Utanríkisverslun eftir tollskrárnúmerum - 01.05.1995, Síða 10
Inngangur
Introduction
Gagnasöfnun
Upplýsingar um utanríkisverslun byggjast að mestu leyti á
aðflutningsskýrslum innflytjenda og útflutningsskýrslum
útflytjenda. Aðflutningsskýrslur eru tölvuskráðar hjá toll-
stjórum og hefur Hagstofan aðgang að gagnaskrám Ríkis-
tollstjóra og sækir þangað upplýsingar með vélrænum
hætti. Þessar upplýsingar eru yfirfarnar og leiðréttar eins
og kostur er. Oft er haft samband við viðkomandi inn-
flytjendur og útflytjendur til nánari útskýringar eða til
leiðréttingar. Tollyfirvöld hafa ekki hafið tölvuskráningu
útflutningsskýrslna og því fór skráning þeirra enn fram á
Hagstofunni á árinu 1994 eins og verið hefur. Hagstofan
skráir einnig aðsendar aðflutningsskýrslur frá Tollpóst-
stofu.
Víðar er leitað upplýsinga um utanríkisverslun en af
tollskýrslum. Má þar nefna að Siglingamálastofnun ríkisins
(Skipaskrá) og Flugmálastjórn, Loftferðaeftirlit, gefa upp-
lýsingar um kaup og sölu á flugvélum og skipum og er haft
samband við viðkomandi kaupendur og seijendur til nánari
upplýsinga. Hjá Fiskveiðasjóði er Ieitað upplýsinga um lán
tii innlendra útgerðarfyrirtækja til endur-bóta á íslenskum
fiskiskipum og Siglingamálastofnun gefur upplýsingar um
hvaða skip fara utan til breytinga. I framhaldi af því er haft
samband við viðkomandi fyrirtæki til nánari upplýsinga.
Sendar eru fyrirspurnir til fyrirtækja í viðkomandi atvinnu-
grein um endurbætur framkvæmdar af íslenskum fyrir-
tækjum á erlendum skipum. Fiskifélag Islands gefur upp-
lýsingar um landanir íslenskra fiskiskipa í erlendum höfnum
og fiskiskipa í eigu íslenskra aðila sem eru skráð erlendis
(þ.e. sigla undir hentifána).
Umfang
Hagstofan fylgir að mestu leiðbeiningum Sameinuðu
þjóðanna um skilgreiningu og meðferð talnaefnis um utan-
ríkisverslun (United Nations: International Trade Statis-
tics, Concepts and Definitions), þ.e. hvað er tekið með,
hvemig og hvenær. Um er að ræða vöruviðskipti og er
almenna skilgreiningin sú að allur innflutningur og út-
flutningur sem bætir við eða dregur úr efnislegum auð-
lindum lands á að vera talinn með í utanríkisverslunar-
tölum. Venja er að greina á miili tvenns konar grundvallar-
reglna um skýrslur varðandi utanríkisverslun, almennar
verslunarreglur (general trade system) og sértækar verslunar-
reglur (special trade system). Munur á þessum reglum felst
aðallega í skráningu á vörum sem fluttar eru í tollvöru-
geymslu og á frísvæði. Samkvæmt almennu verslunar-
reglunum er vara skráð í utanríkisverslun þegar hún kemur
inn í tollvörugeymslu/frísvæði, en samkvæmt sértæku
verslunarreglunum er varan skráð þegar hún fer úr tollvöru-
geymslu/frísvæði inn í landið. Hérlendis hefur verið fylgt
almennu verslunarreglunum.
Data collection
Information on external trade is primarily based on customs
declarations for imports and exports. The customs authori-
ties register import declarations and the data is available on-
line to Statistics Iceland. This information is checked and
corrected as far as possible. Frequently the importer or
exporter concemed is contacted in order to obtain further
information or make corrections. The customs authorities
have not yet started computerized registration of export
declarations and as a result these were registered at Statis-
tics Iceland for 1994 as before. Statistics Iceland also
registers import declarations received from the Customs
Post Office.
Data on extemal trade is gathered from other sources as
well. The Icelandic Directorate of Shipping (Register of
Vessels) and the Civil Aviation Administration, Flight
Safety Department, supply information regarding purchases
and sales of ships and aircraft and the importers or exporters
concerned are contacted for further details. In cases of
improvements of fishing vessels, the Fisheries Loan Fund
supplies information on loans to ftshing companies for this
purpose and the Directorate of Shipping provides information
on ships sent for conversion abroad. The companies concemed
are subsequently contacted for closer details. Information on
improvements of foreign vessels in Iceland is sought from
the relevant Icelandic companies. The Fisheries Association
of Iceland provides data on the fish landed from Icelandic
fishing vessels in foreign ports as well as fish from vessels
owned by Icelandic nationals and registered abroad (i.e.
sailing under a convenience flag).
Coverage
Statistics Iceland follows in general the directions contained
in the “United Nations: Intemational Trade Statistics, Con-
cepts and Definitions” as regards what is included in
external trade statistics, how and when. The statistics
extend to trade in merchandise, and by a general definition
any imports or exports which add to or subtract from the
stock of material resources of a country should be included
in extemal trade statistics. A distinction is made between
two systems of intemational trade statistics, general trade
system and special trade system. The main difference be-
tween these systems involves the method of registering
goods imported to customs bonded warehouses and free
zones. According to the general trade system an item of
goods is registered in external trade on entry into a bonded
warehouse/free zone, whereas according to the special trade
system such an item would be registered on entry into a
country from a bonded warehouse or free zone. In Iceland the
general trade system is employed.