Hagskýrslur um sveitarsjóðareikninga - 01.10.1999, Page 28

Hagskýrslur um sveitarsjóðareikninga - 01.10.1999, Page 28
26 Sveitarsjóðareikningar 1998 2. Bókhaldslykill sveitarfélaga, úrvinnsla gagna og skýringar við töflur Local government chart of accounts, processing of data and explanatory notes to the tables Bókhaldslykill Sambands íslenskra svcitarfclaga Grundvallarlykill hins samræmda bókhalds hefur 8 sæti. Fyrstu tvö sætin sýna málaflokka og bókhaldseiningar sveitarsjóðs. Þau eru bundin fyrir öll sveitarfélög. Næstu tvö sæti eru notuð til sundurliðunar í deildir og starfsemisþætti. Næstu þrjú sæti lykilsins (5.-7.) skipta útgjöldum og tekjum eftir tegundum. Loks er síðasta sæti lykilsins notað til flokkunar á tekjum og gjöldum á rekstur, gjaldfærða fjár- festingu eða eignfærða fjárfestingu. Ársreikningsform Hagstofú fylgir bókhaldslyklinum en er ekki jafn sundurliðað. Það sýnir fyllstu sundurgreiningu á fyrstu tvö sæti lykilsins og það síðasta. Hins vegar er ekki beitt fyllstu sundurliðun á 3. og 4. sæti og formið gerir ekki ráð fyrir greiningu á tegundir samkvæmt 5.-7. sæti lykilsins. Eftirtöldum meginreglum er beitt í uppgjöri Hagstofúnnar um færslu bókhalds og reikningsskil sveitarfélaga. Allar tekjur og gjöld sem tilheyra hverju uppgjörstímabili, þ.e. almanaksárinu, eru færð áþví tímabili án tillits til hvenær greiðsla fer fram. Með öðrum orðum þá er um svonefndan rekstrargrunn að ræða. Oinnheimtar tekjur færast til tekna á rekstrarreikningi og til eignar í efnahagsreikningi. Á sama hátt færast ógreidd gjöld til gjalda í rekstrarreikningi og til skuldar í efnahagsreikningi. í einu heildaryfirliti, rekstrar- og framkvæmdayfírliti, er greintámillirekstrarsveitarfélaga,gjaldfærðrarfjárfestingar og eignfærðrar fjárfestingar þeirra. Á rekstur færast allar tekjur og gjöld sem varða rekstur sveitarsjóðs. Ágjaldfœrða fjárfestingu færast útgjöld vegna framkvæmda og eigna- breytinga, sem ekki eru eignfærð í efnahagsreikningi. Liðir eins og götur, holræsi, leikvellir, skrúðgarðar, innan- stokksmunir og áhöld teljast til gjaldfærðrar fjárfestingar. I tekjuhlið er færð bein þátttaka annarra aðila í viðkomandi gjaldfærðri ljárfestingu svo sem gatnagerðargjöld og þétt- býlisvegafé. Til eignfœrdrarfjárfestingar teljast útgjöld til kaupa á fasteignum, vinnuvélum, bílum og vélasamstæðum. Þessar eignir eru færðar í eignahlið efnahagsreiknings. Bein þátttaka annarra í eignfærðri fjárfestingu, t.d. framlög úr ríkissjóði, eru færð í tekjuhlið eignfærðrar fjárfestingar. Ekki er reiknað með árlegri afskrift húseigna eða annarra varanlegra rekstrarljármuna sveitarsjóðs, heldur er verðmæti eigna fært í samræmi við mat eins og það er á hverjum tíma. Gert er ráð fyrir að breyting á matsverði sé fœrð á endurmatsreikning undir liðnum eigið fé í efnahagsreikningi. Breytingar ársreikninga sveitarfélaga 1990. í VIII. kafla sveitarstjómarlaga nr. 8/1986 er fjallað um fjármál sveitarfélaga. Reglugerð samkvæmt 81. gr. laganna, um bókhald og ársreikninga sveitarfélaga, var sett á árinu 1989. í I. kafla reglugerðarinnar eru ákvæði um bókhald sveitarfélaga. Þar segir m.a. að gefin skuli út handbók um reikningshald sveitarfélaga og fyrirtækj a þeirra þar sem fram