Ásgarðstíðindi - 15.01.1929, Blaðsíða 3

Ásgarðstíðindi - 15.01.1929, Blaðsíða 3
ÁSGARÐSTÍÐINDI 3 Til húsmæðra í Reykjayík. Virðulega húsfreyja! Yður mun vera kunnugt um, að vér framleiðum 2 tegundir af smjörlíki: HJARTAÁS- og L A U P Á S- smjörlíki. H j a r t a á s-smjörlíkið er sýrt eingöngu með hreinum mjólkursýrugerlum af bestu tegund, samskonar og notaðir eru til að sýra rjóma á rjómabúum, en L a u f á s-smjör- líkið er það, sem sumir munu kalla „endurbætt“ smjörlíki. Bragðið er ekki alveg það sama; það er hreinna smjörbragð að Hjartaás-smjörlíkinu, en ekki eins sterkt og að Laufásnum. En nú er ekki smekkur allra eins, og það munu vera tiltölulega fáir, sem hafa bragðað báðar tegundirnar. Vér leyfum oss því að senda yður hérmeð sýnishorn af báðum þessum tegundum: HJARTAÁS- og LAUFÁS- smjörlíkinu og vonum, að þér gerið oss þá ánægju aö bragða báðar tegundir og bera þær saman og eins að bera þær saman við aðrar smjörlíkistegundir, ef þér hafið notað annað smjörlíki fram að þessu. Biðjið kaupmann þann, er þér skiftið við, um HJARTAÁS- eða LAUEÁS-smjörlíki, eftir því hvor tegundin yður líkar betur. Smjörlíki vort er ekki dýrara en annað smjörlíki, en það er mun betra. Kaupið þvi Hjartaás- eða Laufás-smjör- líkið, því að með því móti fáið þér flest og mest gæðin fyrir peninga yðar. ÁSGARÐUR H.F. SMJÖRLÍKISGERÐ. Ath.: Ef vandkvæði eru á því að fá smjörliki vort hjá verslun þeirri, er þér skiftið við, gjörið þá svo vel að gera oss viðvart. Hérmeð fylgja tvær öskjur. ErHJARTAÁS- smjörlíki i annari, en LATJFÁS-smjörliki i hinni. Hvað hvor tegundin er, sjáið þér á miða, sem liggur ofaná i öskjunum og eins neðan á botnunum á öskjunum.

x

Ásgarðstíðindi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ásgarðstíðindi
https://timarit.is/publication/1403

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.