Framtíðin - 23.07.1929, Side 4
4
FRAMTÍÐIN
Frh. frá 1. bls.
Af því leiðir, að oft eru frá-
sagnir flokkablaðanna, vegna þess
að ritstjórarnir eru háðir vilja ráð-
andi manna innan flokkanna, eklú
birtar í réttu Ijósi. Hvað sannleiks-
gildi snertir, er undir svona kring-
umstæðum oft engin heil brú í
þeim.
Afarörðugt er eða ómögulegt að
afla sér ábyggilegra upplýsinga við-
víkjandi hinum nýafstöðnu lands-
inálafundum. Svo mjög er eitur
flokkapólitíkinnar búið að sýkja
og gegnsýra þjóðina, að flestir
menn eru hlutdrægir og halla réttu
máli, annaðhvort vísvitandi eða
óafvitandi og eins og ósjálfrátt.
Hefðu kosningar til alþingis farið
fram næstu daga á eftir fundun-
um, væru menn auðvitað yflrleitt
síður í vafa um, hvað í raun og
veru gerðist á fundum þessum. En
þar sem því er ekki þannig varið,
veður alþjóð 1 »villu og svíma«,
hvað »stemningu« áheyrendanna á
fundunum snertir.
Pjódræknir menn blekkja sjálfa
sig, ef þeir treysta frásögnum flokka-
blaðanna.
Sgm dæmi um hið fráleita atferli
flokiíablaðanna er Akureyrarfund-
urinn. Frásagnir flokkablaðanna
þriggja voru svo ólíkar, að mönn-
um, ókunnugt um málavexti, hefði
verið öldungis ómögulegt að ímynda
sér að um að eins einn fund væri
að ræða — heldur þrjá fundi. Pann-
ig leit svo út að þrír Ólafar Thors,
þrír Bernharðar Stefánssynir og
þrír Einarar Olgeirssynir hefðu flutt
þar erindi.
Blaðið »Dagur« er lygajöfur
Norðurlands eins og »Tíminn« er
hér syðra. En þó fór svo gersam-
lega um þverbak í þetta sinn, að
sumir létu svona hálft um hálft
furðu sína í ljós yfir ósvífni þess
og óbilgirni. Og þó eru menn mörgu
vanir af slíku tæi hjá því blaði.
Ber gætnum mönnum saman um,
að öllu hafl verið snúið öfugt, er
að fundinum laut — að öll frásögn
blaðsins um fundinn hafl verið ó-
blönduð ósannindi frá upphafl til
enda.
Greinina um fundinn í málgagni
lýðæsingamanna reit Einar Qlgeirs-
son síldareinkasölublóðsuga. Pað
nægir, til þess að menn geti getið
sér til, hvernig »réttmæti« hennar
muni vera! Annars er mér eðlilega
óljúft í þessu sambandi að nefna
nafn blaðsins, sem greinin er í.
, Pað heitir »Yerkamaðurinn«. Nafn-
ið sjált á blaðinu er því virðingar-
vert og heiðarlegt. En ritarar og
umráðamenn blaðsins (það er rit-
stjóralaust) eru óheiðarlegir og fyr-
irlitlegir. Peir eru skaðræðismenn,
einkum og sérstaklega gagnvart
varnarlausasta fólkinu — verka-
mönnunum. Pví er sárt að þessi
blaðsnepill, sem saurgar og svívirð-
ir heiðarleika verkamanna í heild
sinni, skuli þó að nafninu til vera
eins og »helgaður« þeirri stétt —
en aðeins til ábata fyrir Einar 01-
geirsson og önnur verstu illþýði
landsins.
Samkvæmt þeirri bestu heimild,
sem fáanleg var (eg gat ekki,
kringumstæða vegna, setið nokkurn
fundanna, nema þann sem haldinn
var á Djúpavogi), ummælum tveggja
manna er viðstaddir voru, og eru
taldir áreiðanlegir og sannsöglir
menn, komst blaðið Islendingur
næst sannleikanum. En hinsvegar
hefir ritstjóri þess auðvitað ekki
séð sér annað fært en að »lita«
það eitthvað, þ. e. gera það hlut-
drægt að nokkru, víkja dálítið út
af réttri leið, eins og ritstjórar
flokkablaðanna eru knúðir til að
gera.
