Framtíðin - 24.02.1931, Blaðsíða 2

Framtíðin - 24.02.1931, Blaðsíða 2
2 FRAMTIÐIN Vigfús Guðbrandsson, klæðskeri hefir flutt klæðaverzlun sína og saumastofu í Austurstræi ÍO. hugsjónir til heilla fyrir framtíð- ina. Það verður að koma til fólks eft- ir hverjum einasta eyri fyrir t>etta blað. Mér vinst ekki tími til að geta innkallað nema frá litlum hluta hins mikla fjölda manna, er fá blaðið. Gerió svo vel og greiðið mér nú þegar andvirói blaðsins (12 kr.) á ári, eða einhvern hluta þess. Afgreiðsla blaðsins er í Berg- staðastræti 34 B. Pósthólf 722. Sími er því miður ófáanlegur, uns farið verður að starfrækja nýju, sjálfvirku mióstoðina. Draumsj ónarmadurinn Unga konan, sem átti í vænd- um að verða móóir,. fann að eitt- hvaó kiptist við — kiptist við und- ir belti hennar. Hún vissi að bað var fóstrið hennar; nýtt líf, líf af hennar eigin lífi. Hún sá sýnir heilla og hamingju fyrsta barnsins síns. — Iskaldar vindstrokpr, undan- fari stórhríðar, smugu inn með gluggarúðunum. Unga konan var ekki hraustbygð. Hún fór að skjálfa, og ein stærsta hrifning mannlegs lífs hvarf henni. Hana hafði verið að dreyma..... Mjúka móðurhöndin vaggaói ungbarni. 1 vöggunni svaf ný- fæddi sveinninn hennar með hálf- luktum augum. Einstöku sinnum hreyföust litlu varirnar og smá- kippir fóru um fíngerðu kinnarn- ar hans. Hann var í hinu boku- kenda landi draumóranna. Móður- hjartað fyltist gleói og hún sagði: »Yndið mitt dreymir«...... Hann var tíu ára gamall. Hann dvaldi í draumalöndum um lang- ar nætur. Hann sveif um undra- geim fegurðarinnar, leið aftur og fram um grænar grundir og blóm- skrýdda bala og yndislega, töfr- andi lystigarða á meðal rauðra rósa og angandi blóma, sem voru björt og geislandi. Og bar var lítil stúlka með augu eins og stjörnu- leiftur, með kinnar eins og vorsól í upprás, og varir með yndi heil- brigðrar, vaxandi æsku. —‘ Og bau tókust í hendur með ærslum og fjörugum leik. Hún hló svo að heimurinn dansaði af unaði og hann dansaði með heiminum. Söngurinn hennar — hrein, skær, töfrandi barnsrödd — bergmálaði í hjartaslögum hans. Hún hvíslaði í eyra honum: »Einhverntíma ætla eg að eiga big<,:- Þá kannaðist hann við hana. Það var málverk er hann hafði séð — frægt málverk af stúlkubarni, líkingarmynd löngun- rinnar...... Hann flaug í lausu lofti um geiminn. En hvað bað var skrítið aó vera fleygur! Hann sveif urn ómælisfjarlægðir alheimsins, eins og ímyndunaraflið..... Hann var á gjárbarmi og ógur- legt hengiflug fyrir neðan. Gjáin var takmarkalaust hyldýpi, eins og eilífðin. Hann var forvitinn. Hann langaði til að sjá og vita meira um botnleysið fyr!r fótum sér. Löngun hans varð meira að segja öllum ótta yfirsterkari. Hann laut til bess að reyna að - greina eitthvað — og datt .... datt .... Hann vaknaði. Hann hafði verið að dreyma. Hann var gamall maður með skegg, líkt og Nikulás helgi. Móð- ir hans var meira en hundrað ára gömul. Honum bótti óumræóilega vænt um að hún lifói svo lengi hjá honum. »Þú ferð aldrei frá mér, elsku mamma!« hrópaði hann með mikilli gleði. Þá vaknaði hann. Hann hafði verið að dreyma. Skömmu síðar andaðist móðir hans. — Ó, hvé draumar rætast oft illa! En hann hélt áfram að dreyina. Og ekki að ein's dreymdi hann í svefni, heldur einnig fór hann að dreyma í vöku. Þannig dreymdi hann og dreymdi áfram.