komi leiðbeinandi reglur um flokkun og greiningu á tekjum og gjöldum, eignum og skuldum sveitarfélaga á hverjum tíma. Slíkurbókhaldslykillfyrirreikningasveitarfélagahefur eins og áður sagði verið í notkun frá reikningsárinu 1979. Setning reglugerðarinnar breytti litlu hvað þetta varðar og breytingar á málaflokkum rekstrar- og framkvæmdayfírlits voru óverulegar. í II. kafla reglugerðarinnar eru ákvæði um ársreikninga sveitarfélaga. í 9. gr. hennar segir að sveitarfélög, stofnanir þeirra og fyrirtæki skuli beita eftirtöldum reikningsskila- aðferðum: a) Sértækum reikningsskilum fyrir sveitarsjóði og stofn- anir sveitarfélaga sem reknar eru á sambærilegum grundvelli. b) Almennri reikningsskilaaðferð hjá fyrirtækjum í atvinnurekstri. Með þessu er kveðið á um að reikningar sveitarsjóða eigi að fylgja sértækri reikningsskilaaðferð en ekki almennri. Þróun í þá átt var hafin áður og með upptöku bókhaldslykilsins 1979 var stigið stórt skref í þá átt, sérstaklega hvað varðar færslu bókhaldsins (rekstrar- og framkvæmdayfirlit í stað hreins rekstrarreiknings) en i uppgjöri var í efnahagsreikn- ingnum áfram stillt upp samkvæmt almennri reikningsskila- aðferð (áhersla á eiginfjárstöðu frekar en peningalega stöðu) og einföldu sjóðsstreymi. í handbók bókhaldsnefndar Sambands íslenskra sveitar- félaga, sem gefín var út samkvæmt reglugerðinni (Handbók um bókhald og reikningsskil sveitarfélaga, nóvember 1991), eru sveitarfélög hvött til að endurskoða þær reikningskila- aðferðir sem beitt hafði verið hjá sveitarsjóðum og fyrirtækjum þeirra fram til ársins 1990. Til leiðbeiningar við ákvörðun um val á reikningsskilaaðferð er meðal annars bent á að rétt sé að hafa í huga hvort rekstraryfirliti sé ætlað að gefa glögga mynd af hagnaði eða tapi á viðkomandi tímabili og einnig hvort eiginfjárstaða í efnahagsreikningi eigi að vera í samræmi við almennt viðurkenndar reikningsskilaaðferðir fyrirtækja í atvinnurekstri. Bókhaldsnefndin gefur út eflirfarandi aðalreglur varðandi reikningsskilaaðferðir hjá sveitarsjóði og algengustu fyrir- tækjum sveitarfélaga (Handbók, kafli 5.1 bls. 1): Sveitarsjóður og fyrirtæki Reikningsskila- aðferð sbr. 9. gr. Sveitarsjóður.................... sértæk Hafharsjóður..................... sértæk Vatnsveita....................... sértæk Rafveita......................................... almenn Hitaveita........................................ almenn Félagslegar íbúðir............... sértæk Strætisvagnar.................................... almenn Félagsheimili.................... sértæk Framkvæmdasjóður................................. almenn Lífeyrissj óður - eftirlaunasj óður... almenn Ljóst er að í ársreikningi sveitarsjóðs er rekstraryfirliti ekki ætlað að gefa glögga mynd af hagnaði eða tapi á viðkomandi tímabili heldur ráðstöfun tekna hans til hinna ýmsu verkefna samanborið við fjárhagsáætlun. I efnahags- reikningi sveitarsjóða er dregin fram peningaleg staða sem
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Hagskýrslur um sveitarsjóðareikninga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hagskýrslur um sveitarsjóðareikninga
https://timarit.is/publication/1126

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.