Skessuhorn - 06.09.2017, Blaðsíða 14
MIÐVIKUDAGUR 6. SEPTEMBER 201714
Um kvöldmatarleytið síðastlið-
inn miðvikudag sást til tveggja
manna við ólöglegar veiðar á bökk-
um Norðurár í Borgarfirði. Voru
þeir bæði með net og veiðistang-
ir á árbakkanum á þekktum veiði-
stað skammt frá Hafþórsstöðum
í Norðurárdal. Stangveiðimenn í
ánni gerðu lögreglu viðvart. Þeg-
ar þeir hugðust gefa sig á tal við
hina meintu veiðiþjófa lögðu þeir á
flótta á bílaleigubíl. Númer bílsins
náðist. Lögregla greip samkvæmt
upplýsingum Skessuhorns í tómt,
en hóf eftirgrennslan eftir mönn-
unum. Hinir meintu veiðiþjófar
voru að sögn sjónarvotta vel útbún-
ir til veiða, í vöðlum, með net og
veiðistöng með flotholti. Þeir töl-
uðu erlent tungumál. Við rannsókn
lögreglu kom í ljós að þeir höfðu
leigt bílaleigubíl í fimm daga.
Í sumar hefur það ítrekað gerst
að fólk hefur verið staðið að ólög-
legum veiðum í fengsælum veiði-
ám, m.a. Norðurá og Kjarará í
Borgarfirði. Dæmi eru um slíkt
víðar um land og hefur greinilega
færst mjög í vöxt.
mm
Veiðiþjófar komust undan
með net og stangir
Laxfoss í Norðurá. Ljósm. úr safni.
Gylfi Scheving Ásbjörnsson, skip-
stjóri á Tryggva Eðvarðs SH, seg-
ir í samtali við Skessuhorn að
komandi vertíð leggist bara vel í
sig. „Ég kippi mér samt ekki upp
við ef fiskverðið verður lægra á
þessari vertíð en á þeirri síðustu.
Nóg var fiskverðið þá lágt. Mað-
ur verður að lifa í voninni að fisk-
verð fari að hækka að nýju. Eins
og er erum við á makrílveiðum og
höfum fengið um 100 tonn, en í
morgun lönduðum við tíu tonn-
um fyrir hádegi og eru farnir aftur
út,“ sagði Gylfi kampakátur þeg-
ar fréttaritari hitti hann að máli á
sunnudaginn. „Verði á makríl er
í sögulegu lágmarki en samt sem
áður er gaman að vera á veiðum í
mokfiskirí eins og núna og höfum
við bara gaman að þessum veið-
um.“
Gylfi segir að þeir fari á línu-
veiðar 10. september og fari þá
beint á Hólmavík til veiða. „Við
vorum þar einnig í fyrra og þar
er góður afli á línuna, en frekar
dræm hér í Breiðafirði. Balarnir
eru keyrðir til Hólmavíkur dag-
lega þar sem beitt er í Rifi.“ Gylfi
segir að það séu sex menn sem
vinna við beitningu í landi og svo
eru þeir þrír á sjó og róið með 48
bala.
af
„Vertíðin leggst vel í mig“
Línan á Tryggva Eðvarðs gerð klár til þess að beita hana.
Gylfi Ásbjörnsson skipstjóri á Tryggva Eðvarðs.
Emil Freyr Emilsson, skipstjóri á
línubátnum Guðbjarti SH frá Rifi,
segist bjartsýnn á komandi vertíð. Í
samtali við fréttaritara segir Emil
að það þýði ekkert annað en vera
bjartsýnn; fiskverð verði örugglega
flott í vetur; „því við erum með úr-
vals hráefni,“ bætir hann við.
„Við höfum farið í nokkra róðra
hér á Breiðarfirði og aflinn hefur
verið þetta frá 70-100 kg á bala,“
segir Emil en uppistaðan í aflanum
hefur verið fín ýsa. „Í dag erum við
með um þrjú tonn og þar af er ýsa
1.800 kíló. Við munum síðar í vik-
unni fara á Skagaströnd til veiða því
þar hefur verið ágætis afli á þessum
tíma árs og sennilega verðum við
þar fram í nóvember og þá fara
aflabrögð hér fyrir vestan að glæð-
ast að nýju. Við róum með land-
beitta línu,“ segir Emil, en líkt og
aðrir bátar sem róa frá Skagaströnd
verða ekið með balana norður á
hverjum degi. „Það er allt í lagi,
þetta eru ekki nema um þrír og
hálfur tími frá Rifi á Skagaströnd,“
segir Emil og brosir út í annað. af
„Þetta verður
rosalega fín vertíð“
Emil Freyr Emilsson, skipstjóri á Guð-
bjarti SH, með tvær vænar ýsur.
Guðbjartur SH kemur að landi í Rifi á sunnudaginn.
Guðbjörn Smári Hauksson, út-
gerðarmaður á dragnótarbátnum
Gunnari Bjarnasyni SH frá Ólafs-
vík, segir að komandi vertíð leggist
ekki vel í sig. Hann segist alls ekki
eiga von á að fiskverð hækki í vet-
ur. „Báturinn fór á sjó 1. septem-
ber og tók þrjú höl, en þá kom upp
smávægileg bilun í spilkerfi. Samt
sem áður var aflinn fimm tonn.
Verðið fyrir þorskinn reyndist að-
eins 216 krónur og þar af fara 22,98
krónur í auðlindagjald, svo þá er
ekki mikið eftir. Það verður ekki
hægt að leigja kvóta í vetur á þessu
verði,“ segir Guðbjörn og bætir við
að þessi hækkun á auðlindagjald-
inu hafi veruleg áhrif í Snæfellsbæ,
þar sem bátar eru mest á þorskveið-
um. „Helst er hægt að hafa teg-
undaskipti en leiga kemur varla til
greina,“ segir Guðbjörn. af
„Þetta verður erfið vertíð“
Gunnar Bjarnason SH kemur til hafnar í Ólafsvík.
Löndun úr bátnum.