- Meoan hann var í barnaskólanum dreymdi hann um hærri menta- stofnanir. Svo fór hann seinna á háskólann. En eftir fáein ár komst hann að raun um að hann hatði verió að dreyma um eitthvað æðra og ofar honum. Hann hætti við háskólann. Hann nam mikilvæga og margskonar fræði utan skóla. Hann las eðlis- fræði og efnafræði. Hann sá risa- veggi bygða í hyldjúpum úthaf- annar til bess að beina rás Golf- straumsins og annara hlýrra strauma bannig, að strendur allra landa hlytu bar af jafnan skerf. Hann leit geysistórar Völundar- verksmiðjur nothæfa öldur sólar- innar og stjórna beim. Það var engu hlýrra við miðjarðarlínuna en við heimskautin. Fólksflutning- ar hófust til norður- og suðurheim- skautanna. Hann leit út um glugg- ann. Kornstangirnar sveigöust fyrir hægum andvara í blíðviðr- inu. — En bað var óveðursblika á lofti. Maður stóð skamt frá og gaf skýjabólstrunum nákvæmar gæt- ur. Við hliðina á honum var marg- breytt undravél. Alt í einu brýsti hann á hnapp og ósýnilegir straumar bræddu loftið til hinna -ógnandi óveðurskýja. Þetta af- reksverk vísindanha dreifði skýj- unum og kom í veg fyrir að feikna kornakrar eyðilegðust. Uppsker- unni var borgið, að bví er virtist. Hann leit aftur út um gluggann. Kornið bylgjaði á akrinum. — En sjá! Feikna haglstormur skalí á. Á fáeinum augnablikum var all- ur akurinn kollCartur — ekki kornstöng eftir. Hann haffoi vcrið að dreyma. Hann sá iður jarðarinnar opn- ast. Ýmsar lagfæringar voru gerðar er höfóu baó í för með sér, að jarðskjálftar voru ekki framar til. — En næstum samstundis fann hann kippi og einkennilega bylgjuhreyfingu. Hann hrökk við. Þetta var auðsæilega dálítill jarð- kjálftakippur. Hann hafði verið að dreyma. Hann sá geysistórar athugunar- stöóvar hreyfinga lofts, lagar og láðs. Það voru líka til feiknastór- ar og margbrotnar vélar til að stjórna beim. Hvorki flóðöldur, fellibyljir, brumuveóur, snjóflóð, jarðskriður, eldgos né snjór voru framar til. Uppgufunin féll sem regn í afmældum skúrum aftur til jarðar, eóa sem dögg. — En hvað verður svo! Snjórinn hlóóst niður í kringum hann. Hann vaknað: ónotalega upp úr leiðslu yndisiegs draums. Það var tvísýnt hvort hann bæri ekki beinin úti í pess- um byl. Loks tókst honum bó að ná bygðu bóli. Hann hét bví að láta sig ekki dreyma oftar. Hann las líffærafræði. Hann sá sérhverja smáögn líkamans gagn- rannsakaða af orkumiklum geisl- um, er alt leiddu í ljós. öll líkams- og sálarmein voru að fullu grædd og bætt með almáttugum aflbylgj- um eða beim læknisdómum, sem alment voru notaðir til bess að gera mannlegt líf endalausa æsku — gera baó eilíft. En sjá! Smá- sveinn, er hann unni,, dó skyndi- lega umkringdur af læknum, og voru sumir beirra sérfræðingar. Hið fyrra var »teoría«. Hið síðara staðreynd. Harín vissi að hann hafði verið að dreyma. Hann las bjóðhagsfræði. Hann sá einum og sérhverjum launað eins og hann átti skilið. Allir voru ósérplægnir. Alstaðar var friður, nægtir, ástir og hamingja. Líf allra manna var alsœla. En svo kom hinn óttalegi veruleiki! Heimsstyrjöld skall á alt í einu. Það var ógurlegt kvala- og tára- og blóðbað, sem varaði í nokkur ár. Það skildi heiminn eftir í sár- um og skelfingu. Svo kom hung- ursneyó, drepsótt og stjórnarbylt- ing. Veröldin var í verra reiði- leysi en nokkru sinni áður. Hann hafði dreymt óumræðilega fagra drauma, en sjálft