Gistiskýrslur - 01.07.1998, Síða 22
20
Gistiskýrslur 1997
Heildarfjöldi gistinátta 1986-1997. Árið 1996 var í fyrsta
skipti, samkvæmt öruggum heimildum, hægt að áætla
heildarijölda gistinátta í öllum tegundum gistingar. Áætlun
ijölda gistinátta á gististöðum sem ekki hafa sent Hagstofunni
gistiskýrslur er aðallega byggð á vitneskju um gistirými og
nýtingu. Gistirými er þekkt á öllum gististöðum nema á
svefnpokagististöðum og tjaldsvæðum enda er oft erfitt að
gera sér grein fyrir gistirými á þeim stöðuin. Áætlanir á
svefnpokagististaði sem ekki berast skýrslur frá eru aðallega
byggðar á samtölum t.d. við þá sem selja gistingu í félags-
heimilum og skólum, ferðamálafulltrúa, starfsmenn sveitar-
félaga og fleiri. Einnig er notast við eldri gögn þar sem þau
eru til. Gistiskýrslur berast reglulega frá stærstu og Qölsóttustu
tjaldsvæðunum og er áætlaður fjöldi gistinátta einungis u.þ.b.
5% af áætluðum heildarfjölda. Áætlanir fyrir hálendisskála
og tjaldsvæði eru eins og áætlanir fyrir svefhpokagististaði mest
byggðar á samtölum við þá sem tengjast ferðaþjónustunni,
einnig er stuðst við eldri gögn ef til eru.
Árin 1986-1994 voru áætlanir fyrir hótel og gistiheimili,
farfuglaheimili og bændagististaði gerðar á grundvelli gagna
um framboð og nýtingu. Sama á við árið 1995 en þá var auk
þess áætlað á heimagististaði með sama hætti. Fram til ársins
1996 bárust skýrslur frá helmingi skráðra svefnpokagisti-
staða, lítið var vitað um þá staði sem ekki skiluðu skýrslum
og því var farið varlega í gerð áætlana. Árin 1986-1994 má
ætla að gistitölur á tjaldsvæðum nái til u.þ.b. 75-80% þeirra
en heimtur skýrslna árin 1995 og 1996 voru mun betri. I 16.
yfirliti kemur fram að gistinóttum á tjaldsvæðum og i skálum
fjölgaði árið 1995 miðað við árið 1994 en aukninguna ber
að skoða með fyrirvara. Hún á aðallega rætur að rekja til
betri skýrsluskila, auk þess hefur eflaust verið vanáætlað á
tjaldsvæði og skála árið 1994.
16. yfirlit. Áætlaður heildarfjöldi gistinátta eftir tegund gististaðar 1986-1997
Summary 16. Estimated total number of overnight stays by type of accommodation 1986-1997
Alls Total Hótel og gistiheimili Hotels and guesthouses Bænda- gististaðir Farm guesthouses Heima- gististaðir Private-home accommo- dation Sumar- og smáhýsahverfi Summer-house accommo- dation Farfugla- heimili Youth hostels Svefnpoka- gististaðir Sleeping-bag accommo- dation Tjaldsvæði og skálar Camping sites and lodges
1986 821,6 533,8 7,2 0,9 32,2 12,9 234,6
1987 921,4 613,2 19,9 0,9 37,1 17,4 232,9
1988 929,3 594,8 22,9 0,8 35,5 19,3 256,0
1989 947,7 604,4 22,8 1,1 39,4 19,2 260,8
1990 1.028,5 645,0 39,0 1,0 37,3 24,2 282,0
1991 1.060,3 668,3 42,3 2,2 36,0 25,0 286,5
1992 1.025,7 662,9 54,1 3,5 31,1 28,9 245,2
1993 1.022,3 661,0 54,1 5,6 30,6 24,6 246,4
1994 1.182,4 745,3 82,2 7,5 34,8 25,2 287,4
1995 1 1.269,7 844,1 67,7 37,8 18,3 301,8
19962 1.348,5 896,0 56,8 26,7 40,2 24,5 304,3
1997 1.438,8 991,7 52,3 29,2 39,6 27,2 298,7
' Árið 1995 var flokki bændagististaða skipt annars vegar í hótel og gistiheimili og hins vegar heimagististaði. Þeir bændagististaðir sem hafa 8 herbergi eða
fleiri og/eða 16 rúm eða fleiri teljast nú til hótela og gistiheimila. Nánari skýringar í texta. In 1995farm guesthouses were reclassified as either hotels and
guesthouses or private-home accommodation. Farm guesthouses with at least 8 rooms and/or 16 beds are now classified as hotels or guesthouses. others as
private-home accommodation.
2 Sumarhús og smáhýsi hafa verið aðgreind frá því sem áður var í einu lagi talin heimagististaðir. Summer-house accommodation, c.f. notes to Summary 8 has
been classified separately from traditional private-home accommodation.
Árið 1997 var heildarfjöldi gistinátta 1.439 þúsund, 6,7%
fleiri en árið 1996 þegar þær voru 1.348 þúsund. Mestu munar
um fleiri gistinætur á hótelum og gistiheimilum en aukningin
á milli áranna 1996 og 1997 þar var nærri 11%. Gistinóttum
fækkaði áheimagististöðum, farfuglaheimilum átjald-svæðum
og í skálum. Milli áranna 1995 og 1996 fjölgaði gistinóttum í
öllum tegundum gistingar, mismikið eftir tegundum, mest í
flokki hótela og gistiheimila eða um 6%. Yfirlit 16 sýnir
heildarfjölda gistinátta allt frá árinu 1986. Árið 1986 var54%
gistinátta bundin hótelum og gistiheimilum og rúm 28%
tjaldsvæðum og skálum, minna en 1% bænda- og heimagisti.
Árið 1997 hefur hlutfall gistinátta á hótelum og gistiheimilum
af heildarfjölda gistinátta hækkað í 69% frá árinu 1986, sama
ár var 5,7% gistinátta bundin í heimagistingu og gistingu í
sumar- og smáhýsahverfum samanlagt. Á móti kemur að
gistinætur á tjaldsvæðum og í skálum voru einungis um 21%
af heildar-fjölda gistinátta árið 1997. Val á gistingu hefur því
færst frá tjaldsvæðum yfir í íburðarmeiri aðstöðu s.s. hótel,
gistiheimili og heimagistingu. Val á gistimáta er nokkuð
mismunandi eftir ríkisfangi gesta.