Gistiskýrslur - 01.07.2002, Qupperneq 5
Formáli
Gistiskýrslur 2001 er níunda rit Hagstofu íslands um niður-
stöður talningar á gistinóttum og gestakomum á gististöðum
í landinu. Hagstofan hóf reglubundna söfnun upplýsinga um
framboð á gistirými og fjölda gistinátta á gististöðum í júní
1984. Söfnunin hefur tekið til allrar seldrar gistiþjónustu.
að orlofshúsum félagasamtaka undanskildum. Arið 1995 var
byrjað að afla upplýsinga um gestafjölda auk gistinátta í því
skyni að kanna meðallengd dvalar á gististað.
Skýrsluskil frá hótelum, gistiheimilum. farfuglaheimilum
og orlofshúsabyggðum hafa verið góð og sama má segja um
flest vinsælustu tjaldsvæðin. Eigendur nýrra gististaða eru
greinilega vel upplýstir um mikilvægi gagnasöfnunarinnar því
frá þeim hafa gistiskýrslur yfirleitt borist fljótt og vel. Skýrslu-
skil seljenda annarrar gistiþjónustu voru viðunandi á síðasta
ári en kostuðu þó tímafrekan eftirrekstur. Árið 1996 var í fyrsta
skipti hægt að áætla heildafjölda gistinátta fyrir allar tegundir
gististaða sem gistináttatalningin nær til. Af samtölum við þá
sem ekki skila skýrslum hefur ósjaldan komið í ljós að þeir
telja starfsemi sína svo veigalitla að ekki svari fyrirhöfninni
að útbúa skýrslur. Þessar upplýsingar eru engu að síður
mikilvægar því Hagstofunni er ekki kunnugt um annað en að
gistístaðurinn sé opinn og í fullum rekstri.
Fáir gestgjafar hika nú orðið við að senda Hagstofunni
upplýsingar um gistinætur enda er þeim greinilega vel kunnugt
um að með allar upplýsingar sem Hagstofan safnar til
hagskýrslugerðar og varða einstaka rekstraraðila, er farið sem
trúnaðarmál. Meginregla Hagstofunnar er að hagskýrslu-
upplýsingar, er varða einstaklinga eða fyrirtæki, eru aldrei
látnar öðmm í té, hvorki opinberum aðilum né einkaaðilum.
og eru aðeins birtar samandregnar í töfluyfirlitum. Töflugerðin
miðast við það að upplýsingarnar verði ekki raktar beint eða
óbeint til einstakra aðila. Þá má benda á að upplýsingar þær
sem gestgjafar láta Hagstofu Islands í té koma ekki síst þeim
sjálfum til góða við skipulagningu starfseminnar og markaðs-
rannsóknir.
A Hagstofunni hafa Guðfinna Harðardóttir og Þórarinna
Söebech haft umsjón með öflun og úrvinnslu gistiskýrslna,
en ásamt þeim hefur Sigrún Sigurjónsdóttir unnið að söfnun
og úrvinnslu. Guðfinna Harðardóttir og Þórarinna Söebech
sáu um gerð þessa rits og umbrot annaðist Sigurborg
Steingrímsdóttir.
Hagstofu fslands í júlí 2002
Hallgrímur Snorrason
Preface
Tourist Accommodation 2001 is the ninth report issued by
Statistics Iceland on the subject. In June 1984 Statistics
Iceland began collectíng data on a regular basis on the supply
and use of tourist accommodation. The data collection
extended to ovemight stays and arrivals in all types of tourist
accommodation with the exception of trade-union summer
houses. In 1995 the data collection was extended to cover
guest arrivals in order to acquire information on average
length of stay.
Response rates from hotels and guesthouses, youth hostels
and summer houses have been very satisfactory and the same
applies to the most popular camping sites. The data collection
from other purveyors of tourist accommodation proved more
time consuming but rendered satisfactory final response
rates. Owners of new tourist accommodation have turned
out to be well informed of the importance of tourist
accommodation statistics and have responded well to
requests for data. On the whole, the data collection has
improved and coverage has increased appreciably. In 1996
it became possible for the first time to make an estimate of
the number of ovemight stays for all types of accommodation
covered by the tourist accommodation statistics.
At Statistics Iceland, Guðfinna Harðardóttir and Þórarinna
Söebech have been in charge of the collection of tourist
accommodation reports and the subsequent data processing.
Sigrún Sigurjónsdóttir assisted them in collecting the reports.
Guðfinna Harðardóttir and Þórarinna Söebech edited this
publication and the lay-out was in the hands of Sigurborg
Steingrímsdóttir
Statistics Iceland in July 2002
Hallgrímur Snorrason