lífið var enn kvalafyllra en áður. En hann hélt áfram að dreyma. Hann gat ekki annað en dvalið í draumi. Stundum hafói hann inn- an um aðra drauma dreymt um gyðju, sem venjulega er Ást köll- uð. Hann dreymdi um stúlku með eldheitri sál, sem var í innsta eðli sínu eins björt eins og morgunroð- inn, og eins hrein, skær og fögur eins og himinhvelfingin bláa, bar sem fjöld voldugra sólna horfa til vor eins og blikandi neistar og eru bví stjörnur nefndar — gyðja lista, unaös og ástríðu. I.oks brast hann trygðum beirri, sem hann hugði, í loga ástarbálsins, að væri bessi mikla hugsjónamynd. Hún hét honum eilífri trygð. En hún var ekki gyðja. Samt varð öll brá hans, von og ást fjötruð við hana. Það var tryltur leikur um lífið eða dauðann. En jafnvel þá vissi hann ekki til fulls hve ógurlegur veru- leiki sorgarinnar er fyrir hina stærstu sál. Dag nokkurn stökk hún á brott og kom ekki aftur. Hann var reyndar ekki enn ást- laus. En vonin og bráln voru dán- ar. — Líf hans fölnaði eins og blóm sem vantar dögg eða lifir í skugga. Hann varð að líða fyrir bað að vera bað sem hann var — draum- sjónamaður. Hann var að fullu dæmdur. Þess var ekki lengi að bíóa, að dómnum yrði fullnægt. Brátt tók Dauðinn hann — nú beg- ar draumar hans voru að engu orónir — fram af bví hengiflugi, sem allir veróa að koma til, hvort sem beim er bað ljúft eða leitt. Og Dauðinn hratt draumlausa draum- sjónamanninum niður í gínandi botnleysið eilífa — bangað, sem enginn hefir aftur komið. Hann var draumsjónamaður. Ö, a6 hann heféi lifaó svo sem l)ús- und árum síóar. Þá — og líklega miklu fyr — verða draumsýnir hans veruleiki. Já, draumar hans — og meira en bað —- verða ein- hvern tíma staðreyndir vegna bess að sálarorka mannsins gerir hann síðarmeir máttugan yfir öll- um öflum náttúrunnar á þessum um hnetti. Og þá verða iðjumenn, en ekki slæpingjar, leiðandi menn bjóð- anna. Til þess að firra mannkynið algerri glötun og eyðileggingu, hljóta mennirnir að verða í heild sinni góðir áður en mjög margar aldir líða. BlóJpinp valíalirasiaraiiia. Tekjur af áfengisverslun ríkis- ins (víneinkasalan og áfengistoll- urinn) fór hvorki meira né minna en 1.200.000 kr. — ein miljón og tvö hundruð þúsund krónur — fram úr áætlun. Hreinar tekjur ríkisins alt að tveimur miljónum sýnir hve þjóðinni blæðir fyrir einn þann hlut, er varpar svört- ustum bletti á svokallaóa nútíma- menningu. Eghefi.eigi samanburð á innkaups og útsöluverði. En ekki virðist fjarri sanni, þótt verðaukn- ing eða álagning við söluna sé há, að gera ráó fyrir aó eyðsla þess- arar litlu þjóðar fyrir eitur þetta nemi að minsta kosti 4—5.000.000. Þetta eru blóðpeningar. Og hvað gera svo valdabrask- ararnir við þá? Láta þeir, eins og gert er í Fínnlandi, rétta hlut- aðeigendur fá þá til afnota? Eru þeir notaðir bindindisstarfseminni til eflingar? Nei. það verður nú ekki af því. En átta þúsund króna er Góðtemplarareglunni ætlað á núverandi fjárlögum. Að hverju leyti þetta er Góð- templarareglunni sjálfri að kenna verður rætt síðar. En eg mun berjast hvíldarlaust fyrir því að ráðin verði bót á þessu áður mörg ár líða. Ritstjóri J. S. Birkiland. Prentsmiðja Jóns Helgasonar.

x

Framtíðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Framtíðin
https://timarit.is/publication/1397

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.