Hagskýrslur um sveitarsjóðareikninga - 01.10.1999, Qupperneq 15
Sveitarsjóðareikningar 1998
13
raungildi miðað við vísitölu neysluverðs. Árið 1997 jukust
gjöldin einnig að raungildi eða um 18,6%. Aukningin bæði
árin skýrist að stórum hluta af því að sveitarfélög tóku við
rekstri grunnskólans á árinu 1996.Árið 1998jukustrekstrar-
gjöld sveitarfélaga um 10,7% að raungildi, íjármagns-
kostnaður um 7,7% og fjárfesting um 15,4%.
Upplýsingar um gjöld sveitarfélaga miðast einkum við
skiptingu þeirra á málaflokka. Fram hefur komið að í sumum
tilvikum eru gjöldin að hluta endurgreidd af ríkissjóði vegna
þátttöku hans í stofn- eða rekstrarkostnaði tiltekinna verkefna.
Breytt verkaskipting ríkis og sveitarfélaga frá ársbyrjun
1990 einfaldaði öll fjárhagsleg samskipti þessara aðila og
dró verulega úr sameiginlegri ljármögnun verkefha. Verg
gjöld sveitarfélaga til hinna ýmsu málaflokka árin 1997 og
1998 eru sýnd í 7. yfírliti.
Fjárfrekustu málaflokkar sveitarfélaga á árinu 1998 voru
sem fyrr almannatryggingar og félagshjálp, gatnagerð,
fræðslumál, íþróttir og útvist. Alls runnu 72,1% af heildar-
gjöldum sveitarfélaganna til þessara viðfangsefna á árinu
1998 samanborið við 70,8% árið 1997. Undanfarin ár hafa
þessi útgjöld numið tveimur þriðju hlutum af útgjöldum
sveitarfélaganna. Hækkun hlutfallsins síðustu tvö ár skýrist
einkum af flutningi grunnskólans frá ríki til sveitarfélaga á
árinu 1996 en með því jukust framlög þeirra til fræðslumála
8. yfirlit. Framlög sveitarfélaga til félagsþjónustu og fræðslumála 1997-1998
Summary 8. Local government expenditure on social security and welfare and education 1997-1998
Milljónir króna á verðlagi hvers árs Hlutfallstölur, %'
Million ISK at current príces Percentage'
1997 1998 1997 1998
Félagsþjónusta Social security and welfare
Gjöld umfram Outlays in excess of service
þjónustutekjur 8.519 9.842 14,2 14,5 revenue
Verg rekstrargjöld 10.994 12.176 18,3 17,9 Gross operational outlays
Verg fjárfesting 1.378 1.476 2,3 2,2 Gross capital investment
Þjónustutekjur -3.853 -3.809 -6,4 -5,6 Service revenue
Gjöld samtals 12.372 13.651 20,6 20,1 Total expenditure
Sameiginlegur kostnaður 903 1.110 1,5 1,6 Administration
Félagshjálp 3.846 3.721 6,4 5,5 Social assistance
Dagvist bama 5.322 6.254 8,9 9,2 Children 's daycare
Dvalarheimili og íbúðir aldraðra 1.609 1.829 2,7 2,7 Retirement homes
Annað 691 737 1,2 1,1 Other
Fræðslumál Education
Gjöld umfram Outlays in excess of service
þjónustutekjur 15.307 18.255 25,5 26,8 revenue
Verg rekstrargjöld 14.060 16.258 23,4 23,9 Gross operational outlays
Verg fjárfesting 3.021 4.285 5,0 6,3 Gross capital investment
Þjónustutekjur -1.774 -2.288 -3,0 -3,4 Service revenue
Gjöld samtals 17.081 20.543 28,5 30,2 Total expenditure
Yfirstjórn 667 724 1,1 1,1 Administration
Grunnskólar 14.039 17.511 23,4 25,7 Compulsory schools
Tónlistarskólar 1.139 1.379 1,9 2,0 Music schools
Skólaakstur 340 355 0,6 0,5 School buses
Annað 895 574 1,5 0,8 Other
1 Hlutfall af heildargjöldum sveitarfélaga. Percentage of total localgovernment expenditure.
verulega. Af einstökum málaflokkum vógu félagsþjónusta
og fræðslumál langþyngst í útgjöldum sveitarfélaga á árinu
1998eðasemnemurröskumhelmingi.8.yfirlitsýnirskiptingu
þessara gjalda árin 1997 og 1998.
Útgjöld vegna félagsþjónustu námu alls 13,7 milljörðum
kr. á árinu 1998 og jukust um 8,5% að raungildi frá árinu á
undan. Þrátt íyrir það lækkaði vægi þessa málaflokks úr
20,6% afheildargjöldum sveitarsjóða í 20,1% á árinu 1998.
Lækkunin skýrist af mikilli aukningu á heildargjöldum
sveitarfélaga einkum vegna fræðslumála eftir yfirtöku þeirra
á rekstri grunnskólans. Áhrif þessa koma t'ram í útgjöldum
sveitarfélaga til fræðslumála en þau jukust úr 17,1 milljarði
kr. árið 1997 í 20,5 milljarðakr. árið 1998 eðaum 18,3% að
raungildi. Hlutdeild fræðslumála í útgjöldum sveitarfélaga
hækkaði úr22,6%árið 1996 í 28,5% árið 1997 og30,2%árið
1998. Erþettafjárfrekastimálaflokkursveitarfélagannaannað
árið í röð.