Hagskýrslur um sveitarsjóðareikninga - 01.10.1999, Qupperneq 16
14
Sveitarsjóðareikningar 1998
Gjöld sveitarfélaga vegna fræðslumála eru að stærstum
hlutavegnagrunnskólans. Þessigjöldnámu 17,5 milljörðum
kr. áárinu 1998 samanborið við 14,0milljarðakr. árið 1997.
Hækkun á milli ára nam 24,7% eða um 22,6% að raungildi.
Utgjöld vegna grunnskóla á árinu 1998 skiptust þannig að
rekstrargjöld námu 13,6 milljörðum kr. og ijárfesting 3,9
milljörðum kr. Þjónustutekjur til grunnskóla námu 1,8
milljörðum kr. á árinu 1998 þar af voru 1,3 milljarðar kr. til
rekstrar og 0,5 milljarðar kr. til ljárfestingar.
Efnahagur sveitarfélaga. I ársreikningum sveitarfélaga er
ekki lögð áhersla á að draga fram hagnað eða tap, heldur er
sýnd ráðstöfun á tekjum sveitarsjóða til hinna ýmsu verkefna
ogþágjarnan með samanburði við ijárhagsáætlun. Efnahags-
reikningur sveitarfélaga miðar að því að draga fram peninga-
lega stöðu sveitarfélaga fremur en eiginfjárstöðu þeirra eins
og tíðkast í almennum reikningsskilum fýrirtækja í atvinnu-
rekstri.Peningaleg staða kemur fram sem peningalegar eignir
að frádregnum heildarskuldum. Peningalegar eignir sveitar-
félags samanstanda af veltufjármunum og langtímakröfum
þess. Hugtakið nær því til þeirra eigna sveitarfélags sem
annað hvort eru reiðufé eða ijármunir sem unnt er að breyta
í handbært fé með tiltölulega skönimum fýrirvara, án þess að
raska starfsemi sveitarfélagsins. I 9. yfirliti er sýndur saman-
dreginn efnahagsreikningur sveitarfélaganna í árslok 1997
og 1998.
Mikilvæg breyting var gerð á bókhaldi sveitarfélaga í
ársbyrjun 1990 við færslu eigna sveitarfélaga í fyrirtækjum.
Gerður var greinarmunur á því hvort fyrirtækið væri alfarið
í eigu sveitarsjóðs eða um væri að ræða eign í hlutafélagi eða
sameignarfyrirtæki. Þannig er fýrirtæki, þótt það sé að öllu
leyti eign sveitarsjóðs, ekki lengur talið meðal eigna
sveitarsj óðs í efnahagsreikningi. Hins vegar korna eignarhlutir
í fyrirtækjum og hlutabréf til eignfærslu. Eignarhlutir og
hlutabréf teljast annað hvort meðal peningalegra eigna eða
fastaijármuna. Sé ákveðið að selja þessar eignir teljast
viðkomandi eignarhlutir og hlutabréf meðal peningalegra
eigna, að öðrum kosti teljast þær meðal fastaijármuna.
9. yfirlit. Efnahagur sveitarfélaga 1997-1998
Summary 9. Local government assets and liabilities 1997-1998
Stöðutölur í árslok Milljónir króna á verðlagi í árslok Million ISK atyear-end prices Hlutfall af VLF' Percent of GDP' Balance figures atyear end
1997 1998 1997 1998
1. Peningalegar eignir 17.881 19.369 3,3 3,3 Monetary assets
1. VeUufjármunir 13.528 13.725 2,5 2,3 Current assets
Sjóðir, bankareikningar o.fl. 2.132 2.468 0,4 0,4 Cash hold., bank dep. etc.
Skammtímakröfur 11.221 11.117 2,1 1,9 Short-term claims
Aðrar eignir 174 140 0,0 0,0 Other current assets
2. Langtímakröfur 4.353 5.645 0,8 1,0 Long-term claims
Verðbréf 4.353 5.645 0,8 1,0 Loans granted
II. Skuldir 42.424 47.599 7,9 8,1 Liabilities
Skammtímaskuldir 11.387 11.069 2,1 1,9 Short-term debt
Langtímaskuldir 31.037 36.530 5,8 6,2 Long-term debt
III. Peningaleg staða (I.—II.) -24.543 -28.230 -4,6 -4,8 Monetary status (I.-II.)
IV. Aðrir liðir 24.543 28.230 4,6 4,8 Other assets
Fastafjármunir 113.449 120.329 21,2 20,4 Fixed assets
Eigið fé -88.906 -92.100 -16,6 -15,6 Equity
Verg landsframleiðsla. Gross domestic product.
Skýring: Stöðutölur í árslok eru færðar til meðalverðlags hvers árs með vísitölu neysluverðs. Note: Based on average price level eachyear.