Eins í þessu sem öðru getur að
eins óháð blað orðið fólki til sannr-
ar leiðbeiningar.
Frh.
------------
Vernd vinnulýðsins.
Eg er vinur og talsmaður verka-
manna eins og annara stétta. Eg
ber hagsmuni verkamanna fyrir
brjósti eins og hagsmuni annara
stétta. 0g eg virði þessa stétt al-
veg eins mikið og aðrar stéttir.
Síst að furða þótt eg geti ekki
orða bundist yfir ósvífni, lygum og
blekkingum forkólfa »jafnaðar-
manna«-klikkunnar. — Peir fita
sig á sveita alþýðunnar. Auður
þeirra er sem sé blóðpeningar.
Pessi varmenui leitast við af öllum
mætti að gera þjóðarheildina að
þrælum sínum, er þeir munu, ef
þeim tekst slíkt (sem þeim skal
ekki — skal aldrei takast), kúga
miskunnarlaust, eins og Héðinn Brí-
etarson kúgar verkafólk sitt (sbr.
skýrslu samherja haris, M. Y. Jó-
hannessonar). Af þessu leiðir að
þeir hata vinnudóminn og berjast
gegn honum með hnúum og hnef-
um
Vinnudómurinn er vernd fyrir
verkalýðinn gegn ofbeldi og yfir-
gangi leiðtoga æsingahreyfingarinn-
ar (en það eru leiðtogarnir, þessir
falsspámenn verkamanna, er ein-
göngu sjálfir stórhagnast á verk-
bönnum, en iðjumennirnir og þjóð-
in í heild sinni bíður tjón af), og
ennfremur vernd gegn ofbeldi at-
vinnurekenda, ef um slíkt kynni
að vera að ræða. Vinnudómurinn
er skjól og skjöldur verkalýðsins.
Og það vita leiðtogarnir, Héðinn,
J. Bald., Ein. Olgeirsson og allúr
skarinn þessara mannlegu djöfla,
þessara konga eigingirninnar,
hræsninnar og lyginnar.
1930
er nafn á nýjum vindli, sem
búinn er til af (P. Wulff, —
Kaupmannahöfn, bestu
vindlagerð Danmerkur.
1930 fæst alstaðar með þessu
verði:
1 stk. 50 aura.
25 stk. kassi 10 kr.
50 stk. kassi 19,50.
Fyrirliggjandi í heildsölu í
Gúmmístígvél
hafa hlotið lof allra, sem reynt hafa.
Rúmgóð, þægileg, og framúrskarandi
endingargóð. Jafnan fyrirliggjandi í öll-
um venjulegum stærðum og gerðum
fyrir karla, konur og börn.
Gummískór
með hvítum, gráum og brúnum botnum.
Sterkur og ódýr slitskófatnaður.
Vörur sendar gegn eftirkröfu.
Greið og ábyggileg viðskifti.
H V ANNBERGSBRÆÐUR
Reykjavík. SKÓVERSLUN Akureyri.
iffli
n sálrn
Hvaða skýringar gefa náttúruvísindin á
leyndardómum mannssálarinnar og lífsins?
Nýútkomnar bækur útskýra þetta eins nákvæmlega og full-
komlega og unt er. Bækurnar eru alls 30 arkir að stærð.
Ódýrustu og bestu bíókakaup,
sem völ er á.
Bækurnar kosta að eins 5 krónur burðargjaldsfrítt. Petta
tilboð er aðeins til 1. október. Með því að upplagið er
takmarkað, er vissast að tryggja sér bækurnar sem fyrst.
Öllum fyrirspurnum svarað greiðlega.
Sendið pantanir yðar aðalútsölumanni bókanna:
E. GUÐMUNDSSYNI, Frakkastíg 24.
IWWWWWWWBWWWWWWWWWWWWWWWWWWWWWHWIWHWW JIM i I TOMMIWtWWWW
| Framtíðin
mun leiða það í Ijós, að hér eítir sem
hingað til verða bestu bifreiðarnar
til lengri og skemri ferða ávalt frá
Steindöri.
:^wnwwiwiwiww
Sagan
í þessu blaði heitir VALRÓS,
og er áframhald frá
1. tölubl.
Ritstjóri: J. S. Birkiland.
Prentsm. Jóns Helgasonar.
Verð blaðsins
er fimm krónur ár*
gangurinn.
Gjalddagi 1. október
ár hvert.