ágúst til desemberloka á því ári. Skatttekjur voru sem fyrrmeginuppistaðan í tekjum sveitar- félaganna eða um tveir þriðju hlutar þeirra. Er það nokkru lægra hlutfall en hjá ríkissjóði. Beinir skattar vega mun þyngra í tekjum sveitarfélaga en ríkissjóðs. Fram til ársins 1994 námu beinir skattar sveitarfélaga um 60% af skatttekjum þeirra, en síðustu ár hefur þetta hlutfall verið um 75%. Hækkunin skýrist af niðurfel I ingu aðstöðugjalda sveitarfélaga í ársbyrjun 1994 en þau flokkuðust meðal óbeinna skatta, á móti hækkaði útsvar sveitarfélaga í staðgreiðslu. Árin 1997 og 1998 hefúr hlutfall beinna skatta numið tæpum 79% af skatttekj um sveitarfélaganna og skýrist hækkunin afbreytingu útsvarsins til að mæta útgjöldum sveitarfélaganna af rekstri 5. yfirlit. Tekjur sveitarfélaga 1997-1998 Summary 5. Local government revenue 1997—1998 Milljónir króna á verðlagi hvers árs Hlutfallstölur, % Million ISK at current prices Percentage 1997 1998 1997 1998 Heildartekjur 56.416 63.543 100,0 100,0 Total revenue Skatttekjur 39.018 43.655 69,2 68,7 Tax revenue Beinir skattar 30.765 34.435 54,5 54,2 Direct taxes Útsvör 30.765 34.435 54,5 54,2 Municipal income tax Óbeinir skattar 8.253 9.220 14,6 14,5 lndirect taxes Fasteignaskattar 5.767 6.150 10,2 9,7 Real estate tax Jöfnunarsjóður sveitarfélaga 2.332 2.832 4,1 4,5 Municipal Equalization Fund Aðrir óbeinir skattar 154 239 0,3 0,4 Other Þjónustutekjur 12.649 14.006 22,4 22,0 Service revenue Vaxtatekjur 653 626 1,2 1,0 Interest Tekjur til fjárfestingar 4.096 5.256 7,3 8,3 Capital transfers received
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Hagskýrslur um sveitarsjóðareikninga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hagskýrslur um sveitarsjóðareikninga
https://timarit.is/publication/1126

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.